Landbúnaður

Heim » Vefverslun » Landbúnaður » Page 16

Tútta á Lambapela

VNR: NT0006

Á lager

322 kr. með vsk

Nettex tútta á lambapela.

Sérstaklega hönnuð „ISOPRENE“ tútta með sérhannaðari loku sem á að gera
gjöfina auðveldari.

Mjór stúturinn á að hvetja til örari móttöku lambanna.

Lambatútta á flösku

VNR: NT0168

Á lager

224 kr. með vsk

Tútturnar eru búnar til úr gæða gúmmíi til að viðhalda liðleika og styrk. Mjórendi túttunnar er sérhannaður til að hvetja til skjótrar viðtöku mjólkur. Hægter að snyrta endann til og stjórna þannig magni mjólkurflæðis. Tútturnar passa á flestar flöskur.

Feitur KK – Hy-D®

VNR: VP-FEITUR-KK-HY-D

Á lager

Price range: 147 kr. through 155 kr. með vsk

Kjarnfóður sem byggir á gömlu góðu Kúakögglunum, með viðbættri vambarvarðri fitu til aukningar á mjólkurfitu og auknu trénismagni. Gríðarlega orkuríkar tegundir sem henta hámjólka kúm, sérstaklega snemma á mjaltaskeiði. Inniheldur Hy-D®.

Til að bæta heilsufar gripanna og auka afurðir höfum við nú bætt HY-D®, lífvirku og hraðvirku D-vítamíni, í allar okkar fóðurblöndur fyrir mjólkandi kýr.

HY-D® nýtist beint og hraðar í líkama gripanna og skilar sér í mælanlegum ávinningi:

✔️ Meiri D-vítamín virkni – hærra D-vítamínmagn í blóði

✔️ Meiri og betri broddmjólk – sterkari og heilbrigðari kálfar

✔️ Hærri nyt – vegna bættra Ca efnaskipta

✔️ lægri frumutala – minni líkur á júgurbólgu

✔️ Öflugra ónæmiskerfi – lægri tíðni sýkinga

✔️ Bætt heilsufar og meiri afurðir

Sjá nánari upplýsingar um ávinning þess að nota Hy-D hér

Eingöngu selt í lausu.

Veldu kosti This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page

Feitur Extra 18 Hy-D®

VNR: 4401

Á lager

146 kr. með vsk

Feitur Extra 18 er orkurík blanda með 18% hrápróteininnihaldi. Inniheldur m.a. fiskimjöl. Gefur hentug AAT og PBV gildi í heildarfóðri. Feitur Extra 18 er frekar trénisrík tegund, sem stuðlar að hentugu vambarumhverfi og hjálpar til við mjólkurfitumyndun. Sérhannað kjarnfóður til þess að auka nyt, verðefni og bæta heilbrigði kúnna. Góð kögglagæði. Hentar vel í mjaltaþjóna og kjarnfóðurbása. Inniheldur Hy-D®.

Þetta fóður er eingöngu selt í lausu. 

Til að bæta heilsufar gripanna og auka afurðir höfum við nú bætt HY-D®, lífvirku og hraðvirku D-vítamíni, í allar okkar fóðurblöndur fyrir mjólkandi kýr.

HY-D® nýtist beint og hraðar í líkama gripanna og skilar sér í mælanlegum ávinningi:

✔️ Meiri D-vítamín virkni – hærra D-vítamínmagn í blóði

✔️ Meiri og betri broddmjólk – sterkari og heilbrigðari kálfar

✔️ Hærri nyt – vegna bættra Ca efnaskipta

✔️ lægri frumutala – minni líkur á júgurbólgu

✔️ Öflugra ónæmiskerfi – lægri tíðni sýkinga

✔️ Bætt heilsufar og meiri afurðir

Hrímnis leður gjörð

VNR: VP-HRÍMNIR-GJÖRÐ-COM

Uppselt

27.991 kr. með vsk

Þessi gjörð er hönnuð með þægindi hestsins í fyrirrúmi.

Hún er úr hágæða leðri og er með sterkum spennum úr ryðfríu stáli.

Lögun gjarðarinnar, mjúk svampfylling og teygjanlegar ólar gera hana sérstaklega þægilega fyrir hestinn. Gjörðina er auðvelt að stilla, situr vel og veitir sveigjanleika til hreyfingar og öndunar.

Spennur með rúllum og auka fjöðrum gera stillinguna einstaklega auðvelda og fljótlega.

Festingin fyrir ólinina er hönnuð til að koma í veg fyrir að hár eða húð klemmist.

Gjörðin er fáanleg í mismunandi lengdum.

Veldu kosti This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page

Hringamél 45° með bita 11,0

VNR: HRI061

Uppselt

19.990 kr. með vsk

Tengistykkið í þessu méli er snúið 45° til að tryggja betra aðlag og meiri þægindi fyrir hestinn. Stutt og ávalið tengistykkið fellur vel að munnholi hestsins og tiltölulega löngu hliðarnar minnka líkur á að þær dragist út úr munnvikunum við reið. Hliðarnar eru sveigðar fram á við.

Þar sem munnhol hestsins er að stórum hluta fyllt af öflugu tunguvöðvanum er lítið rými eftir fyrir mél. Þess vegna var þetta mél hannað í sléttari og þynnri útfærslu (12 mm) til að hámarka þægindi og draga úr þrýstingi.

Mélið er úr sérstöku nikkel-lausu koparblendi sem hvetur til aukinnar munnvatnsframleiðslu, sem leiðir til mýkri og sveiganlegri munns.

Egg-laga bitahringirnir gera mélið stöðugra og þægilegra fyrir hestinn, sérstaklega þegar notuð eru hliðstýrandi taumtök.

Hrímnir-mél eru unnin af hámarks nákvæmni og gæðum. Sérstök og elegant útskurðarmynstrin eru innblásin af fornum víkingahönnunum.

L-merkið á bitahringnum tryggir að alltaf sé auðvelt að festa mélið rétt við höfuðbúnaðinn – merkið á að vera á neðri vinstri hlið!

Mélið uppfyllir FEIF reglur og alþjóðlegar kröfur og er því leyfilegt á FEIF íþrótta- og kynbótakeppnum.

Höfuðleður Heritage D – Blue Lagoon

VNR: HRI011

Uppselt

17.490 kr. með vsk

Vinsælu Hrímnis Heritage höfuðleðrin hafa einstakt og glæsilegt útlit.

Hönnun þessara fallegu höfuðleðra er byggð á fornum myndum frá víkingatímanum og tengir nútíma íslenska hestinn við langa hefð hans.

Heritage höfuðleðrin eru úr hágæða leðri.

Spennurnar eru úr ryðfríu stáli með rúllum sem gera kleift að stilla auðveldlega og fljótt. Spennuhlífar koma í veg fyrir klemmu.

Þetta Heritage höfuleður er með steinum sem eru felldir inn í höfuðleðrið í litum innblásnum af íslenskri náttúru.

Höfuðleður Classic

VNR: HRI012

Uppselt

17.490 kr. með vsk

Þetta þægilega og glæsilega höfuðleður úr hágæða leðri hefur klassískt og tímalaust útlit.

Spennurnar eru úr ryðfríu stáli með rúllum sem gera kleift að stilla þær auðveldlega og fljótt.

Spennuvörn kemur í veg fyrir klemmu.

Hrímnis hringtaumsmúll – Carmen

VNR: HRI050

Uppselt

15.990 kr. með vsk

Leður hringtaumsmúll í klassískum portúgölskum stíl. Múllinn inniheldur málmstykki í nefbandinu sem gerir þjálfaranum kleift að hafa nákvæm og skýr áhrif á hestinn. Málmstykkið er mjúkt bólstrað til að vernda nefbein hestsins og tryggja jafna dreifingu á þrýstingi. Nefbandið er með þrjá málmhringi sem gera þjálfaranum auðvelt að vinna rétt og jafnt frá báðum hliðum.

Hringtaumsmúllinn gerir þjálfaranum kleift að hafa áhrif á hliðarlegu í hnakkagrindinni og beygju í hálsi af nákvæmni. Þetta er mikilvægt til að hjálpa hestinum að teygja hálsinn fram og niður, þannig að hann geti lyft bakinu og unnið frjálslega. Þetta stuðlar jafnframt að betra jafnvægi hestsins.

Múllinn má aldrei nota án bólstrunarinnar í nefbandinu.

Reformin Plus

VNR: VP-REFORMIN-PLUS

Uppselt

Price range: 6.990 kr. through 15.490 kr. með vsk

Uppfyllir daglega þörf á steinefnum, snefilefnum og vítamínum.

  • Reformin plus hefur verið þróað á grundvelli nýjustu rannsókna og tilrauna á fóðrun íþróttahesta.
  • Íslenskt hestahey er iðulega snautt af snefilefnum, því er uppbót nauðsynleg fyrir öll hross í þjálfun.
  • Inniheldur ríkulegt magn andoxunarefna fyrir betri endurheimt, frammistöðu og heilbrigði hestsins.
  • Reformin Plus styður við efnaskipti líkamans, vöxt og viðhald vöðva og stuðlar að auknu heilbrigði, þrótti og getu.

Steinefni, snefilefni og vítamín eru nauðsynleg hestinum í nægu magni.  Reformin ætti því að vera hluti af daglegri fóðrun hestsins, sérlega á tímum þar sem að meira er krafist af hestinum, almenn þjálfun eða keppnisþjálfun, meðgöngu og á mjaltaskeiði hryssna.

Sjá nánari innihaldslýsingu

Veldu kosti This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page

Hrímnis nasamúll mótaður með skáreim – Heritage

VNR: HRI040

Uppselt

15.390 kr. með vsk

Þessi fallegi og nýstárlegi mótaði nasamúll með einstaklega mjúkri bólstrun er sérstaklega þægilegur fyrir hestinn. Hann hefur einstakt útlit og prýðist af okkar táknræna Heritage-mynstri. Lögunin hjálpar viðkvæmustu hestum að slaka á, þar sem þrýstingur er lágmarkaður á viðkvæm svæði eins og viðkvæmt nefsbein, hreyfi- og skyntaugar og jaxlana. Þetta getur gert hestinum auðveldara að leita fram á bitið og mynda stöðuga og jákvæða tengingu.

Mótaði nasamúllinn er gerður úr hágæða leðri með spennum úr ryðfríu stáli. Snúningsrúllur í spennunum gera stillingar auðveldar og fljótlegar. Varnarflipi undir spennunni kemur í veg fyrir klípur og festileður tryggir aukið öryggi og snyrtilegt yfirbragð.

Effekt kalva 25 kg

VNR: 9450

Uppselt

14.633 kr. með vsk

Effekt Kalva er kurluð steinefnablanda sérstaklega samsett fyrir geldkýr, hámjólkandi fyrsta kálfs kvígur og kýr sem eru í nautakjötsframleiðslu. Blönduna má einnig nota við lífræna framleiðslu.

Enskur nasamúll m/skáreim – Fire and Ice

VNR: HRI036

Uppselt

14.489 kr. með vsk

Í þessum nasamúli með skáreim er hægt að taka skáreimina auðveldlega af eða setja hana aftur á, allt eftir þörfum. Fallegi og klassíski nasamúllinn með mjúkri bólstrun er sérstaklega þægilegur fyrir hestinn. Hann er gerður úr hágæða leðri með spennum úr ryðfríu stáli. Snúningsrúllur í spennunum gera stillingar auðveldar og fljótlegar. Aukalag af leðri undir spennunni kemur í veg fyrir klípur, og festileður tryggir aukið öryggi og snyrtilegt yfirbragð.

Aftakanlega skáreimin er þrædd í gegnum T-laga lykkju á nasamúlnum. Hægt er að fjarlægja T-laga lykkjuna alveg, svo nasamúllinn fái hreint og einfalt útlit líkt og hefðbundinn nasamúll þegar skáreimin er ekki notuð.

Innfelldu glitrasteinarnir í nasamúlnum gefa honum einstakt og fágað yfirbragð.

Enskur nasamúll m/skáreim – BlueLagoon

VNR: HRI037

Uppselt

14.489 kr. með vsk

Í þessum nasamúli með skáreim er hægt að taka skáreimina auðveldlega af eða setja hana aftur á, allt eftir þörfum. Fallegi og klassíski nasamúllinn með mjúkri bólstrun er sérstaklega þægilegur fyrir hestinn. Hann er gerður úr hágæða leðri með spennum úr ryðfríu stáli. Snúningsrúllur í spennunum gera stillingar auðveldar og fljótlegar. Aukalag af leðri undir spennunni kemur í veg fyrir klípur, og festileður tryggir aukið öryggi og snyrtilegt yfirbragð.

Aftakanlega skáreimin er þrædd í gegnum T-laga lykkju á nasamúlnum. Hægt er að fjarlægja T-laga lykkjuna alveg, svo nasamúllinn fái hreint og einfalt útlit líkt og hefðbundinn nasamúll þegar skáreimin er ekki notuð.

Innfelldu glitrasteinarnir í nasamúlnum gefa honum einstakt og fágað yfirbragð.

Enskur nasamúll m/skáreim – Classic

VNR: HRI035

Uppselt

11.490 kr. með vsk

Á þessum Enska nasamúl er hægt að taka skáreimina auðveldlega af og setja hana aftur á, allt eftir þörfum. Fallegi og klassíski enski nasamúllinn er með einstaklega mjúkri bólstrun og sérstaklega þægilegur fyrir hestinn. Hann er gerður úr hágæða leðri með spennum úr ryðfríu stáli. Snúningsrúllur í smellunum gera stillingar auðveldar og fljótlegar. Aukalag af leðri undir spennunni kemur í veg fyrir klípur og festileður tryggir stöðugleika og snyrtilegt útlit.

 Fjarlægjanleg skáreimin er þrædd í gegnum T-laga lykkju á múlnum. Hægt er að fjarlægja T-laga lykkjuna alveg, svo nasamúllinn sé með hreint og einfalt útlit eins og hefðbundinn nasamúll þegar skáreimin er ekki notuð.

Vals mél stál 10,5 cm

VNR: KSVALS002

Uppselt

9.989 kr. með vsk

VALS- mélin eru þegar landsþekkt og hafa viðtökur við þeim verið gífulega góðar.

Hin einfalda uppbygging mélanna byggir á að þau liggi létt í munni hestsins, gefa einnig meira pláss

Þar sem þau eru þynnri á annan liðinn.

Hringirnir eru stórir og þar af leiðandi er auðvelt að skapa líf í mélin.

Hesturinn losnar þar af leiðandi auðveldlega og verður léttari í beisli.

Átakið kemur hærra á stóru hringjunum sem hefur komið á daginn að hesturinn reistir sig meira.

Effekt optimal kögglað 20kg

VNR: 0707122

Uppselt

9.950 kr. með vsk

Effekt Optimal er köggluð steinefnablanda fyrir nautgripi sem hentar við flestum aðstæðum þar sem ekki er um beinan skort að ræða. Inniheldur nauðsynleg snefilefni og er rík af kalki, fosfór og magnesíum, með háu hlutfalli lífræns selens.