Bætiefni fyrir sauðfé

Fóðurlýsi kaldhreinsað 5L

VNR: 9019

Á lager

8.190 kr. með vsk

Fóðurlýsi er ríkt af náttúrulegum A- og D-vítamínum. Búfénaður sem fær daglega lýsi ber þess augljós merki m.a er feldurinn glansandi og hárafar fallegra. D-vítamín gerir upptöku kalks mögulega og fituskortur gerir síður vart við sig hjá dýrum sem fá reglulega lýsi. A-vítamín heldur slímhúð heilli og er nauðsynlegt sjóninni. Hvert gramm af lýsi inniheldur 37 kJ.

Cobalt, Selen og vítamín B12

VNR: NT3496

Á lager

19.364 kr. með vsk

h 2,5ltr

Multi Lamb Rapid – 495ml

VNR: NT0201

Á lager

10.011 kr. með vsk

Kemur ám á fætur og í át á skömmum tíma

Multi Lamb Rapid er skjótvirkt næringarefnasamband fyrir ær sem ganga með mörg lömb. 45 ml skammtur kemur jafnævægi að nýju á orku- og næringarstöðu áa á skjótvirkan máta. Ær sem eru örþreyttar geta náð sér að fullu innan nokkurra klukkustunda.

  • þegar kalt er og lautt og fóður ekki nægjanlega gott né orkumikið nýta ær varaforða sinn fyrir lömbin.
  • slíkt leiðir til fórstureitrunar (súrdoða)
  • Fóstureitrun getur leitt til dauða áa og/eða lamba fái þær ekki meðhöndlun
  • Með Multi Lamb Rapid er hægt að meðhöndla ær á árangursríkan og skjótvirkan hátt.

Inniheldur: Própan 1,2 díól, reyrmelassa. amínósýrur, vítamín og steinefni.

Lamb Kick start 100ml [6]

VNR: NT0650

Á lager

6.448 kr. með vsk

Lamba kick start er fljótvirkt orku- og næringarbætiefni fyrir veikburða eða nýfædd lömb. Best er að nota Lamba kick start fyrstu þrjár vikurnar eftir að lambið fæðist. Það eykur líkurnar á því að lamb dafni og stuðlar þannig að hagkvæmni og árangri.

Smellið hér fyrir nánari upplýsingar

Lamboost

VNR: 5231010

Á lager

6.140 kr. með vsk

Bovisal Rumen

VNR: 5228041

Á lager

2.046 kr. með vsk

Fæðubótarefni til þess að minnka líkur á súrdoða hjá nautgripum, sauðfé og geitum.

Hjálpar við að endurheimta eðlilega vambarstarfsemi.

Skammtastærðir:
Nautgripir: 1 flaska
Sauðfé/Geitur: 1/2 flaska
Endurtakist á 12klst fresti, ef þörf krefur, þar til eðlilegri vambarstarfsemi er náð.

Smellið hér fyrir nánari upplýsingar

Bovisal Keto

VNR: 5228044

Á lager

2.184 kr. með vsk

610 ml

Fæðubótarefni fyrir mjólkurkýr og ær til að minnka líkur á súrdoða.

Chevivit E-Selen/sR f.lömb-kálfa -kiðlinga

VNR: 5228050

Á lager

2.721 kr. með vsk

Inniheldur Selen E,A og D3 vítamín

Fyrir lömb, kálfa og kiðlinga.

Fóstur jórturdýra fá hvorki nægjanlegt E-vítamín né selen. Nýfæddir kálfar, lömb og kiðlingar þurfa því viðbótarskammt af þessum efnum til að forðast skort og tryggja eðlilegan þroska.

Boviferm Plus SID

VNR: 5228040

Á lager

550 kr. með vsk

Gott við skitu

Kemur stöðugleika á jafnvægi vatns og salta.

Inniheldur :

  • Oralin, lífrænt bætiefni sem jafnar þarmaflóruna.
  • Sölt.
  • Sýrujafnandi efni.
  • Mjólkursýrubakteríur. Mucin (prótein sem vernda slímhimnur).
  • Umfangsaukandi efni og eykur þar með vatnsupptöku.

Notist ef smitpressa er til staðar, á meðan að á skitu stendur og/eða þegar kálfur/lamb er að ná sér eftir meltingatruflanir.

Skammtastærð: Blandið 1 bréf (115mg) í 2 lítra af vatni og bætið við 0,5-4L af mjólk eða mjólkurdufti.
Gefist tvisvar sinnum daglega.

Má einnig gefa lömbum ef þau fá skitu – passa þarf að þynna blönduna meira miðað við lömb.

Smellið hér fyrir nánari upplýsingar

Fæðissprauta m.latexslöngu

VNR: NT0041

Á lager

1.791 kr. með vsk

Inniheldur sprautu og gúmmíslöngu.

Notað til að gefa lömbum brodd og mjólk

60ml sprauta sem auðveldar að gefa broddinn skjótt og á þægilegan hátt

Latex slangan minnkar slysahættu við inngjöf hjá lambinu og mýkir þegar rétt
staðsett.

Ovi-top

VNR: 5010275

Á lager

15.719 kr. með vsk

Ovitop eru forðastautar fyrir sauðfé og geitur sem að leysast hægt upp í vömbinni. Virka í um 4 mánuði.

Innihalda joð, kóbalt, mangan, zink og selen.

Notkunarleiðbeiningar / skammtastærð:

Sauðfé og geitur fyrir 40 kg: 2 stautar einnu sinni mí mánuði fyrir fengitíma og aftur einum mánuði fyrir sauðburð.

Sauðfé og geitur undir 40 kg: Gefinn er 1 stautur.

Orkustampur 22,5 kg

VNR: 9443

Á lager

9.908 kr. með vsk

Orkustampur er steinefnastampur sem er sérhannaður til að auka orku og meltanleika

  • Auðkennist með rauðu loki.
  • Eykur matarlyst
  • Eykur meltanleika um allt að 10%.
  • Bætir upp efnaskort
  • Eykur upptöku á próteini og orku.

Orkustampur er fyrir jórturdýr, kindur og kýr.
Orkustampur hentar hestum ekki.

Lifeline lömb og ær

VNR: 9477

Á lager

12.353 kr. með vsk

22,5 kg.
Lifeline Lamb & Ewe steinefnastampurinn er einstakur að sinni gerð þar sem samsetningu hans er ætlað að tryggja sem best heilbrigði ófæddra lamba og lambánna um leið.

Sauðfjárstampur 15 kg

VNR: 9481

Á lager

6.981 kr. með vsk

Alhliða sauðfjárstampur – sérframleitt fyrir íslenskt sauðfé

  • Hagstætt hlutfall af kalsíum, magnesíum og fosfór.
  • Hentar fyrir fé á öllum aldri, allan ársins hring.
  • Uppfyllir steinefna/snefilefna/vítamín þarfir gripanna.

Kalksaltsteinn 7,5 kg

VNR: 9340

Á lager

4.335 kr. með vsk

Kalksalt ehf. er eina fyrirtækið á Íslandi sem framleiðir saltbætiefnafötur fyrir búfénað en saltið í bætiefnafötunum kemur frá fiskverkunum í nágrenninu.

Gamlir bændur þekkja vel gæðin sem felast í salti sem hefur komist í návígi við fisk, því saltið dregur í sig prótein, vítamín og snefilefni frá fisknum sem hefur svo góð áhrif á kýr, kindur og hesta.

Kalkþörungarnir sem varan dregur nafn sitt af, koma frá Kalkþörungaverksmiðjunni á Bíldudal. Kalk hefur góð áhrif á vöxt beina, tanna, ullar og felds.

Kúabændur sem nota kalksalt hafa einnig talað um að frumutala hafi lækkað og fita hækkað hjá kúnum eftir að þeir fóru að gefa kalksalt.

Kalksaltið er steypt í melassa sem gerir það afar lystugt. Að auki eru í því selen, A vítamín, E vítamín og D3.

Magnesíum selenstampur 25 KG.

VNR: 9455

Á lager

9.800 kr. með vsk

Magnesíum/Selenstampurinn er steinefnastampur sem er sérhannaður til að auka aðgengi að magnesíum og seleni.

  • Auðkennist með bláu loki.
  •  Magnesíumríkur
  • Hátt hlutfall af Seleni
  • Ríkulegt magn af nauðsynlegum steinefnum,snefilefnumog vítamínum.