Túnin
Sýna 1–18 af 229 niðurstöður
Raða eftir
Sía eftir verði
Stærð
Birgðastaða
Fáanlegt í verslun
Blákorn Fljótandi 2.5 L
Á lager
3.990 kr. með vskBlákorn fljótandi er alhliða, fljótandi NPK-áburður fyrir garðinn. Hann er klórsnauður og inniheldur brennistein og bór, sem styðja við heilbrigðan vöxt plantna og góða næringarupptöku. Áburðurinn hentar vel fyrir grasflatir, blómabeð, matjurtagarða, skrautrunna og tré.
Áburðurinn gefur plöntum nauðsynlega næringu í gegnum bæði blöð og rótarkerfi og verkar hratt. Hann er þægilegur í notkun þar sem brúsinn tengist beint við garðslöngu og auðvelt er að dreifa honum jafnt yfir svæðið.
Blómablandan 1 kg
Á lager
38.440 kr. með vskBlandаn er lágvaxin og fjölær með litríkum blómum, og er sérstaklega þróuð með sjálfbærni í huga – fyrir ræktun útsvæða, hringtorga, umferðareyja og sambærilegra svæða.
Markmiðið er að auka líffræðilegan fjölbreytileika og draga úr umhirðukostnaði hjá bæjarfélögum. Sambærilegar blöndur hafa reynst vel í norðurhluta Finnlands, sem gefur góð fyrirheit um að yrkinin þoli íslenskt veðurfar og jarðveg.
Sáning Vor, sumar og haust. Sáningardýpt 1 cm – tryggið gott sáðbeð og rúllið eftir sáningu. Til að fá jafna frædreifingu er mælt með því að forblanda fræin með hreinum sandi.
Magn
- Með grasi: 4–5 g/m² grasfræ + 0,4–0,5 g/m² blómablanda
- Eingöngu blómablanda: 15 kg/ha / 1,5 g/fm²
Pakkning: 1 kg
Ertur Ingrid – 700 kg
Á lager
162.229 kr. með vskUppskerumiklar fóðurertur sem mynda gular baunir við fullan þroska. Ingrid er með sterkbyggðan og langan stöngul og ver sig því ágætlega gegn illgresi.
Ráðlagt sáðmagn er 200–250 kg/ha.
Sáðvörur í stórsekkjum er ekki hægt að versla í vefverslun. Hafið samband við sölumenn í síma 570 9800 fyrir nánari upplýsingar.
Ertur Ingrid 25.KG
Á lager
5.891 kr. með vskUppskerumiklar fóðurertur sem mynda gular baunir við fullan þroska. Ingrid er með sterkbyggðan og langan stöngul og ver sig því ágætlega gegn illgresi.
Ráðlagt sáðmagn er 200–250 kg/ha.
Grænf. V-rýgresi. Danergo 25 kg.
Á lager
12.988 kr. með vskFerlitna vetrarrýgresi sem hefur reynst vel hérlendis. Hentar vel þar sem markmiðið er öflug og áreiðanleg grænfóðurrækt með góðu fóðurgildi.
Ráðlagt sáðmagn er 30–40 kg/ha.
Grænf.S.hafrar. Belinda 25 kg
Á lager
4.687 kr. með vskSumarhafrar sem henta vel þar sem vaxtartími er nægur, þó yrkið sé fremur seint til þroska miðað við önnur hafrayrki.
Ráðlagt sáðmagn er 180–200 kg/ha.
Grænf.S.hafrar. Belinda 600 kg
Á lager
110.930 kr. með vskSumarhafrar sem henta vel þar sem vaxtartími er nægur, þó yrkið sé fremur seint til þroska miðað við önnur hafrayrki.
Ráðlagt sáðmagn er 180–200 kg/ha.
Sáðvörur í stórsekkjum er ekki hægt að versla í vefverslun. Hafið samband við sölumenn í síma 570 9800 fyrir nánari upplýsingar.
Grænf.V.repja Barcoli 25 kg.
Á lager
20.507 kr. með vskVetrarrepja
Sáðmagn kg.ha. = 10
Vaxtadagar = 90120
Hollenskur stofn sem reynst hefur vel hér á landi.
Vetrarrepja Barcoli 90-120 dagar
Grasf.fjölært rýgresi Birger 20 kg
Á lager
12.890 kr. með vskFerlitna fjölært rýgresi með fínt vetrarþol sem getur gefið bragðgott og næringarríkt fóður.
Ráðlagt sáðmagn er 25–35 kg/ha.
Grasf.Túnving. Barustic 15 kg
Á lager
9.667 kr. með vskHarðgert túnvingulsyrki sem hentar vel fyrir garðflatir og landgræðslu.
Ráðlagt sáðmagn er 25–30 kg/ha.
Grasfr. Hvítsmári Edith 10 kg – Forsmitaður
Á lager
24.478 kr. með vskForsmitaður hvítsmári sem gefur góða uppskeru og hefur nokkuð gott vetrarþol. Hentar vel þar sem markmiðið er að auka gæði beitar eða blanda smára inn í grasrækt.
Ráðlagt sáðmagn er 7–11 kg/ha.
Grasfr.fjölært rýgresi Mathilde 20 kg.
Á lager
13.509 kr. með vskVetrarþolið og uppskerumikið fjölært rýgresi sem hentar bæði eitt og sér og með vallarfoxgrasi.
Ráðlagt sáðmagn er 25–35 kg/ha.
Grasfr.fjölærtrýgr.Calibra 25
Á lager
13.509 kr. með vskDökkgrænt og fíngert fjölært rýgresi sem gefur góða uppskeru og hentar bæði til sláttar og beitar.
Ráðlagt sáðmagn er 25–35 kg/ha.
Grasfr.vallafox. Rakel 10 kg
Á lager
9.895 kr. með vskUppskerumikið vallarfoxyrki sem gefur meiri endurvöxt en norðlæg yrki. Hentar vel þar sem markmiðið er góður vöxtur og meiri endurnýjun yfir tímabilið.
Ráðlagt sáðmagn er 20–25 kg/ha.
Graskorn Fljótandi – 2.5 L
Á lager
4.590 kr. með vskGraskorn fljótandi er fljótvirkur áburður fyrir grasflatir sem hjálpar til við að viðhalda góðri næringu grasplantna og stuðla að grænni, þéttri og heilbrigðri flöt. Áburðurinn er NPK-blanda þar sem hlutföll aðalnæringarefnanna eru miðuð við meðalþörf grasflatarinnar. Hann nýtist fljótt þar sem næringin berst til grassins bæði í gegnum blöð og rótarkerfi.
Varan er einföld í notkun og hentar vel fyrir þá sem vilja bera á grasflötina á þægilegan og jafnan hátt. Brúsinn er hristur fyrir notkun, tengdur við garðslöngu og áburðinum dreift jafnt yfir svæðið.
Hafrar til þroska – Cilla 25 kg.
Á lager
5.013 kr. með vskFljótþroska hafrayrki sem hefur verið lengi á íslenska markaðnum og notið vinsælda. Yrkið hefur reynst áreiðanlegt í ræktun og gefur góða uppskeru.
Ráðlagt sáðmagn er 180–200 kg/ha.
Hafrar til þroska – Cilla 600 kg
Á lager
119.524 kr. með vskFljótþroska hafrayrki sem hefur verið lengi á íslenska markaðnum og notið vinsælda. Yrkið hefur reynst áreiðanlegt í ræktun og gefur góða uppskeru.
Ráðlagt sáðmagn er 180–200 kg/ha.
Sáðvörur í stórsekkjum er ekki hægt að versla í vefverslun. Hafið samband við sölumenn í síma 570 9800 fyrir nánari upplýsingar.



