Landbúnaður
Sýna 253–270 af 319 niðurstöðurSorted by latest
Raða eftir
Sía eftir verði
Litir
Stærð
Birgðastaða
Kalksalt m/Hvítlauk 15kg.
Á lager
Kalksalt með hvítlauk er afar vinsælt hjá kúabændum og kúm þar sem hvítlaukurinn hefur bólgueyðandi áhrif og frumutala kúa lækkar við notkun þess og fitan hækkar. Hestar og eigendur þeirra hafa einnig verið hrifnir af hvítlauknum því hann er sérstaklega góður fyrir feld hrossanna og meltingu.
Kalksalt ehf. er eina fyrirtækið á Íslandi sem framleiðir bætiefnafötur og steina. Kalksalt er fyrir kindur, kýr og hesta. Saltið kemur frá saltfiskverkunum á Vestfjörðum og er afurð sem yfirleitt er hent, þar sem það inniheldur fiskafganga. Saltið dregur í sig snefilefni úr fisknum sem er einkar hollt fyrir skepnur. Einnig eru kalkþörungar í kalksalti en þeir eru góðir fyrir feld, ull og meltingu jórturdýra. Kalksalt ehf. er staðsett á Flateyri, notar eingöngu salt af Vestfjörðum og heldur þannig kolefnissporinu í lágmarki.
Kalksalt 15kg.
Á lager
Kalksalt ehf. er eina fyrirtækið á Íslandi sem framleiðir bætiefnafötur og steina. Kalksalt er fyrir kindur, kýr og hesta. Saltið kemur frá saltfiskverkunum á Vestfjörðum og er afurð sem yfirleitt er hent, þar sem það inniheldur fiskafganga. Saltið dregur í sig snefilefni úr fisknum sem er einkar hollt fyrir skepnur. Einnig eru kalkþörungar í kalksalti en þeir eru góðir fyrir feld, ull og meltingu jórturdýra. Kalksalt ehf. er staðsett á Flateyri, notar eingöngu salt af Vestfjörðum og heldur þannig kolefnissporinu í lágmarki.
Kalksaltsteinn m/hvítlauk 7,5 kg
Á lager
Hvítlaukssteinn er 7.5 kg saltbætiefnasteinn sem passar bæði í hefðbundin saltsteinaform og er hægt að hengja upp. Kúabændur sem nota kalksalt með hvítlauk hafa séð frumutöluna lækka og efnainnihaldið aukast.
Magnesíum selenstampur 25 KG.
Á lager
Magnesíum/Selenstampurinn er steinefnastampur sem er sérhannaður til að auka aðgengi að magnesíum og seleni.
- Auðkennist með bláu loki.
- Magnesíumríkur
- Hátt hlutfall af Seleni
- Ríkulegt magn af nauðsynlegum steinefnum,snefilefnumog vítamínum.
Hestastampur 12,5 kg.
Á lager
Hestastampurinn er sérhannaður fyrir íslenska hestinn. Fjölbreytt næringarefni. Upplagt er að hafa frjálsan aðgang að stampinum með gróffóðrinu. Nauðsynleg vítamín og sölt.
Vals Mél Messing 10.5 cm
Á lager
10.476 kr. með vskVALS- mélin eru þegar landsþekkt og hafa viðtökur við þeim verið gífulega góðar.
Hin einfalda uppbygging mélanna byggir á að þau liggi létt í munni hestsins, gefa einnig meira pláss
Þar sem þau eru þynnri á annan liðinn.
Hringirnir eru stórir og þar af leiðandi er auðvelt að skapa líf í mélin.
Hesturinn losnar þar af leiðandi auðveldlega og verður léttari í beisli.
Átakið kemur hærra á stóru hringjunum sem hefur komið á daginn að hesturinn reistir sig meira.
KNZ Alhliðasteinn (UNIVERSAL MULTI) 10 kg
Á lager
KNZ Universal Multi er saltsteinn með viðbættu járni, sem bætir virkni líffæra og vefja sem flytja súrefni.
Tilvalin viðbót þegar þörf er á auknu járni.
KNZ Biotin 10 KG.
Á lager
KNZTM BIOTIN vinnur gegn klaufasjúkdómum og hjálpar við að bæta líkamsstarfsemi og mjólkurframleiðslu.
KNZ Kúasteinn (Standard) 2 kg
Á lager
Saltsteinn fyrir búfénað úr hreinu salti.
Tilvalin viðbót við fóður, gras eða ef búfénaður fær ekki nægileg næringarefni.
KNZ Kúasteinn (Standard) 10 kg
Á lager
KNZTM Standard
Saltsteinn fyrir búfénað úr hreinu salti.
Tilvalin viðbót við fóður, gras eða ef búfénaður fær ekki nægileg næringarefni.
KNZ Sauðfjársteinn (Sheep)10kg
Á lager
KNZTM SHEEP – saltsteinn sem er sérsniðinn að þörfum sauðfjár.
Góð viðbót við steinefnabúskap fjársins.
Inniheldur salt, magnesíum, zinc, járn, joð og selen.
Salt er nauðsynlegt öllum skepnum en aukaefnin í þessum stein stuðla að betri meltingu, bætingu á tauga- og vöðvakerfi, styrkir bein og bætir almenna heilsu sauðfjár.
KNZ Hestasteinn 2 kg
Á lager
Hestasteinn er frábær viðbót fyrir hestinn þinn.
Saltsteinninn inniheldur selen og fleiri nauðsynleg snefil- og steinefni.
Feitur Extra 18 Hy-D®
Á lager
146 kr. með vskFeitur Extra 18 er orkurík blanda með 18% hrápróteininnihaldi. Inniheldur m.a. fiskimjöl. Gefur hentug AAT og PBV gildi í heildarfóðri. Feitur Extra 18 er frekar trénisrík tegund, sem stuðlar að hentugu vambarumhverfi og hjálpar til við mjólkurfitumyndun. Sérhannað kjarnfóður til þess að auka nyt, verðefni og bæta heilbrigði kúnna. Góð kögglagæði. Hentar vel í mjaltaþjóna og kjarnfóðurbása. Inniheldur Hy-D®.
Þetta fóður er eingöngu selt í lausu.
Til að bæta heilsufar gripanna og auka afurðir höfum við nú bætt HY-D®, lífvirku og hraðvirku D-vítamíni, í allar okkar fóðurblöndur fyrir mjólkandi kýr.
HY-D® nýtist beint og hraðar í líkama gripanna og skilar sér í mælanlegum ávinningi:
✔️ Meiri D-vítamín virkni – hærra D-vítamínmagn í blóði
✔️ Meiri og betri broddmjólk – sterkari og heilbrigðari kálfar
✔️ Hærri nyt – vegna bættra Ca efnaskipta
✔️ lægri frumutala – minni líkur á júgurbólgu
✔️ Öflugra ónæmiskerfi – lægri tíðni sýkinga
✔️ Bætt heilsufar og meiri afurðir
Melassi 14kg
Á lager
4.092 kr. með vskMelassi er þykkfljótandi, dökkbrún sírópslausn sem verður til sem náttúrulegt aukaafurð í sykurframleiðslu (úr sykurrófum eða sykurreyr). Hún er þekkt fyrir sæta bragðið og límandi áferðina sem gerir hana sérstaklega gagnlega til að auka lyst, bæta fóðuráferð og binda fóðuragnir saman – t.d. í lausfóðri og TMR-blöndum.
Hestamúslí – Mollerens Natur 20 kg
Á lager
7.229 kr. með vskNatur musli er laust við korn og hafra og er með lágt sterkju-og sykurinnihaldi. Jafnvægisgott fóður sem hentar jafnt hestum í léttri þjálfun sem og hrossum í stífri kynbóta- eða keppnisþjálfun.
Hestamúslí – Mollerens Favorit sport 20 kg
Á lager
7.626 kr. með vskFavorit Sport er orkuríkt kjarnfóður sem hentar fyrir flest hross á öllum þjálfunarstigum.
Refasmára/ Grasköggla Lucerne 12,5kg
Á lager
2.345 kr. með vskRefasmára/Graskögglar Lucerne eru þægileg og næringarrík fóðurviðbót fyrir hesta. Kögglarnir eru úr þurrkuðu gróffóðri og henta vel til að bæta trefjum inn í fóðrun, styðja við heilbrigt meltingarkerfi og auka jafnvægi í daglegu fóðri – sérstaklega þegar þörf er á stöðugri gróffóðurviðbót.
Kögglaformið gerir fóðrun einfalda og snyrtilega, og varan er vinsæl sem viðbót með heyi eða blönduðu fóðri.