Sáðvörur
Sýna 1–18 af 50 niðurstöðurSorted by popularity
Grænf.V.repja Barcoli 25 kg.
Á lager
20.507 kr. með vskVetrarrepja
Sáðmagn kg.ha. = 10
Vaxtadagar = 90120
Hollenskur stofn sem reynst hefur vel hér á landi.
Vetrarrepja Barcoli 90-120 dagar
Blómablandan 1 kg
Á lager
38.440 kr. með vskBlandаn er lágvaxin og fjölær með litríkum blómum, og er sérstaklega þróuð með sjálfbærni í huga – fyrir ræktun útsvæða, hringtorga, umferðareyja og sambærilegra svæða.
Markmiðið er að auka líffræðilegan fjölbreytileika og draga úr umhirðukostnaði hjá bæjarfélögum. Sambærilegar blöndur hafa reynst vel í norðurhluta Finnlands, sem gefur góð fyrirheit um að yrkinin þoli íslenskt veðurfar og jarðveg.
Sáning Vor, sumar og haust. Sáningardýpt 1 cm – tryggið gott sáðbeð og rúllið eftir sáningu. Til að fá jafna frædreifingu er mælt með því að forblanda fræin með hreinum sandi.
Magn
- Með grasi: 4–5 g/m² grasfræ + 0,4–0,5 g/m² blómablanda
- Eingöngu blómablanda: 15 kg/ha / 1,5 g/fm²
Pakkning: 1 kg
Grænf.Vetrarrýgresi Barmultra 25 kg.
Á lager
15.624 kr. með vskVetrarrýgresi Barpluto: Vetrarrýgresi, ferlitna, blaðríkt, lágvaxið og skríður nánast ekkert. Þrautreynt hérlendis og mikið notað um árabil.
Sáðmagn: 30-40 kg/ha.
Vetrarrýgresi Barmultra (4 n)70-100 dagar
Grænf.V.repja Ringo 25 kg.
Á lager
20.507 kr. með vskVetrarrepjan, sem einnig er kölluð fóðurkál, fer ekki í kynvöxt á fyrsta sumri eftir sáningu. Hún sprettur mun hægar og þarf u.þ.b. 120 vaxtardaga til að ná þokkalegri stærð.
Þetta afbrigði er einstaklega heppilegt til beitar, vegna þess að það sprettur ekki úr sér. Plantan heldur sér vel fram á haust og því mikið notuð til að bata lömb á haustin eftir að þau hafa komið af fjalli.
Að sama skapi er hún vinsæl sem fóður fyrir mjólkurkýr í hárri nyt.
Uppskerumikið og blaðríkt
Sáðmagn: 10 kg / ha
Vetrarrepja Ringo 90-120 dagar
Grasfr.Vallarfox. Tuukka 25 kg.
Á lager
25.715 kr. með vskVallarfoxgras Tuuka gefur góða uppskeru. í rannsóknum hefur Tuuka einnig gefið gott fóðurgildi. Vetrarþol þokkalegt – finnar telja Tuuka með vetrarþolnari yrkjum sem þeir rækta.
Sáðmagn pr. ha =20-25 kg
Gaf heldur meiri uppskeru en Snorri í tilraunum hér á landi en minni uppskeru en Grindstad. Í finnskum rannsóknum hafði það betra fóðurgildi en Grindstad. Vetrarþol gott. Finnar telja það með vetrarþolnari yrkjum við sínar aðstæður
Grasfr.Vallarfox Tenho 25 kg.
Á lager
25.715 kr. með vskUppskerumikið vallarfoxyrki með þokkalegt vetrarþol. Góður kostur þar sem áhersla er á afköst og stöðugan vöxt.
Ráðlagt sáðmagn er 20–25 kg/ha.
Grænf.S.rýgr.Barspectra 25kg
Á lager
15.624 kr. með vskSumarrýgresi Barspectra: Sumarrýgresi, ferlitna gamalt yrki sem hefur
reynst mjög vel hér á landi. Hávaxið og skríður snemma, góður endurvöxtur.
Sáðmagn 30-40 kg/ha.
Sumarrýgresi Barspectra 2 (4 n) 50-60 dagar
Strandreyr – Bamse 10 kg
Á lager
21.353 kr. með vskHálmur sem hentar vel og kemur í 10 kg sekk.
Fjölær planta og er aðallega ræktaður vegna hálmsins, til undirburðar þá aðallega. Harðgerð planta sem kemur upp ár eftir ár. Gefur mikla uppskeru og hentar vel til framleiðslu á hálmi sem nýttur er sem undirburður fyrir búfé.
Ráðlagt sáðmagn er 15–20 kg/ha.
Sáðkorn Bygg Smyrill 6R/25 kg
Á lager
4.255 kr. með vskÍslenskt sexraða byggyrki úr kynbótum LBHÍ sem hefur staðið sig vel í íslenskum korntilraunum.
Ráðlagt sáðmagn er 190–215 kg/ha.
Protaplus 15 kg – Rýgresisblanda m. smára
Á lager
13.867 kr. með vskProtoplus (rýgresi + smári): Protaplus er einært rýgresi með hraðsprotnum smára. Spennandi blanda sem hefur gefið góða raun í tilraunum í Evrópu, þar á meðal Finnlandi.
Sáðmagn: 30-40 kg/ha.
Rýgresi og smárablanda Protaplus 70-120 dagar
Landgræðslublanda 1 kg
Á lager
2.194 kr. með vskGrasfræ til landgræðslu.
Notkunasviðið er allt frá því að örva gróðurframvindu á örfoka landi til þess að auka magn og gæði gróðurs.
Við uppgræðslu þarf yfirleitt að nota fræ og áburð í sömu skömmtum og notaðir eru við uppgræðslu á gróðurlausu landi.
notið 4 – 5 kg af Græði 6 eða Blákorni á 100m2
Landgræðslublanda 15 kg
Á lager
30.955 kr. með vskLangræðslufræ
Landgræðslublanda – Grasfræ til landgræðslu – 15kg
Ný blanda með túnvingul, vallarsveifrasi og rýgresi.
Algengt sáðmagn er 2-3kg af fræinu á 100m2.
Nota skal 4-5kg af áburði(Blákorn eða Græðir 6) með fræinu. Blanda hvoru tveggja saman og dreifa.
Óráðlegt er að sá í miklum þurrkum ef ekki er hægt að vökva. Forðist að sá ef það er mjög hvasst.
Hentugast er að sá frá maí fram í miðjan ágúst.
Sáðkorn Bygg KRÍA 2R/25 kg
Á lager
4.283 kr. með vskKría 2 raða: Miðlungi fljótþroska. Kría hentar vel til notkunar víða um land síst þó á austanverðu Norðurlandi. Víðast er Kría valin vegna öryggis, þó er það gert á mismunandi forsendum eftir landshlutum. Norðanlands stendur Kría betur en sex raða yrkin og þar má láta hana standa fram eftir hausti. Sunnanlands er Kría mun fljótari til þroska en þau tví raða yrki sem þar er um að velja.
Sáðmagn: 180-200 kg/ha.
Hafrar til þroska – Luukas 25 kg
Á lager
4.488 kr. með vskSnemmþroska hafrayrki með góða uppskeru og sterkt strá sem stendur vel.
Ráðlagt sáðmagn er 180–200 kg/ha
Grasfræbl. Vallarfox 15 kg.
Á lager
17.837 kr. með vskVallarfoxblandan – 15kg
Á sínum tíma báðu ráðunautar sérstaklega um svona blöndu. Vallarfoxgras er uppskerumikið, með gott fóðurgildi og er afar lystug grastegund. Með því að blanda þessum vallarfoxyrkjum saman næst góður fjölbreytileiki.
Sáðmagn: 25-30 kg/ha.
Grasfræbl.Beit og heyfengur 15 kg.
Á lager
18.228 kr. með vskGrasfræblanda – Beit og heyfengur 15kg
Söluhæsta grasfræblandan okkar undanfarin ár. Gefur góða beit og slátt með góðu fóðurgildi. Vallarfoxgras, sem er uppistaðan í blöndunni, er uppskerumikið en ekki skriðult. Vallarsveifgras er skriðul jurt, sem fyllir upp í opinn svörð og hóf- eða klaufaför eftir ágang og beit.
Sáðmagn: 25-30 kg/ha.
Grasfræbl.Heyfengur 15 kg.
Á lager
19.400 kr. með vskGrasfræblanda – Heyfengur 15 kg
Eins og nafnið bendir til er þetta uppskerumikil blanda með 35% innihald af hávingli. Hávingull er uppskerumikið yrki og gefur góðan endurvöxt, ásamt úrvals vallarfoxyrkjum. Góður endurvöxtur sem gefur góðan seinni slátt.
Sáðmagn 25-30 kg/ha.
Garðablanda – Grasfræ 15 kg
Á lager
30.955 kr. með vskHentar fyrir flesta húsgarða.
Grasfræ fyrir garðflatir
Blandan hentar vel í flesta húsgarða. Blandan þolir vel snöggan slátt. Til að viðhalda fínleikanum er mikilvægt að garðurinn fari ekki loðinn undir vetur. Gott getur verið að sá yfir á vorin til að viðhalda þéttri og þolinni gróðurþekju. Ráðlagt sáðmagn er um 1–2 kg/100 m2 allt eftir þéttleika.
Fræin eru húðuð með nauðsynlegum náttúrulegum plöntuhormónum og smá köfnunarefni. Við það fellur fræið vel niður ásamt því að fjúka ekki í rokinu. Plöntuhormónarnir og köfnunarefnið hjálpa vel við að láta grasið spíra mun fljótar.





