Bætiefni
Sýna 1–12 af 42 niðurstöðurSorted by average rating
Bætiefni
Vambarbætir 20 kg
Á lager
6.889 kr. með vskSérhannað fyrir íslenskar mjólkurkýr
Lifandi ger með viðbættum steinefnum og vítamínum, til íblöndunar við gróffóður.
Gerið étur upp súrefni í vömbinni og bætir þar með starfsumhverfi vambarörvera. Gerið kemur einnig jafnvægi á sýrustig vambarinnar, sem stuðlar að betri fóðurnýtingu. Steinefna- og vítamínmagn er sérlagað eftir þörfum íslenskra mjólkurkúa, með íslensku kjarnfóðri.
Ovi-top
Á lager
15.719 kr. með vskOvitop eru forðastautar fyrir sauðfé og geitur sem að leysast hægt upp í vömbinni. Virka í um 4 mánuði.
Innihalda joð, kóbalt, mangan, zink og selen.
Notkunarleiðbeiningar / skammtastærð:
Sauðfé og geitur fyrir 40 kg: 2 stautar einnu sinni mí mánuði fyrir fengitíma og aftur einum mánuði fyrir sauðburð.
Sauðfé og geitur undir 40 kg: Gefinn er 1 stautur.
KNZ Alhliðasteinn (UNIVERSAL MULTI) 10 kg
Á lager
KNZ Universal Multi er saltsteinn með viðbættu járni, sem bætir virkni líffæra og vefja sem flytja súrefni.
Tilvalin viðbót þegar þörf er á auknu járni.
KNZ Biotin 10 KG.
Á lager
KNZTM BIOTIN vinnur gegn klaufasjúkdómum og hjálpar við að bæta líkamsstarfsemi og mjólkurframleiðslu.
KNZ Frjósemissteinn selen/joð10 kg
Á lager
KNZTM FERTILITY
Bætir frjósemi
Inniheldur selen, joð og E vítamín.
Magnesíumstautar, Cattle 24-7 Agrimin 10stk
Á lager
12.970 kr. með vskMagnesímforðastautar fyrir kýr sem minnka hættu á grasdoða.
Notkun: 2 stautar fyrir hverja kú yfir 300kg.
Gefist ca 4 dögum áður en hleypt er út að vori.
Virka í um 4 vikur.
10 stk í pakka.
Kalksaltsteinn 7,5 kg
Á lager
Kalksalt ehf. er eina fyrirtækið á Íslandi sem framleiðir saltbætiefnafötur fyrir búfénað en saltið í bætiefnafötunum kemur frá fiskverkunum í nágrenninu.
Gamlir bændur þekkja vel gæðin sem felast í salti sem hefur komist í návígi við fisk, því saltið dregur í sig prótein, vítamín og snefilefni frá fisknum sem hefur svo góð áhrif á kýr, kindur og hesta.
Kalkþörungarnir sem varan dregur nafn sitt af, koma frá Kalkþörungaverksmiðjunni á Bíldudal. Kalk hefur góð áhrif á vöxt beina, tanna, ullar og felds.
Kúabændur sem nota kalksalt hafa einnig talað um að frumutala hafi lækkað og fita hækkað hjá kúnum eftir að þeir fóru að gefa kalksalt.
Kalksaltið er steypt í melassa sem gerir það afar lystugt. Að auki eru í því selen, A vítamín, E vítamín og D3.
Forðastautur All Trace í geldst. 20stk
Á lager
22.624 kr. með vskForðastautur með snefilefnum fyrir kýr í geldstöðu. virkar í um 4 mánuði.
Notkun. 1 til 2 stautar í hverja kú, gefist ca 8vikum fyrir burð
20 stk í pakka.
Forðastautur All Trace
Á lager
23.850 kr. með vskForðastautur fyrir nautgripi. Inniheldur helstu snefilefni og vítamín.
Endist í um 8 mánuði.
Notkun: 2 stautar í fullorðinn grip.
20 stk í pakka.
Bovisal Rumen
Á lager
2.046 kr. með vskFæðubótarefni til þess að minnka líkur á súrdoða hjá nautgripum, sauðfé og geitum.
Hjálpar við að endurheimta eðlilega vambarstarfsemi.
Skammtastærðir:
Nautgripir: 1 flaska
Sauðfé/Geitur: 1/2 flaska
Endurtakist á 12klst fresti, ef þörf krefur, þar til eðlilegri vambarstarfsemi er náð.
Bovisal Phosphor
Á lager
2.184 kr. með vskBætir upp fyrir fosfórskort hjá kúm.
- Flýtir fyrir bata eftir doða!
- Styttir tímann verulega sem að kýrin liggur
- Eykur líkurnar á að ein kalsíumgjöf í æð sé fullnægjandi um allt að 90%
- Fosfórinn er mjög auðupptakanlegur og bragðgóður
Skammtastærð: Hellið einni flösku í munn eftir að dýralæknir hefur gefið kalsíum í æð.
Ef kýrin liggur enn niðri eftir 8-10klst (sjaldgæft) gefið þá aðra flösku eftir seinni kalsíumgjöfina.