Grasfræblöndur
Sýna allt 11 niðurstöðurSorted by latest
Grasfræblöndur
Grasfræbl. Vallarfox 15 kg.
Á lager
16.988 kr. með vskVallarfoxblandan – 15kg
Á sínum tíma báðu ráðunautar sérstaklega um svona blöndu. Vallarfoxgras er uppskerumikið, með gott fóðurgildi og er afar lystug grastegund. Með því að blanda þessum vallarfoxyrkjum saman næst góður fjölbreytileiki.
Sáðmagn: 25-30 kg/ha.
Grasfræbl.Beit og heyfengur 15 kg.
Á lager
17.360 kr. með vskGrasfræblanda – Beit og heyfengur 15kg
Söluhæsta grasfræblandan okkar undanfarin ár. Gefur góða beit og slátt með góðu fóðurgildi. Vallarfoxgras, sem er uppistaðan í blöndunni, er uppskerumikið en ekki skriðult. Vallarsveifgras er skriðul jurt, sem fyllir upp í opinn svörð og hóf- eða klaufaför eftir ágang og beit.
Sáðmagn: 25-30 kg/ha.
Grasfræbl.Heyfengur 15 kg.
Á lager
18.476 kr. með vskGrasfræblanda – Heyfengur 15 kg
Eins og nafnið bendir til er þetta uppskerumikil blanda með 35% innihald af hávingli. Hávingull er uppskerumikið yrki og gefur góðan endurvöxt, ásamt úrvals vallarfoxyrkjum. Góður endurvöxtur sem gefur góðan seinni slátt.
Sáðmagn 25-30 kg/ha.
Smáragrasblandan 15 kg – Forsmituð
Á lager
20.274 kr. með vskMeð smáraræktun fæst aukin prótein uppskera en einnig aukin binding köfnunarefnis í jarðvegi og getur því minnkað þarfir fyrir N í áburði. Lægri þörf fyrir aðkeypt prótein leiðir til meiri hagkvæmni á búinu. Gott samspil rauðsmára og hvítsmára gefur góða uppskeru, góðan endurvöxt og hvítsmárinn dreifir úr sér með jarðrenglum svo þekjan verður góð.
Sáðmagn 25-30 kg/ha.
Grasfræbl. Sígild 15 kg.
Á lager
16.244 kr. með vskGrasfræblanda – Sígild 15 kg
Upplagt til ísáningar!
Góð blanda sem hefur komið vel út hjá bændum. Góð svörun í endurræktinni. Breitt úrval vallarfoxyrkja, ásamt fjölæru rýgresi. Ferlitna rýgresi gefur meiri uppskeru og byggir upp gott gróffóður með vallarfoxgrasinu. Harðger og vetrarþolin blanda.
Sáðmagn: 20-25 kg/ha.
Landgræðslublanda 1 kg
Á lager
2.089 kr. með vskGrasfræ til landgræðslu.
Notkunasviðið er allt frá því að örva gróðurframvindu á örfoka landi til þess að auka magn og gæði gróðurs.
Við uppgræðslu þarf yfirleitt að nota fræ og áburð í sömu skömmtum og notaðir eru við uppgræðslu á gróðurlausu landi.
notið 4 – 5 kg af Græði 6 eða Blákorni á 100m2
Landgræðslublanda 15 kg
Á lager
29.481 kr. með vskLangræðslufræ
Landgræðslublanda – Grasfræ til landgræðslu – 15kg
Ný blanda með túnvingul, vallarsveifrasi og rýgresi.
Algengt sáðmagn er 2-3kg af fræinu á 100m2.
Nota skal 4-5kg af áburði(Blákorn eða Græðir 6) með fræinu. Blanda hvoru tveggja saman og dreifa.
Óráðlegt er að sá í miklum þurrkum ef ekki er hægt að vökva. Forðist að sá ef það er mjög hvasst.
Hentugast er að sá frá maí fram í miðjan ágúst.
Garðablanda – Grasfræ 15 kg
Á lager
29.481 kr. með vskHentar fyrir flesta húsgarða.
Grasfræ fyrir garðflatir
Blandan hentar vel í flesta húsgarða. Blandan þolir vel snöggan slátt. Til að viðhalda fínleikanum er mikilvægt að garðurinn fari ekki loðinn undir vetur. Gott getur verið að sá yfir á vorin til að viðhalda þéttri og þolinni gróðurþekju. Ráðlagt sáðmagn er um 1–2 kg/100 m2 allt eftir þéttleika.
Fræin eru húðuð með nauðsynlegum náttúrulegum plöntuhormónum og smá köfnunarefni. Við það fellur fræið vel niður ásamt því að fjúka ekki í rokinu. Plöntuhormónarnir og köfnunarefnið hjálpa vel við að láta grasið spíra mun fljótar.
Garðablanda – Grasfræ 1 kg
Á lager
2.089 kr. með vskHentar fyrir flesta húsgarða.
Grasfræ fyrir garðflatir
Blandan hentar vel í flesta húsgarða. Blandan þolir vel snöggan slátt. Til að viðhalda fínleikanum er mikilvægt að garðurinn fari ekki loðinn undir vetur. Gott getur verið að sá yfir á vorin til að viðhalda þéttri og þolinni gróðurþekju. Ráðlagt sáðmagn er um 1–2 kg/100 m2 allt eftir þéttleika.
Fræin eru húðuð með nauðsynlegum náttúrulegum plöntuhormónum og smá köfnunarefni. Við það fellur fræið vel niður ásamt því að fjúka ekki í rokinu. Plöntuhormónarnir og köfnunarefnið hjálpa vel við að láta grasið spíra mun fljótar.
Sígild smáragrasblanda 15 kg
Á lager
18.414 kr. með vskForsmituð smáragrasblanda sem sameinar vallarfoxyrki, fjölært rýgresi og 40% rauð- og hvítsmára. Hentar vel þar sem markmiðið er gott gróffóður og aukið prótein í uppskeru.
Ráðlagt sáðmagn er 25–30 kg/ha.
Happy Lawn grasfræblanda
Á lager
4.799 kr. með vskBarenbrug Happy Lawn er snjöll blanda af grasfræi og blómfræi sem gerir þér kleift að fá græna, þétta torfu og um leið lit og líf í garðinum. Blómin eru sérstaklega valin þannig að þau þola reglulegan slátt og koma aftur og aftur, sem gerir það einfalt að halda garðinum fallegum án flókins viðhalds.