Upplýsingar um áburð
Leiðbeiningar og algengar spurningar um áburð.
Leiðbeiningar um áburðarmagn og tegund
Áburðarmagn þarf að aðlaga að tegund túna og uppskerugetu og einnig er gott að hafa heyefnagreiningar og jarðvegssýni til að fá nákvæmari áburðarþarfir. Eins skiptir máli frjósemi jarðvegs og væntingar um gæði og magn gróffóðurs.
Túntegund/ræktun | Köfnunarefni (N) | Fosfór (P) | Kalí (K) | Hentugur áburður |
|---|---|---|---|---|
Gömul tún, lítil uppskera | 80-100 | 12-20 | 30-60 | Græðir 9, Fjölmóði 3 |
Meðalgóð eldri tún | 105-115 | 15-25 | 40-70 | Græðir 8, Græðir 9 |
Nýrækt eða ný tún | 105-115 | 15-25 | 40-70 | Græði 5, Græðir 6 |
Endurræktun túna | 70-90 | 30-35 | 60 | Græðir 5 |
Grænfóður (hafrar, bygg) | 100-140 | 20-25 | 40-60 | Græðir 6 |
Grænfóður (repja, næpur) | 100-140 | 30-40 | 70-90 | Græðir 5 |
Korn, fyrsta ár | 40-70 | 18-25 | 40-60 | Græðir 5, Græðir 6 |
Korn, annað og þriðja ár | 60-90 | 18-25 | 40-60 | Græðir 5, Græðir 6 |
Á milli slátta | 30-50 | 0-5 | 0-20 | Magni 1 |
Áburður á HA | Köfnunarefni (N) | Fosfór (P) | Kalí (K) |
|---|---|---|---|
Undanfarin ár hefur verið gengið út frá | 27-50 | 0-5 | 0-20 |
Algengar spurningar
Vöruframboð og notkun á áburði
Við bjóðum gott úrval af einkorna áburði sem hentar mismunandi ræktunaraðstæðum og jarðvegsþörfum en vöruúrval á milli ára er misjafnt. Frekari upplýsingar um vöruúrval má sjá í vörulista hvert ár
Áburðurinn okkar er hannaður fyrir íslenskar aðstæður og hentar m.a. vel fyrir: grasrækt, kornrækt, trjárækt, matjurtir og uppgreiðslu. Við bjóðum lausnir sem mæta mismunandi jarðvegs- og ræktunaraðstæðum.
Við mælum með að láta greina jarðveginn áður en þú velur áburð. Þú getur einnig fengið ráðgjöf frá okkar sérfræðingum til að velja rétta blöndu fyrir þínar aðstæður.
Dreifing og geymsla
Það fer eftir tegund ræktunar og jarðvegi. Almenn ráð eru:
- Dreifa áburði jafnt yfir svæðið.
- Nota áburðardreifara fyrir nákvæmni.
- Fylgja leiðbeiningum á pakkningu eða fá ráð frá sérfræðingum okkar.
Áburður ætti að vera geymdur á þurrum og köldum stað, fjarri raka og beinu sólarljósi. Gættu þess að umbúðir séu vel lokaðar eftir notkun.
Já, það er mikilvægt að fylgja íslenskum reglugerðum um notkun áburðar til að lágmarka áhrif á umhverfið. Hafðu samband ef þú hefur spurningar.
Ertu með fleiri spurningar?
Sérfræðingarnir okkar hjá Fóðurblöndunni eru alltaf til taks til að svara spurningum þínum. Hafðu samband við okkur í gegnum síma, tölvupóst eða heimsæktu eina af verslunum okkar.