Bætiefni
Sýna 19–36 af 43 niðurstöðurSorted by price: low to high
Lamb Kick start 100ml [6]
Á lager
6.448 kr. með vskLamba kick start er fljótvirkt orku- og næringarbætiefni fyrir veikburða eða nýfædd lömb. Best er að nota Lamba kick start fyrstu þrjár vikurnar eftir að lambið fæðist. Það eykur líkurnar á því að lamb dafni og stuðlar þannig að hagkvæmni og árangri.
Kalksalt 15kg.
Á lager
6.795 kr. með vskKalksalt ehf. er eina fyrirtækið á Íslandi sem framleiðir bætiefnafötur og steina. Kalksalt er fyrir kindur, kýr og hesta. Saltið kemur frá saltfiskverkunum á Vestfjörðum og er afurð sem yfirleitt er hent, þar sem það inniheldur fiskafganga. Saltið dregur í sig snefilefni úr fisknum sem er einkar hollt fyrir skepnur. Einnig eru kalkþörungar í kalksalti en þeir eru góðir fyrir feld, ull og meltingu jórturdýra. Kalksalt ehf. er staðsett á Flateyri, notar eingöngu salt af Vestfjörðum og heldur þannig kolefnissporinu í lágmarki.
Vambarbætir 20 kg
Á lager
6.889 kr. með vskSérhannað fyrir íslenskar mjólkurkýr
Lifandi ger með viðbættum steinefnum og vítamínum, til íblöndunar við gróffóður.
Gerið étur upp súrefni í vömbinni og bætir þar með starfsumhverfi vambarörvera. Gerið kemur einnig jafnvægi á sýrustig vambarinnar, sem stuðlar að betri fóðurnýtingu. Steinefna- og vítamínmagn er sérlagað eftir þörfum íslenskra mjólkurkúa, með íslensku kjarnfóðri.
Sauðfjárstampur 15 kg
Á lager
6.981 kr. með vskAlhliða sauðfjárstampur – sérframleitt fyrir íslenskt sauðfé
- Hagstætt hlutfall af kalsíum, magnesíum og fosfór.
- Hentar fyrir fé á öllum aldri, allan ársins hring.
- Uppfyllir steinefna/snefilefna/vítamín þarfir gripanna.
Kalksalt m/Hvítlauk 15kg.
Á lager
7.795 kr. með vskKalksalt með hvítlauk er afar vinsælt hjá kúabændum og kúm þar sem hvítlaukurinn hefur bólgueyðandi áhrif og frumutala kúa lækkar við notkun þess og fitan hækkar. Hestar og eigendur þeirra hafa einnig verið hrifnir af hvítlauknum því hann er sérstaklega góður fyrir feld hrossanna og meltingu.
Kalksalt ehf. er eina fyrirtækið á Íslandi sem framleiðir bætiefnafötur og steina. Kalksalt er fyrir kindur, kýr og hesta. Saltið kemur frá saltfiskverkunum á Vestfjörðum og er afurð sem yfirleitt er hent, þar sem það inniheldur fiskafganga. Saltið dregur í sig snefilefni úr fisknum sem er einkar hollt fyrir skepnur. Einnig eru kalkþörungar í kalksalti en þeir eru góðir fyrir feld, ull og meltingu jórturdýra. Kalksalt ehf. er staðsett á Flateyri, notar eingöngu salt af Vestfjörðum og heldur þannig kolefnissporinu í lágmarki.
All-min magnesium 25kg
Á lager
7.950 kr. með vskAll Min Magnesíum er ætlað að koma í veg fyrir steinefna– og snefilefnaskort hjá nautgripum. Nánari uppl. smellið hér
Inniheldur m.a 13% Magnesíum – 15% Kalsíum – 6% Fosfór – 7% Natríum – biotin – Selen + vítamín A, E og D3.
Blandan er afar lystug steinefnablanda með háu innihaldi E-vítamíns. Biotinið gefur heilbrigðari klaufir. Ráðlagður dagskammtur fyrir mjólkurkýr er 100-250 gr. Blandan er með CA/P hlutfallið 2,2.
Blandan uppfyllir þörfina sem vantar í gróffóðrið.
Fóðurlýsi kaldhreinsað 5L
Á lager
8.190 kr. með vskFóðurlýsi er ríkt af náttúrulegum A- og D-vítamínum. Búfénaður sem fær daglega lýsi ber þess augljós merki m.a er feldurinn glansandi og hárafar fallegra. D-vítamín gerir upptöku kalks mögulega og fituskortur gerir síður vart við sig hjá dýrum sem fá reglulega lýsi. A-vítamín heldur slímhúð heilli og er nauðsynlegt sjóninni. Hvert gramm af lýsi inniheldur 37 kJ.
Magnesíum selenstampur 25 KG.
Á lager
9.800 kr. með vskMagnesíum/Selenstampurinn er steinefnastampur sem er sérhannaður til að auka aðgengi að magnesíum og seleni.
- Auðkennist með bláu loki.
- Magnesíumríkur
- Hátt hlutfall af Seleni
- Ríkulegt magn af nauðsynlegum steinefnum,snefilefnumog vítamínum.
Steinefnablanda í fötu 25 kg
Á lager
9.908 kr. með vskSteinefnastampurinn hentar jafnt úti sem inni, enda er innihaldið sérstaklega veðurþolið.
- Auðkennist með grænu loki.
- Alhliða stampur fyrir jórturdýr og hesta
- Sérvalin næringarefni
- Hentar til sjálffóðrunar
- Hentar vel mjólkandi kúm
- E-Vítamín ríkur
Orkustampur 22,5 kg
Á lager
9.908 kr. með vskOrkustampur er steinefnastampur sem er sérhannaður til að auka orku og meltanleika
- Auðkennist með rauðu loki.
- Eykur matarlyst
- Eykur meltanleika um allt að 10%.
- Bætir upp efnaskort
- Eykur upptöku á próteini og orku.
Orkustampur er fyrir jórturdýr, kindur og kýr.
Orkustampur hentar hestum ekki.
Calf Kick Start 495ml
Á lager
11.371 kr. með vskBætiefni fyrir veikburða kálfa
Bætiefni í 495ml brúsa sem að eykur orku, matarlyst og viljann til að sjúga. Auðleysanleg vítamín og steinefni sem að skila sér fljótt inn í blóðrásina.
Kálfa kick start gerir kálfinn harðgerðari og eykur þannig lífsmöguleika veikburðra kálfa.
Lifeline lömb og ær
Á lager
12.353 kr. með vsk22,5 kg.
Lifeline Lamb & Ewe steinefnastampurinn er einstakur að sinni gerð þar sem samsetningu hans er ætlað að tryggja sem best heilbrigði ófæddra lamba og lambánna um leið.
Lifeline geldstöðustampur 22,5
Á lager
12.388 kr. með vskStampurinn er fyrir kelfdar kýr, fyrir burð. Eflir ónæmi ófæddra kálfa.
• Gefið stampinn 2-6 vikum fyrir burð
• Ekki er mælt með að gefa önnur stein og snefilefni á meðan gefið er Lifline.
• Inniheldur lágt kalsíum
• Ekki fyrir mjólkandi kýr
• Mælt er með að gefa daglega 150 g. pr. kú.
Magnesíumstautar, Cattle 24-7 Agrimin 10stk
Á lager
12.970 kr. með vskMagnesímforðastautar fyrir kýr sem minnka hættu á grasdoða.
Notkun: 2 stautar fyrir hverja kú yfir 300kg.
Gefist ca 4 dögum áður en hleypt er út að vori.
Virka í um 4 vikur.
10 stk í pakka.
Ovi-top
Á lager
15.719 kr. með vskOvitop eru forðastautar fyrir sauðfé og geitur sem að leysast hægt upp í vömbinni. Virka í um 4 mánuði.
Innihalda joð, kóbalt, mangan, zink og selen.
Notkunarleiðbeiningar / skammtastærð:
Sauðfé og geitur fyrir 40 kg: 2 stautar einnu sinni mí mánuði fyrir fengitíma og aftur einum mánuði fyrir sauðburð.
Sauðfé og geitur undir 40 kg: Gefinn er 1 stautur.



