Grasfræblöndur

Grasfræblöndur

Landgræðslublanda 1 kg

VNR: 2000609

Á lager

2.089 kr. með vsk

Grasfræ til landgræðslu.

Notkunasviðið er allt frá því að örva gróðurframvindu á örfoka landi til þess að auka magn og gæði gróðurs.

Við uppgræðslu þarf yfirleitt að nota fræ og áburð í sömu skömmtum og notaðir eru við uppgræðslu á gróðurlausu landi.

notið 4 – 5 kg af Græði 6 eða Blákorni á 100m2

Smellið hér til að fá nánari upplýsingar.

Landgræðslublanda 15 kg

VNR: 2000614

Á lager

29.481 kr. með vsk

Langræðslufræ

Landgræðslublanda –  Grasfræ til landgræðslu – 15kg 

Ný blanda með túnvingul, vallarsveifrasi og rýgresi.
Algengt sáðmagn er 2-3kg af fræinu á 100m2.
Nota skal 4-5kg af áburði(Blákorn eða Græðir 6) með fræinu. Blanda hvoru tveggja saman og dreifa.
Óráðlegt er að sá í miklum þurrkum ef ekki er hægt að vökva. Forðist að sá ef það er mjög hvasst.
Hentugast er að sá frá maí fram í miðjan ágúst.

Grasfræbl. Vallarfox 15 kg.

VNR: 2000535

Á lager

16.988 kr. með vsk

Vallarfoxblandan – 15kg

Á sínum tíma báðu ráðunautar sérstaklega um svona blöndu. Vallarfoxgras er uppskerumikið, með gott fóðurgildi og er afar lystug grastegund. Með því að blanda þessum vallarfoxyrkjum saman næst góður fjölbreytileiki.

Sáðmagn: 25-30 kg/ha.

Grasfræbl.Beit og heyfengur 15 kg.

VNR: 2000537

Á lager

17.360 kr. með vsk

Grasfræblanda – Beit og heyfengur 15kg

Söluhæsta grasfræblandan okkar undanfarin ár. Gefur góða beit og slátt með góðu fóðurgildi. Vallarfoxgras, sem er uppistaðan í blöndunni, er uppskerumikið en ekki skriðult. Vallarsveifgras er skriðul jurt, sem fyllir upp í opinn svörð og hóf- eða klaufaför eftir ágang og beit.

Sáðmagn: 25-30 kg/ha.

Grasfræbl.Heyfengur 15 kg.

VNR: 2000538

Á lager

18.476 kr. með vsk

Grasfræblanda – Heyfengur 15 kg 

Eins og nafnið bendir til er þetta uppskerumikil blanda með 35% innihald af hávingli. Hávingull er uppskerumikið yrki og gefur góðan endurvöxt, ásamt úrvals vallarfoxyrkjum. Góður endurvöxtur sem gefur góðan seinni slátt.

Sáðmagn 25-30 kg/ha.

Garðablanda – Grasfræ 15 kg

VNR: 2000622

Á lager

29.481 kr. með vsk

Hentar fyrir flesta húsgarða.

Grasfræ fyrir garðflatir

Blandan hentar vel í flesta húsgarða. Blandan þolir vel snöggan  slátt. Til að viðhalda  fínleikanum er mikilvægt að  garðurinn fari ekki loðinn undir vetur. Gott getur verið  að  sá yfir á vorin til að viðhalda þéttri og þolinni gróðurþekju. Ráðlagt sáðmagn er um 1–2 kg/100 m2 allt eftir þéttleika.

Fræin eru húðuð með nauðsynlegum náttúrulegum plöntuhormónum og smá köfnunarefni. Við það fellur fræið vel niður ásamt því að fjúka ekki í rokinu. Plöntuhormónarnir og köfnunarefnið hjálpa vel við að láta grasið spíra mun fljótar.

Smáragrasblandan 15 kg – Forsmituð

VNR: 2000539

Á lager

20.274 kr. með vsk

Með smáraræktun fæst aukin prótein uppskera en einnig aukin binding köfnunarefnis í jarðvegi og getur því minnkað þarfir fyrir N í áburði. Lægri þörf fyrir aðkeypt prótein leiðir til meiri hagkvæmni á búinu. Gott samspil rauðsmára og hvítsmára gefur góða uppskeru, góðan endurvöxt og hvítsmárinn dreifir úr sér með jarðrenglum svo þekjan verður góð.

Sáðmagn 25-30 kg/ha.

Grasfræbl. Sígild 15 kg.

VNR: 2000536

Á lager

16.244 kr. með vsk

Grasfræblanda – Sígild 15 kg 

Upplagt til ísáningar!

Góð blanda sem hefur komið vel út hjá bændum. Góð svörun í endurræktinni. Breitt úrval vallarfoxyrkja, ásamt fjölæru rýgresi. Ferlitna rýgresi gefur meiri uppskeru og byggir upp gott gróffóður með vallarfoxgrasinu. Harðger og vetrarþolin blanda.

Sáðmagn: 20-25 kg/ha.

Garðablanda – Grasfræ 1 kg

VNR: 2000621

Á lager

2.089 kr. með vsk

Hentar fyrir flesta húsgarða.

Grasfræ fyrir garðflatir

Blandan hentar vel í flesta húsgarða. Blandan þolir vel snöggan  slátt. Til að viðhalda  fínleikanum er mikilvægt að  garðurinn fari ekki loðinn undir vetur. Gott getur verið  að  sá yfir á vorin til að viðhalda þéttri og þolinni gróðurþekju. Ráðlagt sáðmagn er um 1–2 kg/100 m2 allt eftir þéttleika.

Fræin eru húðuð með nauðsynlegum náttúrulegum plöntuhormónum og smá köfnunarefni. Við það fellur fræið vel niður ásamt því að fjúka ekki í rokinu. Plöntuhormónarnir og köfnunarefnið hjálpa vel við að láta grasið spíra mun fljótar.

Sígild smáragrasblanda 15 kg

VNR: 2000531

Á lager

18.414 kr. með vsk

Forsmituð smáragrasblanda sem sameinar vallarfoxyrki, fjölært rýgresi og 40% rauð- og hvítsmára. Hentar vel þar sem markmiðið er gott gróffóður og aukið prótein í uppskeru.

Ráðlagt sáðmagn er 25–30 kg/ha.

Happy Lawn grasfræblanda

VNR: 2000517

Á lager

4.799 kr. með vsk

Barenbrug Happy Lawn er snjöll blanda af grasfræi og blómfræi sem gerir þér kleift að fá græna, þétta torfu og um leið lit og líf í garðinum. Blómin eru sérstaklega valin þannig að þau þola reglulegan slátt og koma aftur og aftur, sem gerir það einfalt að halda garðinum fallegum án flókins viðhalds.