Betri gæði,
MEIRI afurðir
Hraðvirkara D-vítamín sem skilar sér í raunverulegan mun!
Ávinningur þess að nota HY-D®
Einstök virkni – betri nýting og hraðara frásog

Lífvirkt D-vítamín skiptir máli – fyrir heilsu, frjósemi og afurðir
D-vítamín gegnir lykilhlutverki í mörgum grundvallarferlum í líkama nautgripa – ekki aðeins fyrir beinheilsu, heldur einnig fyrir frjósemi, ónæmiskerfi, vöðvastarfsemi og jafnvel virkni hormóna. Þegar D-vítamín er ekki nýtt nægilega vel, geta kýr orðið viðkvæmari fyrir sýkingum, lent í kalkskorti eftir burð og átt erfiðara með að skila hámarksnytum.
Hy-D® er lífvirkara form D-vítamíns sem líkaminn nýtir beint, án þess að þurfa að umbreyta því fyrst í lifur. Það þýðir að áhrifin koma fyrr fram og stöðugleiki í styrk D-vítamíns verður meiri. Þetta hefur áhrif á efnaskipti, nýtingu kalks og fosfórs, og viðhald á ónæmisviðbrögðum – sem öll eru lykilatriði fyrir heilsu og frammistöðu kúarinnar.
Kýr sem fá Hy-D® eru betur undirbúnar fyrir burð, sýna minni tíðni af fæðingartengdum kvillum og skila sér hraðar í mjaltaskeið. Jafnframt fá kálfarnir betri broddmjólk með meira magni mótefna og eru því líklegri til að fá betri byrjun á lífinu.
Fyrir kýr á geldstöðu
Fyrir kýr sem eru ekki mjólkandi en ganga með kálf og undirbúa burð, er fókusinn á að byggja upp líkamsforða, ónæmi og vöðvastyrk – Hy-D® styður þetta með:
- Betri upptöku á kalki – sem dregur úr líkum á doða eftir burð
- Meiri og betri broddmjólk – með hærra magni mótefna (IgG) fyrir kálfinn
- Sterkara ónæmiskerfi – færri sýkingar á borð við legbólgu eða fastar hildir
- Stöðug D-vítamínstaða – tryggir jafnvægi í efnaskiptum og undirbýr líkamann
- Minni þörf á sýklalyfjum – skilar sér í bættri velferð og lægri kostnaði
Fyrir Mjólkandi kýr
Hy-D® hefur verið bætt í allar fóðurblöndur Fóðurblöndunnar fyrir mjólkandi kýr. Ávinningurinn er mælanlegur og skilar sér beint í afurðum og heilsu:
- Hærri mjólkurnyt – að meðaltali +0,8 kg/dag samkvæmt rannsóknum
- Lægri frumutala – minna af júgurbólgu og sýkingum
- Betri nýting á kalki og fosfór – sem styður við bein, klaufir og vöðvastarfsemi
- Sterkara ónæmiskerfi – sem skilar sér í minni veikindum og lyfjanotkun
- Aukin frjósemi – fleiri kýr festa fang fyrr
- Stöðugari D-vítamínstaða í blóði – sem heldur líkamanum í jafnvægi yfir lengri tíma
Geldstöðukögglar
Geldstöðukögglar Fóðurblöndunnar – Sérhæft fóður fyrir mikilvægasta tímabilið
Til að nýta alla kosti Hy-D® hefur Fóðurblandan þróað sérhæft fóður fyrir geldkýr – Geldstöðukögglana. Þeir innihalda ekki bara Hy-D®, heldur einnig hágæða prótein, E-vítamín, bíótín og magnesíum – allt efni sem styður við heilsu og frammistöðu.

Geldstöðukögglar
Til að nýta alla kosti Hy-D® hefur Fóðurblandan þróað sérhæft fóður fyrir geldkýr – Geldstöðukögglana. Þeir innihalda ekki bara Hy-D®, heldur einnig hágæða prótein, E-vítamín, bíótín og magnesíum – allt efni sem styður við heilsu og frammistöðu.
Hvað gera geldstöðukögglarnir?
- Innihalda Hy-D® sem tryggir hraðvirka og stöðuga D-vítamínupptöku fyrir sterkara ónæmiskerfi og betri nýtingu kalks
- Eru próteinríkir og innihalda hágæða amínósýrur sem byggja upp líkamsforða fyrir mjaltaskeið
- Eru bættir með E-vítamíni sem dregur úr bólgusvörun og styður við frumuvörn og mjólkugæði
- Innihalda bíótín sem styrkir klaufaveggi og dregur úr líkum á heltu, sem er algengt vandamál eftir burð
- Innihalda magnesíum sem styður við vöðvastarfsemi og efnaskipti, og dregur úr líkum á efnaskiptaóreglu
Ávinningur sem sést og mælist
- Kýr sem fá Geldstöðuköggla með Hy-D® sýna mælanlegan árangur:
- 25% meiri broddmjólk
- 20% hærra magn IgG mótefna
- Minni tíðni legbólgu og fastra hilda
- Aukning á mjólkurnyt eftir burð
Hvað kostar Hy-D®
- Hy-D® og Geldstöðukögglar Fóðurblöndunnar skila sýnilegum og mælanlegum árangri – sem réttlætir fjárfestinguna:
- 200 ml meiri mjólk á dag á hverja kú eftir burð
- Sterkari kálfar – flutningur mótefna í broddi eykst og skilar sér í betri byrjun kálfs
- Einn heilbrigður kálfur með betra ónæmi getur í raun borið kostnaðinn uppi
Þessi árangur nær yfir allan kostnað við Geldstöðuköggla í 3 vikur og viðbót Hy-D® í mjólkurfóðri.
Ráðlagður dagskammtur
Mælt er með 3 kg á dag síðustu 3 vikurnar fyrir burð.