Nautgripir

Kúakögglar – Hy-D®

VNR: VP-KÚAKÖGGLAR

Á lager

Price range: 0 kr. through 129.299 kr. með vsk

Kúakögglar – Hy-D® eru orkuríkar og fiskimjölsríkar kjarnfóðurblöndur fyrir mjólkandi kýr. Blöndurnar hafa reynst einstaklega vel í fjölda ára og henta vel fyrir hátt framleiðslustig, þar sem markmiðið er að styðja við góða nyt, fóðurnýtingu og heilbrigði gripa.

Kúakögglar innihalda hátt hlutfall maís sem gerjast hægt í vömb og nýtist sem góður orkugjafi. Fóðrið inniheldur einnig Hy-D®, lífvirkt og hraðvirkt D-vítamín sem styður við kalkefnaskipti, ónæmi og almennt heilsufar mjólkurkúa.

Veldu kosti This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page

Maískögglar

VNR: VP-MAÍSKÖGGLAR

Á lager

Price range: 110 kr. through 116.880 kr. með vsk

Maískögglar eru orkuríkur fóðurbætir sem hentar vel með öðru fóðri þegar auka þarf orku í fóðrun mjólkurkúa. Fóðrið er glúkógenísk orkuviðbót sem nýtist sérstaklega vel á snemm-mjaltaskeiði, þegar orkuþörf kúnna er mikil.

Maískögglar geta stutt við betra heilsufar, aukið orkujafnvægi og dregið úr líkum á súrdoða. Þeir henta vel sem hluti af markvissri fóðuráætlun þar sem lögð er áhersla á góða nyt, fóðurnýtingu og heilbrigði gripa.

Veldu kosti This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page

Eldi

VNR: VP-ELDI

Á lager

Price range: 119 kr. through 127.159 kr. með vsk

Eldi er kjarnfóður fyrir nautgripi í lokaeldi, bæði naut og kvígur. Fóðrið er sérstaklega samsett til að styðja við vöxt, fallþunga, kjötgæði og fitusprengingu síðustu 1–3 mánuðina fyrir slátrun.

Fóðrið inniheldur viðbætt E-vítamín sem safnast upp í vöðvum og getur hjálpað til við að vernda kjötið eftir slátrun, sem stuðlar að fallegri og verðmætari afurð.

Veldu kosti This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page

Róbót – Hy-D®

VNR: VP-RÓBÓT-HY-D

Á lager

Price range: 124 kr. through 142.249 kr. með vsk

Róbót – Hy-D® er lystug kjarnfóðurblanda fyrir mjólkandi kýr, sérstaklega hentug til gjafar í mjaltaþjónum. Blandan er samsett með hentugu samspili ólíkra sterkjuafurða og hefur frábær kögglagæði sem tryggja góða flæði- og notkunareiginleika í fóðurkerfum.

Fóðrið inniheldur Hy-D®, lífvirkt og hraðvirkt D-vítamín sem styður við kalkefnaskipti, ónæmiskerfi og almennt heilsufar mjólkurkúa. Fáanlegt sem Róbót 16 og Róbót 20.

Veldu kosti This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page

DK – Hy-D®

VNR: VP-DK-HY-D

Á lager

Price range: 126 kr. through 140.142 kr. með vsk

DK – Hy-D® er vandað kjarnfóður fyrir mjólkurkýr, sérstaklega hentugt sem grunnblanda þegar gefnar eru fleiri en ein tegund kjarnfóðurs. Blandan inniheldur Hy-D®, lífvirkt D-vítamín sem styður við D-vítamínstöðu, kalkefnaskipti, ónæmi og almennt heilsufar gripa.

Fóðrið er fituhúðað, með góð kögglagæði og er nánast ryklaust, sem gerir það lystugt og þægilegt í meðhöndlun.

Veldu kosti This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page

Vöxtur

VNR: VP-VÖXTUR

Á lager

Price range: 132 kr. through 135.264 kr. með vsk

Vöxtur er kjarnfóður fyrir kálfa og ungneyti, sérhannað til að styðja við mikinn en heilbrigðan vaxtarhraða. Fóðrið styður við vöxt vöðva og stoðkerfis og hentar vel þegar markmiðið er að byggja upp sterka, hrausta og vel þroskaða gripi.

Vöxtur er góður kostur eftir kálfaköggla og nýtist sem hluti af markvissri fóðuráætlun fyrir áframeldi, þar sem lögð er áhersla á góðan þroska, jafnan vöxt og hagkvæma fóðrun.

Veldu kosti This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page

Feitur Róbót – HY-D®

VNR: VP-FEITUR-ROBOT-HYD

Á lager

Price range: 134 kr. through 148.171 kr. með vsk

Feitur Róbót – Hy-D® er sérlega orkuríkt kjarnfóður fyrir mjólkandi kýr, hannað til að styðja við aukna mjólkurfitu, góða nyt og heilbrigði gripa. Blandan inniheldur mikið magn sykurrófuhrats, trefjar sem nýtast vel til mjólkurfitumyndunar, ásamt ríkulegu magni þurrfitu.

Fóðrið inniheldur einnig íslenska kalkþörunga sem styðja við jafnvægi á sýrustigi vambarinnar, auk Hy-D®, lífvirks og hraðvirks D-vítamíns sem styður við kalkefnaskipti, ónæmi og almennt heilsufar mjólkurkúa.

Veldu kosti This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page

Feitur Extra 18 Hy-D®

VNR: 4401

Á lager

146 kr. með vsk

Vöxtur er kjarnfóður fyrir kálfa og ungneyti, sérhannað til að styðja við mikinn en heilbrigðan vaxtarhraða. Fóðrið styður við vöxt vöðva og stoðkerfis og hentar vel þegar markmiðið er að byggja upp sterka, hrausta og vel þroskaða gripi.

Vöxtur er góður kostur eftir kálfaköggla og nýtist sem hluti af markvissri fóðuráætlun fyrir áframeldi, þar sem lögð er áhersla á góðan þroska, jafnan vöxt og hagkvæma fóðrun.

Feitur KK – Hy-D®

VNR: VP-FEITUR-KK-HY-D

Á lager

Price range: 147 kr. through 155 kr. með vsk

Stutt lýsing

Feitur KK – Hy-D® er orkuríkt kjarnfóður fyrir mjólkandi kýr, byggt á gömlu góðu Kúakögglunum með viðbættri vambarvarðri fitu. Fóðrið er sérstaklega hentugt fyrir hámjólka kýr, einkum snemma á mjaltaskeiði þegar orkuþörfin er mikil.

Feitur KK – Hy-D® er hannað til að styðja við mjólkurframleiðslu, auka mjólkurfitu og bæta heilsufar gripa. Fóðrið inniheldur Hy-D®, lífvirkt og hraðvirkt D-vítamín sem styður við kalkefnaskipti, ónæmiskerfi og almenna hreysti mjólkurkúa.

Eingöngu selt í lausu.

Veldu kosti This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page

Kálfakögglar

VNR: VP-KÁLFAKÖGGLAR

Á lager

Price range: 149 kr. through 155.423 kr. með vsk

Kálfakögglar eru próteinríkt og steinefna- og vítamínríkt kjarnfóður fyrir kálfa frá tveggja vikna aldri. Fóðrið inniheldur ríkulegt magn af fiskimjöli og vel samsetta próteingjafa sem styðja við vöxt, þroska og góða byrjun í uppeldi kálfa.

Kálfakögglar örva þroska vambarinnar og hjálpa kálfum að ná upp góðu áti samhliða mjólkurgjöf, áður en þeir hætta alveg á mjólk. 6 mm kögglastærð stuðlar að góðu áti og getur flýtt fyrir vexti.

Veldu kosti This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page

Geldstöðukögglar Hy-D®

VNR: VP-GELDSTÖÐUKÖGGLAR

Á lager

Price range: 155 kr. through 159.579 kr. með vsk

Geldstöðukögglar Hy-D® eru hágæða kjarnfóður fyrir geldkýr, sérhannað til að styðja við heilsu, undirbúning fyrir burð og góðan upphafsfasa á næsta mjaltaskeiði.

Fóðrið er próteinríkt og inniheldur Hy-D®, E-vítamín, bíótín og magnesíum. Það styður við vömbina, hjálpar til við uppbyggingu próteinforða og getur stuðlað að heilbrigðari kúm, sterkari kálfum og betri afurðum eftir burð. Gefið á geldstöðu, 2 kg á dag. Gefið ekki mjólkandi kúm.

Veldu kosti This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page

H-kögglar

VNR: VP-H-KÖGGLAR

Á lager

Price range: 159 kr. through 4.467 kr. með vsk

H-kögglar eru kjarnfóður fyrir mjólkurkýr sem hentar sérstaklega vel með blautverkuðum rúllum og próteinsnauðu heyi. Fóðrið er góður kostur þegar bæta þarf upp prótein og næringu í gróffóðri og styðja við jafnvægi í daglegri fóðrun.

H-kögglar henta vel fyrir kúabú sem vilja einfalt, lystugt og markvisst kjarnfóður til að styðja við mjólkurframleiðslu, fóðurnýtingu og almennt heilbrigði mjólkurkúa.

Veldu kosti This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page

Tútta í kálfafötu – rauð

VNR: AL97105501

Á lager

433 kr. með vsk

Tútta í kálfafötu frá DeLaval.

Tútta, kálfa, Hunangslituð Hiko

VNR: 5010272

Á lager

485 kr. með vsk

Endingargóðar og nátturulegar kálfatúttur.

Tútta á 1,5L kálfapela

VNR: NT1225

Á lager

523 kr. með vsk

Tútta á 1,5 Lítra kálfapela

Boviferm Plus SID

VNR: 5228040

Á lager

550 kr. með vsk

Gott við skitu

Kemur stöðugleika á jafnvægi vatns og salta.

Inniheldur :

  • Oralin, lífrænt bætiefni sem jafnar þarmaflóruna.
  • Sölt.
  • Sýrujafnandi efni.
  • Mjólkursýrubakteríur. Mucin (prótein sem vernda slímhimnur).
  • Umfangsaukandi efni og eykur þar með vatnsupptöku.

Notist ef smitpressa er til staðar, á meðan að á skitu stendur og/eða þegar kálfur/lamb er að ná sér eftir meltingatruflanir.

Skammtastærð: Blandið 1 bréf (115mg) í 2 lítra af vatni og bætið við 0,5-4L af mjólk eða mjólkurdufti.
Gefist tvisvar sinnum daglega.

Má einnig gefa lömbum ef þau fá skitu – passa þarf að þynna blönduna meira miðað við lömb.

Smellið hér fyrir nánari upplýsingar

KNZ Kúasteinn (Standard) 2 kg

VNR: 9334

Á lager

564 kr. með vsk

Saltsteinn fyrir búfénað úr hreinu salti.

Tilvalin viðbót við fóður, gras eða ef búfénaður fær ekki nægileg næringarefni.

Tútta í kálfapela

VNR: AL97105703

Á lager

820 kr. með vsk