Skilmálar og stefnur Fóðurblöndunnar

Hér má nálgast helstu skilmála og stefnur Fóðurblöndunnar. Við leggjum áherslu á skýrar upplýsingar, ábyrga meðferð gagna og gagnsæ vinnubrögð í samskiptum við viðskiptavini og starfsfólk.

Skilmálar fyrir vefverslun​

Í skilmálum vefverslunarinnar má finna upplýsingar um kaup á vörum á fodurblandan.is, meðal annars um greiðslur, afhendingu, verð, vöruskil og ábyrgð. Við mælum með að viðskiptavinir kynni sér skilmálana áður en gengið er frá pöntun.

Persónuverndarstefna

Við leggjum áherslu á að fara vel með persónuupplýsingar viðskiptavina og annarra sem eiga í samskiptum við Fóðurblönduna. Í persónuverndarstefnunni má finna upplýsingar um hvaða gögnum er safnað, hvernig þau eru nýtt og hvaða réttindi einstaklingar hafa.

Vafrakökustefna

Vefur Fóðurblöndunnar notar vafrakökur til að tryggja virkni síðunnar, bæta upplifun notenda og afla upplýsinga um notkun vefsins. Í vafrakökustefnunni er útskýrt hvaða vafrakökur eru notaðar og hvernig hægt er að stjórna stillingum þeirra.

Rafræn vöktun

Rafræn vöktun er viðhöfð á tilteknum starfsstöðvum Fóðurblöndunnar í öryggis- og eignavörsluskyni. Hér má nálgast upplýsingar um tilgang vöktunarinnar, varðveislu myndefnis og réttindi þeirra sem kunna að sjást á upptökum.

Jafnlaunastefna

Fóðurblandan leggur áherslu á að starfsfólk njóti jafnra launa og sambærilegra kjara fyrir sömu eða jafnverðmæt störf, óháð kyni eða öðrum ómálefnalegum sjónarmiðum. Í jafnlaunastefnunni má lesa nánar um markmið okkar og áherslur í jafnlaunamálum.