Heim » Vefverslun » Landbúnaður » Bætiefni » Stampar » Orkustampur 22,5 kg

Orkustampur 22,5 kg

Vörunúmer: 9443

Bragðgóður magnesíum- og selenstampur fyrir nautgripi og sauðfé. Stampurinn inniheldur einnig E-vítamín, sink og fjölbreytt stein- og snefilefni. Hentar sérstaklega á fengitíma, á mjaltarskeiði og þegar auka þarf magnesíumgjöf, meðal annars til stuðnings vörnum gegn stíuskjögri. Þyngd: 22,5 kg.

9.908 kr. með vsk

Á lager

Lagerstaða

  • Reykjavík: Til á lager
  • Selfoss: Fá eintök
  • Hvolsvöllur: Uppselt

Á lager

Lýsing

Magnesíum- og selenstampurinn frá Fóðurblöndunni er lystugur steinefnastampur fyrir nautgripi og sauðfé. Hann er sérstaklega hannaður til að bæta stein-, snefil- og vítamíngjöf og hentar vel þegar þörf er á auknu magnesíum- og selenframboði.

Stampurinn hentar einkum fyrir kýr á fengitíma og mjaltarskeiði. Fyrir sauðfé getur hann verið góður kostur á tímabilum þegar mikilvægt er að tryggja nægt magnesíum, meðal annars til stuðnings vörnum gegn stíuskjögri. Melassi gerir stampinn lystugan og auðveldar gripunum að sækja í hann eftir þörfum.

Helstu eiginleikar:

  • Fyrir nautgripi og sauðfé
  • Inniheldur 15% magnesíum
  • Inniheldur 35 mg/kg af seleni
  • Ríkur af nauðsynlegum stein- og snefilefnum
  • Inniheldur A-, D3- og E-vítamín
  • Inniheldur meðal annars sink, joð, mangan og kóbalt
  • Lystugur stampur með melassa
  • Hentar inni og úti
  • Þyngd: 22,5kg

Leiðbeinandi dagsneysla:

  • Nautgripir: 100-155 g á grip á dag
  • Sauðfé: 15-30 g á grip á dag
  • Um 15-20 nautgripir eða 20-30 kindur geta deilt einum stampi

Stilla má stampinum upp inni eða úti og færa hann eftir þörfum til að stýra aðgengi og neyslu. Geymið stampinn á þurrum og köldum stað fyrir notkun.

 

Upplýsingar

Þyngd

Þyngd22,5 kg

Fylgiskjöl