Sáðvörur

Garðablanda – Grasfræ 1 kg

VNR: 2000621

Á lager

2.194 kr. með vsk

Hentar fyrir flesta húsgarða.

Grasfræ fyrir garðflatir

Blandan hentar vel í flesta húsgarða. Blandan þolir vel snöggan  slátt. Til að viðhalda  fínleikanum er mikilvægt að  garðurinn fari ekki loðinn undir vetur. Gott getur verið  að  sá yfir á vorin til að viðhalda þéttri og þolinni gróðurþekju. Ráðlagt sáðmagn er um 1–2 kg/100 m2 allt eftir þéttleika.

Fræin eru húðuð með nauðsynlegum náttúrulegum plöntuhormónum og smá köfnunarefni. Við það fellur fræið vel niður ásamt því að fjúka ekki í rokinu. Plöntuhormónarnir og köfnunarefnið hjálpa vel við að láta grasið spíra mun fljótar.

Landgræðslublanda 1 kg

VNR: 2000609

Á lager

2.194 kr. með vsk

Grasfræ til landgræðslu.

Notkunasviðið er allt frá því að örva gróðurframvindu á örfoka landi til þess að auka magn og gæði gróðurs.

Við uppgræðslu þarf yfirleitt að nota fræ og áburð í sömu skömmtum og notaðir eru við uppgræðslu á gróðurlausu landi.

notið 4 – 5 kg af Græði 6 eða Blákorni á 100m2

Smellið hér til að fá nánari upplýsingar.

Bakteríusmit f. Smára 100g

VNR: 2004091

Á lager

3.124 kr. með vsk

Smárar þurfa bakteríusmit til að vaxa. Yfirleitt er það blandað í mjólk og hrært saman við smárann. Sáning hefst þegar fræið hefur dregið í sig vökvann.

100gr dugir til smitunar á 10 kg af smárafræi.

Geymist í kæli eftir smit.

Happy Lawn grasfræblanda

VNR: 2000517

Á lager

3.472 kr. með vsk

Barenbrug Happy Lawn er snjöll blanda af grasfræi og blómfræi sem gerir þér kleift að fá græna, þétta torfu og um leið lit og líf í garðinum. Blómin eru sérstaklega valin þannig að þau þola reglulegan slátt og koma aftur og aftur, sem gerir það einfalt að halda garðinum fallegum án flókins viðhalds.

Grænf.Mergk. Angeliter 1 kg.

VNR: 2016014

Á lager

4.232 kr. með vsk

Fóðurmerkál

Fóðurmergkál er góð fóðurjurt til haustbeitar, aðallega fyrir mjólkurkýr en einnig fyrir sláturlömb

Fóðurmergkál er eitt af mörgum afbrigðum (var. acephala) af blað- og stöngulkáli. Það er vetrareinært, hávaxið með sveran mergfylltan forðastöngul og öfluga stólparót.

Blómin eru gul krossblóm en mergkál setur ekki blóm hér á landi. Blöðin eru ljósgræn, efnismikil, og frekar slétt.

Sáðmagn: 9 kg. á ha

Fóðurmergkál Gruner Angeliter 120-150 dagar

Vaxtadagar: 120-150 dagar

Vorhveiti Helmi 20kg

VNR: 2011089

Á lager

4.427 kr. með vsk

Snemmþroska vorhveiti sem hefur reynst vel í ræktun.

Ráðlagt sáðmagn er 180–200 kg/ha.

Grænf.S.hafrar. Belinda 25 kg

VNR: 2011014

Á lager

4.687 kr. með vsk

Sumarhafrar sem henta vel þar sem vaxtartími er nægur, þó yrkið sé fremur seint til þroska miðað við önnur hafrayrki.

Ráðlagt sáðmagn er 180–200 kg/ha.

Sáðkorn Bygg Anneli 25 kg

VNR: 2023011

Á lager

4.753 kr. með vsk

Anneli er fljótþroska tveggja raða byggyrki sem hefur skilað góðri og áreiðanlegri uppskeru. Yrkið hefur reynst vel í ræktun og hentar vel þar sem stuttur vaxtartími skiptir máli. Anneli tekur við af Filippa.

Ráðlagt sáðmagn er 180–200 kg/ha.

Sáðkorn Bygg Smyrill 6R/25 kg

VNR: 2023049

Á lager

4.255 kr. með vsk

Íslenskt sexraða byggyrki úr kynbótum LBHÍ sem hefur staðið sig vel í íslenskum korntilraunum.

Ráðlagt sáðmagn er 190–215 kg/ha.

Sáðkorn Bygg KRÍA 2R/25 kg

VNR: 2022510

Á lager

4.283 kr. með vsk

Kría 2 raða: Miðlungi fljótþroska. Kría hentar vel til notkunar víða um land síst þó á austanverðu Norðurlandi. Víðast er Kría valin vegna öryggis, þó er það gert á mismunandi forsendum eftir landshlutum. Norðanlands stendur Kría betur en sex raða yrkin og þar má láta hana standa fram eftir hausti. Sunnanlands er Kría mun fljótari til þroska en þau tví raða yrki sem þar er um að velja.

Sáðmagn: 180-200 kg/ha.

Hafrar til þroska – Cilla 25 kg.

VNR: 2011079

Á lager

5.013 kr. með vsk

Fljótþroska hafrayrki sem hefur verið lengi á íslenska markaðnum og notið vinsælda. Yrkið hefur reynst áreiðanlegt í ræktun og gefur góða uppskeru.

Ráðlagt sáðmagn er 180–200 kg/ha.

Hafrar til þroska – Luukas 25 kg

VNR: 2011086

Á lager

4.488 kr. með vsk

Snemmþroska hafrayrki með góða uppskeru og sterkt strá sem stendur vel.

Ráðlagt sáðmagn er 180–200 kg/ha

Grænf.fóðurnæpur Samson 5 kg.

VNR: 2016060

Á lager

5.859 kr. með vsk

Fóðurnæpur

Fóðurnæpa er vetrareinær breytileg káltegund sem myndar stóra forðarót að hluta til ofanjarðar á fyrsta ári.

Á öðru ári vex upp úr forðarótinni há- vaxinn blómstöngull. Næpan er með hvítan forðavef en ytri litur getur verið hvítur, gulur, grænn og/eða fjólublár.

Sáðmagn: 1,5 kg. á ha

Vaxtadagar: 100-130 dagar

Fóðurnæpur Samson 100-130 dagar

Ertur Ingrid 25.KG

VNR: 2004098

Á lager

5.891 kr. með vsk

Uppskerumiklar fóðurertur sem mynda gular baunir við fullan þroska. Ingrid er með sterkbyggðan og langan stöngul og ver sig því ágætlega gegn illgresi.

Ráðlagt sáðmagn er 200–250 kg/ha.

Grasf.Túnving. Barustic 15 kg

VNR: 2001021

Á lager

9.667 kr. með vsk

Harðgert túnvingulsyrki sem hentar vel fyrir garðflatir og landgræðslu.

Ráðlagt sáðmagn er 25–30 kg/ha.

Grasfr.vallafox. Rakel 10 kg

VNR: 2002033

Á lager

9.895 kr. með vsk

Uppskerumikið vallarfoxyrki sem gefur meiri endurvöxt en norðlæg yrki. Hentar vel þar sem markmiðið er góður vöxtur og meiri endurnýjun yfir tímabilið.

Ráðlagt sáðmagn er 20–25 kg/ha.

Grasf.fjölært rýgresi Birger 20 kg

VNR: 2004020

Á lager

12.890 kr. með vsk

Ferlitna fjölært rýgresi með fínt vetrarþol sem getur gefið bragðgott og næringarríkt fóður.

Ráðlagt sáðmagn er 25–35 kg/ha.