Landbúnaður
Sýna 127–144 af 274 niðurstöður
Raða eftir
Sía eftir verði
Litir
Stærð
Birgðastaða
Sauðfjárstampur 15 kg
Á lager
Alhliða sauðfjárstampur – sérframleitt fyrir íslenskt sauðfé
- Hagstætt hlutfall af kalsíum, magnesíum og fosfór.
- Hentar fyrir fé á öllum aldri, allan ársins hring.
- Uppfyllir steinefna/snefilefna/vítamín þarfir gripanna.
Lifeline geldstöðustampur 22,5
Á lager
Stampurinn er fyrir kelfdar kýr, fyrir burð. Eflir ónæmi ófæddra kálfa.
• Gefið stampinn 2-6 vikum fyrir burð
• Ekki er mælt með að gefa önnur stein og snefilefni á meðan gefið er Lifline.
• Inniheldur lágt kalsíum
• Ekki fyrir mjólkandi kýr
• Mælt er með að gefa daglega 150 g. pr. kú.
Ábreiða fyrir kálfa
Á lager
8.973 kr. með vsk- Slitsterkt pólýester
- 3000 mm vatnsheldni
- Góð útöndun sem kemur í veg fyrir of mikla svitamyndun
- Má þvo við 30°C
- Styður við ónæmiskerfið fyrstu dagana og kemur í veg fyrir niðurgangsvandamál og aðra sjúkdóma
- Minnkar kuldaálag hjá nýfæddum kálfum
- Kálfar eru yfirleitt með kálfateppi í 3 til 4 vikur og lengur ef þörf krefur
Lifeline lömb og ær
Á lager
22,5 kg.
Lifeline Lamb & Ewe steinefnastampurinn er einstakur að sinni gerð þar sem samsetningu hans er ætlað að tryggja sem best heilbrigði ófæddra lamba og lambánna um leið.
Burðartjakkur
Á lager
89.990 kr. með vskVINK Birth Aid er öflugur og áreiðanlegur burðartjakkur fyrir kýr, sem veitir allt að 300 kg togkraft — hentar vel þegar á að hjálpa kvígjum eða kúm við fæðingu á öruggan og skilvirkan hátt.
Gandur Húðsmyrsl 100 ml.
Á lager
5.290 kr. með vskHúðsmyrsl er græðandi og mýkjandi smyrsl á sár, múkk og sumarexcem hjá hestum.
Við notkun myndar það himnu yfir sárum og mýkir upp brúnir sem flýtir því að sárin lokist.
Hestastampur 12,5 kg.
Á lager
Hestastampurinn er sérhannaður fyrir íslenska hestinn. Fjölbreytt næringarefni. Upplagt er að hafa frjálsan aðgang að stampinum með gróffóðrinu. Nauðsynleg vítamín og sölt.
KNZ Sauðfjársteinn (Sheep)10kg
Á lager
KNZTM SHEEP – saltsteinn sem er sérsniðinn að þörfum sauðfjár.
Góð viðbót við steinefnabúskap fjársins.
Inniheldur salt, magnesíum, zinc, járn, joð og selen.
Salt er nauðsynlegt öllum skepnum en aukaefnin í þessum stein stuðla að betri meltingu, bætingu á tauga- og vöðvakerfi, styrkir bein og bætir almenna heilsu sauðfjár.
KNZ Hestasteinn 2 kg
Á lager
Hestasteinn er frábær viðbót fyrir hestinn þinn.
Saltsteinninn inniheldur selen og fleiri nauðsynleg snefil- og steinefni.
Kalksaltsteinn m/hvítlauk 7,5 kg
Á lager
Hvítlaukssteinn er 7.5 kg saltbætiefnasteinn sem passar bæði í hefðbundin saltsteinaform og er hægt að hengja upp. Kúabændur sem nota kalksalt með hvítlauk hafa séð frumutöluna lækka og efnainnihaldið aukast.
Kalksalt m/Lýsi 15 kg Lýsissteinn
Á lager
Kalksalt með 5% lýsi
Kalksalt 15kg.
Á lager
Kalksalt ehf. er eina fyrirtækið á Íslandi sem framleiðir bætiefnafötur og steina. Kalksalt er fyrir kindur, kýr og hesta. Saltið kemur frá saltfiskverkunum á Vestfjörðum og er afurð sem yfirleitt er hent, þar sem það inniheldur fiskafganga. Saltið dregur í sig snefilefni úr fisknum sem er einkar hollt fyrir skepnur. Einnig eru kalkþörungar í kalksalti en þeir eru góðir fyrir feld, ull og meltingu jórturdýra. Kalksalt ehf. er staðsett á Flateyri, notar eingöngu salt af Vestfjörðum og heldur þannig kolefnissporinu í lágmarki.
Kalksalt m/Hvítlauk 15kg.
Á lager
Kalksalt með hvítlauk er afar vinsælt hjá kúabændum og kúm þar sem hvítlaukurinn hefur bólgueyðandi áhrif og frumutala kúa lækkar við notkun þess og fitan hækkar. Hestar og eigendur þeirra hafa einnig verið hrifnir af hvítlauknum því hann er sérstaklega góður fyrir feld hrossanna og meltingu.
Kalksalt ehf. er eina fyrirtækið á Íslandi sem framleiðir bætiefnafötur og steina. Kalksalt er fyrir kindur, kýr og hesta. Saltið kemur frá saltfiskverkunum á Vestfjörðum og er afurð sem yfirleitt er hent, þar sem það inniheldur fiskafganga. Saltið dregur í sig snefilefni úr fisknum sem er einkar hollt fyrir skepnur. Einnig eru kalkþörungar í kalksalti en þeir eru góðir fyrir feld, ull og meltingu jórturdýra. Kalksalt ehf. er staðsett á Flateyri, notar eingöngu salt af Vestfjörðum og heldur þannig kolefnissporinu í lágmarki.
KNZ Kúasteinn (Standard) 10 kg
Á lager
KNZTM Standard
Saltsteinn fyrir búfénað úr hreinu salti.
Tilvalin viðbót við fóður, gras eða ef búfénaður fær ekki nægileg næringarefni.
KNZ Kúasteinn (Standard) 2 kg
Á lager
Saltsteinn fyrir búfénað úr hreinu salti.
Tilvalin viðbót við fóður, gras eða ef búfénaður fær ekki nægileg næringarefni.
Mjólkurduft fyrir ungkálfa – 25 kg. 18 á bretti
Á lager
14.658 kr. með vskKálfamjólkurduftið sem er framleitt af MS inniheldur hreinar íslenskar mjólkurafurðir.
Blandan hefur verið endurbætt með það fyrir augum að hún henti íslenskum kálfum enn betur en sú gamla gerði. Þetta felst í auknum lystugleika og þáttum sem stuðla að auknum vexti og góðu heilbrigði. Duftið er nú úðaþurrkað en þurrkunaraðferðin hjálpar til við að varðveita upphafleg gæði mjólkurinnar sem er notuð í blönduna. Úðaþurrkað duft er auk þess nokkuð auðleystara en valsaþurrkað duft.
Staldren þurrkefni 25kg /50 á bretti
Á lager
4.196 kr. með vskBylting í sóttvörnum!
Staldren er notað til að bera undir allan búfénað og gegnir hlutverki sínu á óviðjafnalegan hátt.
Virkar mjög vel gegn útbreiðslu á slefsýki.
Sonoff öryggismyndavél
Á lager
17.240 kr. með vsk- WiFi
- 1080p HD myndavél
- Nætursjón
- Hátalari
- Hljóðnemi
- Hreyfiskynjari
- Linsan getur snúist í 360 gráður