Boviferm Plus SID

Vörunúmer: 5228040

Boviferm Plus er sérfóður fyrir kálfa með skitu. Blandan inniheldur sölt, þrúgusykur, mjólkursýrugerla og bindiefni sem styðja við vökva- og saltjafnvægi, meltingu og eðlilega þarmaflóru. Boviferm Plus má blanda saman við mjólk eða mjólkurduft og því er ekki nauðsynlegt að stöðva mjólkurgjöf meðan varan er notuð.

 

550 kr. með vsk

Á lager

Lagerstaða

  • Selfoss: Uppselt
  • Hvolsvöllur: Til á lager

Á lager

Lýsing

Boviferm Plus er sérfóður sem ætlað er að styðja við vökva- og saltjafnvægi hjá kálfum með skitu. Varan veitir sölt, orku og stuðpúðaefni ásamt mjólkursýrugerlum, jurtaslímum og bindiefnum. Hún stuðlar þannig að endurvökvun, hjálpar til við leiðréttingu á sýrujafnvægi og styður við eðlilega starfsemi meltingarvegarins.

Boviferm Plus inniheldur Oralin®, mjólkursýrugeril sem hjálpar til við að viðhalda og endurheimta eðlilega þarmaflóru. Bentonít, montmorillónít, pektín og önnur bindiefni hjálpa til við að þétta hægðir og binda óæskileg efni í meltingarveginum. Blandan inniheldur einnig kamillu, anís og fennel.

Varan truflar ekki ystingu mjólkur í vinstur kálfsins og má því gefa með mjólk eða mjólkurdufti. Ekki skal stöðva mjólkurgjöf meðan Boviferm Plus er notað.

Notkun og ráðlagður skammtur

Við hættu á meltingartruflunum, meðan á skitu stendur eða á batatímabili:

  • Blandið einum 115 g skammti saman við 2 lítra af vatni.
  • Bætið við 0,5–4 lítrum af mjólk eða mjólkurblöndu eftir daglegri þörf kálfsins.
  • Gefið tvisvar á dag.
  • Notið þar til skitan er gengin yfir, þó að lágmarki í 2–3 daga.
  • Hafið ávallt ferskt drykkjarvatn aðgengilegt.

Ekki nota heitari blöndunarvökva en 50°C þar sem varan inniheldur lifandi mjólkursýrugerla. Ráðlagt er að leita álits dýralæknis fyrir notkun.

Samsetning

Þrúgusykur, mysuduft, natríumprópíónat, natríumklóríð, kalíumklóríð, bananflögur, forgelatínerað hrísmjöl, kalsíumklóríð og magnesíumklóríð.

Efnagreining

  • Hráprótein: 4,0%
  • Hrátrefjar: 1,4%
  • Hráfita: 0,5%
  • Hráaska: 21,0%
  • Natríum: 4,4%
  • Kalíum: 1,7%
  • Klóríð: 3,8%
  • Raki: 6,0%

Aukefni í hverju kg

Bentonít, montmorillónít, gúarfræmjöl, sítruspektín, kamilla, anísfræ og fennelfræ.

Mjólkursýrugerlar:
Enterococcus faecium DSM 10663 / NCIMB 10415 (E1707), Oralin®: 1,75 × 10¹⁰ CFU.

Umbúðir og geymsla

  • Pakkning: 24 × 115 g skammtapokar
  • Geymist á svölum og þurrum stað
  • Geymsluþol: 24 mánuðir
  • Enginn afurðanýtingarfrestur

Upplýsingar