Sáðvörur

Grasfræbl.Heyfengur 15 kg.

VNR: 2000538

Á lager

19.400 kr. með vsk

Grasfræblanda – Heyfengur 15 kg 

Eins og nafnið bendir til er þetta uppskerumikil blanda með 35% innihald af hávingli. Hávingull er uppskerumikið yrki og gefur góðan endurvöxt, ásamt úrvals vallarfoxyrkjum. Góður endurvöxtur sem gefur góðan seinni slátt.

Sáðmagn 25-30 kg/ha.

Grænf.fóðurnæpur Samson 5 kg.

VNR: 2016060

Á lager

5.859 kr. með vsk

Fóðurnæpur

Fóðurnæpa er vetrareinær breytileg káltegund sem myndar stóra forðarót að hluta til ofanjarðar á fyrsta ári.

Á öðru ári vex upp úr forðarótinni há- vaxinn blómstöngull. Næpan er með hvítan forðavef en ytri litur getur verið hvítur, gulur, grænn og/eða fjólublár.

Sáðmagn: 1,5 kg. á ha

Vaxtadagar: 100-130 dagar

Fóðurnæpur Samson 100-130 dagar

Grænf.Mergk. Angeliter 1 kg.

VNR: 2016014

Á lager

4.232 kr. með vsk

Fóðurmerkál

Fóðurmergkál er góð fóðurjurt til haustbeitar, aðallega fyrir mjólkurkýr en einnig fyrir sláturlömb

Fóðurmergkál er eitt af mörgum afbrigðum (var. acephala) af blað- og stöngulkáli. Það er vetrareinært, hávaxið með sveran mergfylltan forðastöngul og öfluga stólparót.

Blómin eru gul krossblóm en mergkál setur ekki blóm hér á landi. Blöðin eru ljósgræn, efnismikil, og frekar slétt.

Sáðmagn: 9 kg. á ha

Fóðurmergkál Gruner Angeliter 120-150 dagar

Vaxtadagar: 120-150 dagar

Hafrar til þroska – Luukas 600 kg

VNR: 2011087

Á lager

106.993 kr. með vsk

Snemmþroska hafrayrki með góða uppskeru og sterkt strá sem stendur vel.

Ráðlagt sáðmagn er 180–200 kg/ha

Sáðvörur í stórsekkjum er ekki hægt að versla í vefverslun. Hafið samband við sölumenn í síma 570 9800 fyrir nánari upplýsingar. 

Smáragrasblandan 15 kg – Forsmituð

VNR: 2000539

Á lager

21.288 kr. með vsk

Með smáraræktun fæst aukin prótein uppskera en einnig aukin binding köfnunarefnis í jarðvegi og getur því minnkað þarfir fyrir N í áburði. Lægri þörf fyrir aðkeypt prótein leiðir til meiri hagkvæmni á búinu. Gott samspil rauðsmára og hvítsmára gefur góða uppskeru, góðan endurvöxt og hvítsmárinn dreifir úr sér með jarðrenglum svo þekjan verður góð.

Sáðmagn 25-30 kg/ha.

Grasfræbl. Sígild 15 kg.

VNR: 2000536

Á lager

17.056 kr. með vsk

Grasfræblanda – Sígild 15 kg 

Upplagt til ísáningar!

Góð blanda sem hefur komið vel út hjá bændum. Góð svörun í endurræktinni. Breitt úrval vallarfoxyrkja, ásamt fjölæru rýgresi. Ferlitna rýgresi gefur meiri uppskeru og byggir upp gott gróffóður með vallarfoxgrasinu. Harðger og vetrarþolin blanda.

Sáðmagn: 20-25 kg/ha.

Sáðkorn Bygg KRÍA 2R/600 kg.

VNR: 2022516

Á lager

101.399 kr. með vsk

Miðlungi fljótþroska tveggja raða byggyrki sem er valið vegna öryggis og hefur hentað vel víða um land.

Ráðlagt sáðmagn er 180–200 kg/ha.

Sáðvörur í stórsekkjum er ekki hægt að versla í vefverslun. Hafið samband við sölumenn í síma 570 9800 fyrir nánari upplýsingar. 

Grasfr.fjölærtrýgr.Calibra 25

VNR: 2004013

Á lager

13.509 kr. með vsk

Dökkgrænt og fíngert fjölært rýgresi sem gefur góða uppskeru og hentar bæði til sláttar og beitar.

Ráðlagt sáðmagn er 25–35 kg/ha.

Grasf.Túnving. Barustic 15 kg

VNR: 2001021

Á lager

9.667 kr. með vsk

Harðgert túnvingulsyrki sem hentar vel fyrir garðflatir og landgræðslu.

Ráðlagt sáðmagn er 25–30 kg/ha.

Grasf.fjölært rýgresi Birger 20 kg

VNR: 2004020

Á lager

12.890 kr. með vsk

Ferlitna fjölært rýgresi með fínt vetrarþol sem getur gefið bragðgott og næringarríkt fóður.

Ráðlagt sáðmagn er 25–35 kg/ha.

Grasfr.vallafox. Rakel 10 kg

VNR: 2002033

Á lager

9.895 kr. með vsk

Uppskerumikið vallarfoxyrki sem gefur meiri endurvöxt en norðlæg yrki. Hentar vel þar sem markmiðið er góður vöxtur og meiri endurnýjun yfir tímabilið.

Ráðlagt sáðmagn er 20–25 kg/ha.

Grasfr. Hvítsmári Edith 10 kg – Forsmitaður

VNR: 2004075

Á lager

24.478 kr. með vsk

Forsmitaður hvítsmári sem gefur góða uppskeru og hefur nokkuð gott vetrarþol. Hentar vel þar sem markmiðið er að auka gæði beitar eða blanda smára inn í grasrækt.

Ráðlagt sáðmagn er 7–11 kg/ha.

Vorhveiti Helmi 20kg

VNR: 2011089

Á lager

4.427 kr. með vsk

Snemmþroska vorhveiti sem hefur reynst vel í ræktun.

Ráðlagt sáðmagn er 180–200 kg/ha.

Vorhveiti Helmi 600 kg

VNR: 2011090

Á lager

118.182 kr. með vsk

Snemmþroska vorhveiti sem hefur reynst vel í ræktun.

Ráðlagt sáðmagn er 180–200 kg/ha.

Sáðvörur í stórsekkjum er ekki hægt að versla í vefverslun. Hafið samband við sölumenn í síma 570 9800 fyrir nánari upplýsingar. 

Hafrar til þroska – Cilla 600 kg

VNR: 2011081

Á lager

119.524 kr. með vsk

Fljótþroska hafrayrki sem hefur verið lengi á íslenska markaðnum og notið vinsælda. Yrkið hefur reynst áreiðanlegt í ræktun og gefur góða uppskeru.

Ráðlagt sáðmagn er 180–200 kg/ha.

Sáðvörur í stórsekkjum er ekki hægt að versla í vefverslun. Hafið samband við sölumenn í síma 570 9800 fyrir nánari upplýsingar. 

Sáðkorn Bygg Anneli 25 kg

VNR: 2023011

Á lager

4.753 kr. með vsk

Anneli er fljótþroska tveggja raða byggyrki sem hefur skilað góðri og áreiðanlegri uppskeru. Yrkið hefur reynst vel í ræktun og hentar vel þar sem stuttur vaxtartími skiptir máli. Anneli tekur við af Filippa.

Ráðlagt sáðmagn er 180–200 kg/ha.

Grænf.V.repja Barcoli 25 kg.

VNR: 2015015

Á lager

20.507 kr. með vsk

Vetrarrepja

Sáðmagn kg.ha. = 10

Vaxtadagar = 90120

Hollenskur stofn sem reynst hefur vel hér á landi.

Vetrarrepja Barcoli 90-120 dagar

Blómablandan 1 kg

VNR: 2000519

Á lager

38.440 kr. með vsk

Blandаn er lágvaxin og fjölær með litríkum blómum, og er sérstaklega þróuð með sjálfbærni í huga – fyrir ræktun útsvæða, hringtorga, umferðareyja og sambærilegra svæða.

Markmiðið er að auka líffræðilegan fjölbreytileika og draga úr umhirðukostnaði hjá bæjarfélögum. Sambærilegar blöndur hafa reynst vel í norðurhluta Finnlands, sem gefur góð fyrirheit um að yrkinin þoli íslenskt veðurfar og jarðveg.

Sáning Vor, sumar og haust. Sáningardýpt 1 cm – tryggið gott sáðbeð og rúllið eftir sáningu. Til að fá jafna frædreifingu er mælt með því að forblanda fræin með hreinum sandi.

Magn

  • Með grasi: 4–5 g/m² grasfræ + 0,4–0,5 g/m² blómablanda
  • Eingöngu blómablanda: 15 kg/ha / 1,5 g/fm²

Pakkning: 1 kg