Nautgripir
Sýna 73–90 af 128 niðurstöðurSorted by average rating
Mjólkurduft fyrir ungkálfa – 25 kg.
Á lager
14.658 kr. með vskKálfamjólkurduftið sem er framleitt af MS inniheldur hreinar íslenskar mjólkurafurðir.
Blandan hefur verið endurbætt með það fyrir augum að hún henti íslenskum kálfum enn betur en sú gamla gerði. Þetta felst í auknum lystugleika og þáttum sem stuðla að auknum vexti og góðu heilbrigði. Duftið er nú úðaþurrkað en þurrkunaraðferðin hjálpar til við að varðveita upphafleg gæði mjólkurinnar sem er notuð í blönduna. Úðaþurrkað duft er auk þess nokkuð auðleystara en valsaþurrkað duft.
Kúaklippur rafhlöðudrifnar R2
Á lager
88.303 kr. með vskLéttar og hljóðlátar klippur.
Notkunartími: ca. 2 klst.
Hleðslutími: ca. 1 klst.
Þyngd: 990 g.
Auka rafhlaða fylgir!
KNZ Kúasteinn (Standard) 2 kg
Á lager
564 kr. með vskSaltsteinn fyrir búfénað úr hreinu salti.
Tilvalin viðbót við fóður, gras eða ef búfénaður fær ekki nægileg næringarefni.
KNZ Kúasteinn (Standard) 10 kg
Á lager
1.486 kr. með vskKNZTM Standard
Saltsteinn fyrir búfénað úr hreinu salti.
Tilvalin viðbót við fóður, gras eða ef búfénaður fær ekki nægileg næringarefni.
Kalksalt m/Hvítlauk 15kg.
Á lager
7.795 kr. með vskKalksalt með hvítlauk er afar vinsælt hjá kúabændum og kúm þar sem hvítlaukurinn hefur bólgueyðandi áhrif og frumutala kúa lækkar við notkun þess og fitan hækkar. Hestar og eigendur þeirra hafa einnig verið hrifnir af hvítlauknum því hann er sérstaklega góður fyrir feld hrossanna og meltingu.
Kalksalt ehf. er eina fyrirtækið á Íslandi sem framleiðir bætiefnafötur og steina. Kalksalt er fyrir kindur, kýr og hesta. Saltið kemur frá saltfiskverkunum á Vestfjörðum og er afurð sem yfirleitt er hent, þar sem það inniheldur fiskafganga. Saltið dregur í sig snefilefni úr fisknum sem er einkar hollt fyrir skepnur. Einnig eru kalkþörungar í kalksalti en þeir eru góðir fyrir feld, ull og meltingu jórturdýra. Kalksalt ehf. er staðsett á Flateyri, notar eingöngu salt af Vestfjörðum og heldur þannig kolefnissporinu í lágmarki.
Kalksalt 15kg.
Á lager
6.795 kr. með vskKalksalt ehf. er eina fyrirtækið á Íslandi sem framleiðir bætiefnafötur og steina. Kalksalt er fyrir kindur, kýr og hesta. Saltið kemur frá saltfiskverkunum á Vestfjörðum og er afurð sem yfirleitt er hent, þar sem það inniheldur fiskafganga. Saltið dregur í sig snefilefni úr fisknum sem er einkar hollt fyrir skepnur. Einnig eru kalkþörungar í kalksalti en þeir eru góðir fyrir feld, ull og meltingu jórturdýra. Kalksalt ehf. er staðsett á Flateyri, notar eingöngu salt af Vestfjörðum og heldur þannig kolefnissporinu í lágmarki.
Burðartjakkur
Á lager
89.990 kr. með vskVINK Birth Aid er öflugur og áreiðanlegur burðartjakkur fyrir kýr, sem veitir allt að 300 kg togkraft — hentar vel þegar á að hjálpa kvígjum eða kúm við fæðingu á öruggan og skilvirkan hátt.
Ábreiða fyrir kálfa
Á lager
8.973 kr. með vsk- Slitsterkt pólýester
- 3000 mm vatnsheldni
- Góð útöndun sem kemur í veg fyrir of mikla svitamyndun
- Má þvo við 30°C
- Styður við ónæmiskerfið fyrstu dagana og kemur í veg fyrir niðurgangsvandamál og aðra sjúkdóma
- Minnkar kuldaálag hjá nýfæddum kálfum
- Kálfar eru yfirleitt með kálfateppi í 3 til 4 vikur og lengur ef þörf krefur
Lifeline geldstöðustampur 22,5
Á lager
12.388 kr. með vskStampurinn er fyrir kelfdar kýr, fyrir burð. Eflir ónæmi ófæddra kálfa.
• Gefið stampinn 2-6 vikum fyrir burð
• Ekki er mælt með að gefa önnur stein og snefilefni á meðan gefið er Lifline.
• Inniheldur lágt kalsíum
• Ekki fyrir mjólkandi kýr
• Mælt er með að gefa daglega 150 g. pr. kú.
Orkustampur 22,5 kg
Á lager
9.908 kr. með vskOrkustampur er steinefnastampur sem er sérhannaður til að auka orku og meltanleika
- Auðkennist með rauðu loki.
- Eykur matarlyst
- Eykur meltanleika um allt að 10%.
- Bætir upp efnaskort
- Eykur upptöku á próteini og orku.
Orkustampur er fyrir jórturdýr, kindur og kýr.
Orkustampur hentar hestum ekki.
Magnesíum selenstampur 25 KG.
Á lager
9.800 kr. með vskMagnesíum/Selenstampurinn er steinefnastampur sem er sérhannaður til að auka aðgengi að magnesíum og seleni.
- Auðkennist með bláu loki.
- Magnesíumríkur
- Hátt hlutfall af Seleni
- Ríkulegt magn af nauðsynlegum steinefnum,snefilefnumog vítamínum.
Steinefnablanda í fötu 25 kg
Á lager
9.908 kr. með vskSteinefnastampurinn hentar jafnt úti sem inni, enda er innihaldið sérstaklega veðurþolið.
- Auðkennist með grænu loki.
- Alhliða stampur fyrir jórturdýr og hesta
- Sérvalin næringarefni
- Hentar til sjálffóðrunar
- Hentar vel mjólkandi kúm
- E-Vítamín ríkur
Spenaspray OceanBlu 20L
Á lager
39.521 kr. með vskOceanBlu spenaspreyið er joðlaust spenasprey sem hefur reynst gríðarlega vel til þess að mýkja spena og bæta ástanda þeirra, ásamt því að draga úr hættu á júgurbólgum. Þurr og sprungin húð getur hleypt bakteríum inn í júgrið, en regluleg notkun OceanBlu eftir mjaltir ver spenaop og mýkir spenana með glycerini og sorbitoli, sem vinna saman í að því að vernda húðina.
Eftir aðeins tvær vikur má sjá greinilegan mun á mýkt spenaenda, og eftir átta vikur eru flestir spenar í góðu ástandi.
Frábær vara sem hefur reynst einstaklega vel til að viðhalda hreinlæti og júgurheilbrigði.
Mjólkursíur 570X44 bláar 100stk
Á lager
13.145 kr. með vskMjólkursíur hannaðar fyrir Delaval VMS.
100stk í pakka.
Stærð: 570×44 mm





