Floryboost / Safygut f. lömb
SafyGut fyrir lömb, áður Floryboost, er tilbúið fæðubótarefni sem styður við þarmaflóru, saltbúskap og orku þegar meltingartruflanir gera vart við sig. Auðvelt í notkun og þarf ekki að blanda.
6.060 kr. með vsk
Á lager
Lagerstaða
- Reykjavík: Fá eintök
- Selfoss: Til á lager
- Hvolsvöllur: Fá eintök
Á lager
SafyGut fyrir lömb, áður Floryboost, er tilbúið fæðubótarefni sem er ætlað að styðja við meltingu lamba þegar meltingartruflanir gera vart við sig. Blandan stuðlar að jafnvægi í þarmaflóru og saltbúskap líkamans ásamt því að veita lambinu aukna orku.
SafyGut inniheldur viðarkol og leir sem draga í sig óæskileg efni í meltingarveginum. Sölt á borð við natríum-, magnesíum- og kalíumklóríð hjálpa til við að viðhalda saltbúskap líkamans, en dextrósi veitir auðnýtanlega orku. Ilmkjarnaolíur úr meðal annars rósmaríni og cajeput styðja jafnframt við viðkvæma og erta slímhúð.
Varan er tilbúin til notkunar, þarf ekki að blanda og kemur með íslenskum leiðbeiningum. Gefið um leið og einkenni meltingartruflana koma fram og fylgið skammtaleiðbeiningum á umbúðum.
Innihald: 100 ml, sem samsvarar allt að 50 skömmtum.
