Heim » Vefverslun » Tútta » Brútus /Granít 5 L

Brútus /Granít 5 L

Vörunúmer: 5211145

5 ltr.

BRÚTUS/ GRANÍT er fjölnota hreinsiefni, sem leysir upp m.a. olíur, tjöru, sót, fitu og prótín. Notkunarsvið BRÚTUS/ GRANÍTAR er fjölbreytt, en BRÚTUS/ GRANÍTmá t.d. nota til að þrífa veggi og gólf á verkstæðum, vélar og vélasamstæður og vinnugalla. Einnig hentar BRÚTUS/ GRANÍT vel til tjöruhreinsunar á farartækjum, til báta- og skipahreinsunar og til daglegra þrifa á ýmsu iðnaðarhúsnæði, t.d. fitugum gólfum í matvælaiðnaði og sótugum flötum á verkstæðum. BRÚTUS/ GRANÍT er vatnsþynnanlegur og án lífrænna leysiefna og hentar því sérlega vel til þrifa í lokuðum rýmum.

Notkun:
Blöndunarhlutfall er mismunandi eftir aðstæðum. Í flestum tilfellum virkar 1-10 dl í 10 lítra af vatni mjög vel.
Notkunarhitastig er á bilinu 10-60°C.
Vinnufatnað er hægt að láta liggja yfir nótt í allt að 10% blöndu og þvo síðan í þvottavél.
Gætið þess að skola eða vinda gallana vel fyrir þvott til að forðast freyðingu.
Hægt er að láta efnið liggja í allt að 15 mínútur.

2.990 kr. með vsk

Á lager

  • Reykjavík - 2
  • Hvolsvöllur - 2

Á lager

Vörulýsing

Upplýsingar

Þyngd

Þyngd5 kg