Hreinsiefni og sótthreinsun
Sýna 1–12 af 19 niðurstöðurSorted by price: low to high
Hreinsiefni og sótthreinsun
Handsótthreinsigel, lyktarlaust
Á lager
590 kr. með vskLyktarlaust rakagefandi sótthreinsigel fyrir hendur.
* Drepur örverur og bakteríur
* Mýkjandi og rakagefandi
* Alkahól innihald 60%
Kemur í handhægum 100 ml umbúðum og passar því vel í vasa eða tösku.
AGRYSAN m/Bvoks – Handáburður
Á lager
1.071 kr. með vskHandáburður með býflugnavaxi.
Smyrslið er mýkjandi og hefur góð áhrif á húðina.
Verndar gegn þurrki og hreinsar litlar rispur.
Skilur ekki eftir feitt yfirborð á húð.
100ml.
Dúx Sjúkrahússpritt 1 L 85%
Á lager
1.080 kr. með vskDúx Sjúkrahússpritt er sótthreinsispritt til almennrar sótthreinsunar á hlutum og má einnig nota á húð.
Dúx Sjúkrahússpritt veldur hvorki tæringu málma né mislitun á tækjum og fötum.
Athugið að nota EKKI Dúx Sjúkrahússpritt á tæki sem eru í gangi eða mjög heit. Ekki skal gangsetja tæki fyrr en Dúx Sjúkrahússprit hefur gufað upp og allur eimur af því er horfinn.
1 líter – endurvinnanlegar umbúðir.
Gerildeyðir handsp. 600ml 85%
Á lager
1.631 kr. með vskDúx gerildeyðir handspritt 85% er ætlað til sótthreinsunar á höndum og tækjum.
Halamid sótthreinsir
Á lager
1.690 kr. – 19.828 kr.Price range: 1.690 kr. through 19.828 kr. með vskHalamid® er fjölhæft alhliða sótthreinsiefni með sannaða virkni gegn fjölmörgum gerðum baktería og veira. Varan hentar sérstaklega vel til sótthreinsunar á búrum og búnaði sem notaður er við umhirðu gæludýra.
Kostir vörunnar:
Víðtæk virkni gegn örverum
Ryðfrítt í þeim styrkleika sem mælt er með
Tærir ekki efni í vatnslausn
Auðvelt í notkun og fjölhæft
Stöðugt efni með góðan geymsluþol
Lífrænt niðurbrotshæft
Engin hætta á myndun sýklalyfjaónæmis
Sótthreinsisápa
Á lager
1.700 kr. með vskHraðvirk sápa sem hreinsar virkilega vel.
Fljótandi og skilar hámarks sótthreinsun.
Mikið notuð af dýralæknum fyrir og eftir aðgerðir.
Nýtist vel í sauðburði og i landbúnaði almennt þar sem sótthreinsunar er þörf.
500ml
Golíat/kraftþrif 5ltr
Á lager
1.840 kr. með vsk5 ltr.
Golíat/Kraftþrif er sótthreinsandi hreingernigalögur fyrir matvælaiðnað sem inniheldur um 2,5% virkan klór. Leysir upp fitu og prótín, bleikir og eyðir ólykt. Golíat/Kraftþrif hentar vel til þrifa t.d. í fiskvinnslum, fiskþurrkunum,sláturhúsum, kjötvinnslum og mjólkurstöðvum. Einnig gott hreinsiefni á færibönd, bakka, kassa og kör.
Brútus /Granít 5 L
Á lager
2.990 kr. með vsk5 ltr.
BRÚTUS/ GRANÍT er fjölnota hreinsiefni, sem leysir upp m.a. olíur, tjöru, sót, fitu og prótín. Notkunarsvið BRÚTUS/ GRANÍTAR er fjölbreytt, en BRÚTUS/ GRANÍTmá t.d. nota til að þrífa veggi og gólf á verkstæðum, vélar og vélasamstæður og vinnugalla. Einnig hentar BRÚTUS/ GRANÍT vel til tjöruhreinsunar á farartækjum, til báta- og skipahreinsunar og til daglegra þrifa á ýmsu iðnaðarhúsnæði, t.d. fitugum gólfum í matvælaiðnaði og sótugum flötum á verkstæðum. BRÚTUS/ GRANÍT er vatnsþynnanlegur og án lífrænna leysiefna og hentar því sérlega vel til þrifa í lokuðum rýmum.
Notkun:
Blöndunarhlutfall er mismunandi eftir aðstæðum. Í flestum tilfellum virkar 1-10 dl í 10 lítra af vatni mjög vel.
Notkunarhitastig er á bilinu 10-60°C.
Vinnufatnað er hægt að láta liggja yfir nótt í allt að 10% blöndu og þvo síðan í þvottavél.
Gætið þess að skola eða vinda gallana vel fyrir þvott til að forðast freyðingu.
Hægt er að láta efnið liggja í allt að 15 mínútur.
Brútus Súper Extra 4 L
Á lager
3.220 kr. með vskBrútus Super Extra 4 L
Eiginleikar:
Brútus Súper Extra er fjölnota hreinsiefni, sem leysir upp m.a. olíur, tjöru, sót, fitu og prótín.
Brútus Súper Extra er vatnsþynnanlegur og án lífrænna leysiefna og hentar því sérlega vel til þrifa í lokuðum rýmum.
Brútus Súper Extra má t.d. nota til að þrífa veggi og gólf á verkstæðum, vélar, vélasamstæður og vinnugalla.
Brútus Súper Extra er hentugt til að nota í háþrýstitæki, með eða án kvoðukúts.
Notkun:
Blöndunarhlutfall er mismunandi eftir aðstæðum. Í flestum tilfellum virkar 10-15 dl í 10 lítra af vatni mjög vel.
Notkunarhitastig er á bilinu 10-60°C.
Hægt er að láta efnið liggja í allt að 15 mínútur.
Blautsápa
Á lager
3.789 kr. með vsk5 ltr.
Blautsápa er lágfreyðandi náttúrusápa, sem hentar vel til þrífa ómeðhöndluðum trégólf, tréþiljar, stein og marmaraflísar, gólfdúka og bakaraofna. Blautsápa fjarlægir mjög vel ólykt og skilur eftir daufan gljáa um leið og hún hindrar að óhreinindi festist.
Sárasprey ChitoClear 300ml f. öll dýr
Á lager
4.350 kr. með vskChitoclear er náttúrulegt efni ætlað til meðhöndlunar á sárum á dýrum af öllum stærðum. ChitoClear er unnið úr skel af rækju sem veidd er í Norður Atlantshafi og er framleitt af líftæknifyrirtækinu Primex á Siglufirði.
- Einstaklega græðandi
- Hægir á blæðingu
- Dregur úr sársauka og kláða
- Myndar filmu og hlífir sárinu
- Vinnur gegn bakteríu og sveppamyndun
300 ml.