Sáðvörur
Sýna 37–50 af 50 niðurstöðurSorted by price: high to low
Grænf.fóðurnæpur Samson 5 kg.
Á lager
5.859 kr. með vskFóðurnæpur
Fóðurnæpa er vetrareinær breytileg káltegund sem myndar stóra forðarót að hluta til ofanjarðar á fyrsta ári.
Á öðru ári vex upp úr forðarótinni há- vaxinn blómstöngull. Næpan er með hvítan forðavef en ytri litur getur verið hvítur, gulur, grænn og/eða fjólublár.
Sáðmagn: 1,5 kg. á ha
Vaxtadagar: 100-130 dagar
Fóðurnæpur Samson 100-130 dagar
Hafrar til þroska – Luukas 25 kg
Á lager
4.488 kr. með vskSnemmþroska hafrayrki með góða uppskeru og sterkt strá sem stendur vel.
Ráðlagt sáðmagn er 180–200 kg/ha
Hafrar til þroska – Cilla 25 kg.
Á lager
5.013 kr. með vskFljótþroska hafrayrki sem hefur verið lengi á íslenska markaðnum og notið vinsælda. Yrkið hefur reynst áreiðanlegt í ræktun og gefur góða uppskeru.
Ráðlagt sáðmagn er 180–200 kg/ha.
Sáðkorn Bygg KRÍA 2R/25 kg
Á lager
4.283 kr. með vskKría 2 raða: Miðlungi fljótþroska. Kría hentar vel til notkunar víða um land síst þó á austanverðu Norðurlandi. Víðast er Kría valin vegna öryggis, þó er það gert á mismunandi forsendum eftir landshlutum. Norðanlands stendur Kría betur en sex raða yrkin og þar má láta hana standa fram eftir hausti. Sunnanlands er Kría mun fljótari til þroska en þau tví raða yrki sem þar er um að velja.
Sáðmagn: 180-200 kg/ha.
Sáðkorn Bygg Smyrill 6R/25 kg
Á lager
4.255 kr. með vskÍslenskt sexraða byggyrki úr kynbótum LBHÍ sem hefur staðið sig vel í íslenskum korntilraunum.
Ráðlagt sáðmagn er 190–215 kg/ha.
Sáðkorn Bygg Anneli 25 kg
Á lager
4.753 kr. með vskAnneli er fljótþroska tveggja raða byggyrki sem hefur skilað góðri og áreiðanlegri uppskeru. Yrkið hefur reynst vel í ræktun og hentar vel þar sem stuttur vaxtartími skiptir máli. Anneli tekur við af Filippa.
Ráðlagt sáðmagn er 180–200 kg/ha.
Grænf.S.hafrar. Belinda 25 kg
Á lager
4.687 kr. með vskSumarhafrar sem henta vel þar sem vaxtartími er nægur, þó yrkið sé fremur seint til þroska miðað við önnur hafrayrki.
Ráðlagt sáðmagn er 180–200 kg/ha.
Vorhveiti Helmi 20kg
Á lager
4.427 kr. með vskSnemmþroska vorhveiti sem hefur reynst vel í ræktun.
Ráðlagt sáðmagn er 180–200 kg/ha.
Grænf.Mergk. Angeliter 1 kg.
Á lager
4.232 kr. með vskFóðurmerkál
Fóðurmergkál er góð fóðurjurt til haustbeitar, aðallega fyrir mjólkurkýr en einnig fyrir sláturlömb
Fóðurmergkál er eitt af mörgum afbrigðum (var. acephala) af blað- og stöngulkáli. Það er vetrareinært, hávaxið með sveran mergfylltan forðastöngul og öfluga stólparót.
Blómin eru gul krossblóm en mergkál setur ekki blóm hér á landi. Blöðin eru ljósgræn, efnismikil, og frekar slétt.
Sáðmagn: 9 kg. á ha
Fóðurmergkál Gruner Angeliter 120-150 dagar
Vaxtadagar: 120-150 dagar
Happy Lawn grasfræblanda
Á lager
3.472 kr. með vskBarenbrug Happy Lawn er snjöll blanda af grasfræi og blómfræi sem gerir þér kleift að fá græna, þétta torfu og um leið lit og líf í garðinum. Blómin eru sérstaklega valin þannig að þau þola reglulegan slátt og koma aftur og aftur, sem gerir það einfalt að halda garðinum fallegum án flókins viðhalds.
Bakteríusmit f. Smára 100g
Á lager
3.124 kr. með vskSmárar þurfa bakteríusmit til að vaxa. Yfirleitt er það blandað í mjólk og hrært saman við smárann. Sáning hefst þegar fræið hefur dregið í sig vökvann.
100gr dugir til smitunar á 10 kg af smárafræi.
Geymist í kæli eftir smit.
Landgræðslublanda 1 kg
Á lager
2.194 kr. með vskGrasfræ til landgræðslu.
Notkunasviðið er allt frá því að örva gróðurframvindu á örfoka landi til þess að auka magn og gæði gróðurs.
Við uppgræðslu þarf yfirleitt að nota fræ og áburð í sömu skömmtum og notaðir eru við uppgræðslu á gróðurlausu landi.
notið 4 – 5 kg af Græði 6 eða Blákorni á 100m2
Garðablanda – Grasfræ 1 kg
Á lager
2.194 kr. með vskHentar fyrir flesta húsgarða.
Grasfræ fyrir garðflatir
Blandan hentar vel í flesta húsgarða. Blandan þolir vel snöggan slátt. Til að viðhalda fínleikanum er mikilvægt að garðurinn fari ekki loðinn undir vetur. Gott getur verið að sá yfir á vorin til að viðhalda þéttri og þolinni gróðurþekju. Ráðlagt sáðmagn er um 1–2 kg/100 m2 allt eftir þéttleika.
Fræin eru húðuð með nauðsynlegum náttúrulegum plöntuhormónum og smá köfnunarefni. Við það fellur fræið vel niður ásamt því að fjúka ekki í rokinu. Plöntuhormónarnir og köfnunarefnið hjálpa vel við að láta grasið spíra mun fljótar.





