Blákorn Fljótandi 2.5 L
Blákorn fljótandi er alhliða, fljótandi NPK-áburður fyrir garðinn. Hann er klórsnauður og inniheldur brennistein og bór, sem styðja við heilbrigðan vöxt plantna og góða næringarupptöku. Áburðurinn hentar vel fyrir grasflatir, blómabeð, matjurtagarða, skrautrunna og tré.
Áburðurinn gefur plöntum nauðsynlega næringu í gegnum bæði blöð og rótarkerfi og verkar hratt. Hann er þægilegur í notkun þar sem brúsinn tengist beint við garðslöngu og auðvelt er að dreifa honum jafnt yfir svæðið.
3.990 kr. með vsk
Á lager
Lagerstaða
- Reykjavík: Til á lager
Á lager
Eiginleikar:
- Alhliða fljótandi áburður fyrir garðinn
- Klórsnauður NPK-áburður með brennisteini og bór
- Hentar fyrir grasflatir, beð, matjurtir, runna og tré
- Næring berst til plantna í gegnum blöð og rætur
- Fljótvirk næring – plöntur taka við köfnunarefni strax
- Brúsi tengist við garðslöngu fyrir einfalda dreifingu
Notkun:
Hristið brúsann fyrir notkun, tengið við garðslöngu og dreifið jafnt yfir svæðið. Berið á snemma vors og aftur um miðsumar. Á matjurtabeð er betra að nota minna magn í einu og oftar. Notið hanska og fylgið nánari leiðbeiningum á umbúðum.
