Hreinlætisvörur

Hreinlætisvörur

Blautsápa

VNR: 5211120

Á lager

3.789 kr. með vsk

5 ltr.

Blautsápa er lágfreyðandi náttúrusápa, sem hentar vel til þrífa ómeðhöndluðum trégólf, tréþiljar, stein og marmaraflísar, gólfdúka og bakaraofna. Blautsápa fjarlægir mjög vel ólykt og skilur eftir daufan gljáa um leið og hún hindrar að óhreinindi festist.

Brútus /Granít 5 L

VNR: 5211145

Á lager

2.990 kr. með vsk

5 ltr.

BRÚTUS/ GRANÍT er fjölnota hreinsiefni, sem leysir upp m.a. olíur, tjöru, sót, fitu og prótín. Notkunarsvið BRÚTUS/ GRANÍTAR er fjölbreytt, en BRÚTUS/ GRANÍTmá t.d. nota til að þrífa veggi og gólf á verkstæðum, vélar og vélasamstæður og vinnugalla. Einnig hentar BRÚTUS/ GRANÍT vel til tjöruhreinsunar á farartækjum, til báta- og skipahreinsunar og til daglegra þrifa á ýmsu iðnaðarhúsnæði, t.d. fitugum gólfum í matvælaiðnaði og sótugum flötum á verkstæðum. BRÚTUS/ GRANÍT er vatnsþynnanlegur og án lífrænna leysiefna og hentar því sérlega vel til þrifa í lokuðum rýmum.

Notkun:
Blöndunarhlutfall er mismunandi eftir aðstæðum. Í flestum tilfellum virkar 1-10 dl í 10 lítra af vatni mjög vel.
Notkunarhitastig er á bilinu 10-60°C.
Vinnufatnað er hægt að láta liggja yfir nótt í allt að 10% blöndu og þvo síðan í þvottavél.
Gætið þess að skola eða vinda gallana vel fyrir þvott til að forðast freyðingu.
Hægt er að láta efnið liggja í allt að 15 mínútur.

Gerildeyðir handsp. 600ml 85%

VNR: 5201125

Á lager

1.631 kr. með vsk

Dúx gerildeyðir handspritt 85% er ætlað til sótthreinsunar á höndum og tækjum.

Handsótthreinsigel, lyktarlaust

VNR: 5201129

Á lager

590 kr. með vsk

Lyktarlaust rakagefandi sótthreinsigel fyrir hendur.

* Drepur örverur og bakteríur
* Mýkjandi og rakagefandi
* Alkahól innihald 60%

Kemur í handhægum 100 ml umbúðum og passar því vel í vasa eða tösku.

Joð 10% úðabrúsi

VNR: NT0625

Á lager

5.952 kr. með vsk

Nettex Iodine er gæða joðlausn sem inniheldur 10% virkt joð.
Snilldar lausn þegar það kemur að því að þerra sár, skrámur og annað slíkt.

Kemur í 500ml spreybrúsa.

Dúx Sjúkrahússpritt 1 L 85%

VNR: 5201130

Á lager

1.080 kr. með vsk

Dúx Sjúkrahússpritt er sótthreinsispritt til almennrar sótthreinsunar á hlutum og má einnig nota á húð.

Dúx Sjúkrahússpritt veldur hvorki tæringu málma né mislitun á tækjum og fötum.

Athugið að nota EKKI Dúx Sjúkrahússpritt á tæki sem eru í gangi eða mjög heit. Ekki skal gangsetja tæki fyrr en Dúx Sjúkrahússprit hefur gufað upp og allur eimur af því er horfinn.

1 líter – endurvinnanlegar umbúðir.

Gandur Handabót 50ml.

VNR: KS2773-H

Uppselt

3.319 kr. með vsk

Mýkjandi og nærandi handáburður framleiddur úr minkaolíu og kókosolíu.
Handabót er góður til daglegra nota og gengur hratt og vel inn í húðina.