Bætiefni fyrir sauðfé
Sýna 1–12 af 21 niðurstaðaSorted by latest
Bætiefni fyrir sauðfé
Fóðurlýsi kaldhreinsað 5L
Á lager
8.190 kr. með vskFóðurlýsi er ríkt af náttúrulegum A- og D-vítamínum. Búfénaður sem fær daglega lýsi ber þess augljós merki m.a er feldurinn glansandi og hárafar fallegra. D-vítamín gerir upptöku kalks mögulega og fituskortur gerir síður vart við sig hjá dýrum sem fá reglulega lýsi. A-vítamín heldur slímhúð heilli og er nauðsynlegt sjóninni. Hvert gramm af lýsi inniheldur 37 kJ.
Multi Lamb Rapid – 495ml
Á lager
10.011 kr. með vskKemur ám á fætur og í át á skömmum tíma
Multi Lamb Rapid er skjótvirkt næringarefnasamband fyrir ær sem ganga með mörg lömb. 45 ml skammtur kemur jafnævægi að nýju á orku- og næringarstöðu áa á skjótvirkan máta. Ær sem eru örþreyttar geta náð sér að fullu innan nokkurra klukkustunda.
- þegar kalt er og lautt og fóður ekki nægjanlega gott né orkumikið nýta ær varaforða sinn fyrir lömbin.
- slíkt leiðir til fórstureitrunar (súrdoða)
- Fóstureitrun getur leitt til dauða áa og/eða lamba fái þær ekki meðhöndlun
- Með Multi Lamb Rapid er hægt að meðhöndla ær á árangursríkan og skjótvirkan hátt.
Inniheldur: Própan 1,2 díól, reyrmelassa. amínósýrur, vítamín og steinefni.
Lamb Kick start 100ml [6]
Á lager
6.448 kr. með vskLamba kick start er fljótvirkt orku- og næringarbætiefni fyrir veikburða eða nýfædd lömb. Best er að nota Lamba kick start fyrstu þrjár vikurnar eftir að lambið fæðist. Það eykur líkurnar á því að lamb dafni og stuðlar þannig að hagkvæmni og árangri.
Bovisal Rumen
Á lager
2.046 kr. með vskFæðubótarefni til þess að minnka líkur á súrdoða hjá nautgripum, sauðfé og geitum.
Hjálpar við að endurheimta eðlilega vambarstarfsemi.
Skammtastærðir:
Nautgripir: 1 flaska
Sauðfé/Geitur: 1/2 flaska
Endurtakist á 12klst fresti, ef þörf krefur, þar til eðlilegri vambarstarfsemi er náð.
Bovisal Keto
Á lager
2.184 kr. með vsk610 ml
Fæðubótarefni fyrir mjólkurkýr og ær til að minnka líkur á súrdoða.
Chevivit E-Selen/sR f.lömb-kálfa -kiðlinga
Á lager
2.721 kr. með vskInniheldur Selen E,A og D3 vítamín
Fyrir lömb, kálfa og kiðlinga.
Fóstur jórturdýra fá hvorki nægjanlegt E-vítamín né selen. Nýfæddir kálfar, lömb og kiðlingar þurfa því viðbótarskammt af þessum efnum til að forðast skort og tryggja eðlilegan þroska.
Boviferm Plus SID
Á lager
550 kr. með vskGott við skitu
Kemur stöðugleika á jafnvægi vatns og salta.
Inniheldur :
- Oralin, lífrænt bætiefni sem jafnar þarmaflóruna.
- Sölt.
- Sýrujafnandi efni.
- Mjólkursýrubakteríur. Mucin (prótein sem vernda slímhimnur).
- Umfangsaukandi efni og eykur þar með vatnsupptöku.
Notist ef smitpressa er til staðar, á meðan að á skitu stendur og/eða þegar kálfur/lamb er að ná sér eftir meltingatruflanir.
Skammtastærð: Blandið 1 bréf (115mg) í 2 lítra af vatni og bætið við 0,5-4L af mjólk eða mjólkurdufti.
Gefist tvisvar sinnum daglega.
Má einnig gefa lömbum ef þau fá skitu – passa þarf að þynna blönduna meira miðað við lömb.
Fæðissprauta m.latexslöngu
Á lager
1.791 kr. með vskInniheldur sprautu og gúmmíslöngu.
Notað til að gefa lömbum brodd og mjólk
60ml sprauta sem auðveldar að gefa broddinn skjótt og á þægilegan hátt
Latex slangan minnkar slysahættu við inngjöf hjá lambinu og mýkir þegar rétt
staðsett.