Túnin

Grænf.V.repja Ringo 25 kg.

VNR: 2013017

Á lager

20.507 kr. með vsk

Vetrarrepjan, sem einnig er kölluð fóðurkál, fer ekki í kynvöxt á fyrsta sumri eftir sáningu. Hún sprettur mun hægar og þarf u.þ.b. 120 vaxtardaga til að ná þokkalegri stærð.

Þetta afbrigði er einstaklega heppilegt til beitar, vegna þess að það sprettur ekki úr sér. Plantan heldur sér vel fram á haust og því mikið notuð til að bata lömb á haustin eftir að þau hafa komið af fjalli.

Að sama skapi er hún vinsæl sem fóður fyrir mjólkurkýr í hárri nyt.

Uppskerumikið og blaðríkt

Sáðmagn: 10 kg / ha

Vetrarrepja Ringo 90-120 dagar

Grasfr.Vallarfox. Tuukka 25 kg.

VNR: 2003046

Á lager

25.715 kr. með vsk

Vallarfoxgras Tuuka gefur góða uppskeru. í rannsóknum hefur Tuuka einnig gefið gott fóðurgildi. Vetrarþol þokkalegt – finnar telja Tuuka með vetrarþolnari yrkjum sem þeir rækta.

Sáðmagn pr. ha =20-25 kg

Gaf heldur meiri uppskeru en Snorri í tilraunum hér á landi en minni uppskeru  en Grindstad. Í finnskum rannsóknum hafði það betra fóðurgildi en Grindstad. Vetrarþol gott. Finnar telja það með vetrarþolnari yrkjum við sínar aðstæður

Grasfr.Vallarfox Tenho 25 kg.

VNR: 2003047

Á lager

25.715 kr. með vsk

Uppskerumikið vallarfoxyrki með þokkalegt vetrarþol. Góður kostur þar sem áhersla er á afköst og stöðugan vöxt.

Ráðlagt sáðmagn er 20–25 kg/ha.

Grænf.S.rýgr.Barspectra 25kg

VNR: 2012015

Á lager

15.624 kr. með vsk

Sumarrýgresi Barspectra: Sumarrýgresi, ferlitna gamalt yrki sem hefur
reynst mjög vel hér á landi. Hávaxið og skríður snemma, góður endurvöxtur.

Sáðmagn 30-40 kg/ha.

Sumarrýgresi Barspectra 2 (4 n) 50-60 dagar

Strandreyr – Bamse 10 kg

VNR: 2005051

Á lager

21.353 kr. með vsk

Hálmur sem hentar vel og kemur í 10 kg sekk.

Fjölær planta og er aðallega ræktaður vegna hálmsins, til undirburðar þá aðallega. Harðgerð planta sem kemur upp ár eftir ár. Gefur mikla uppskeru og hentar vel til framleiðslu á hálmi sem nýttur er sem undirburður fyrir búfé.

Ráðlagt sáðmagn er 15–20 kg/ha.

Sáðkorn Bygg KRÍA 2R/25 kg

VNR: 2022510

Á lager

4.283 kr. með vsk

Kría 2 raða: Miðlungi fljótþroska. Kría hentar vel til notkunar víða um land síst þó á austanverðu Norðurlandi. Víðast er Kría valin vegna öryggis, þó er það gert á mismunandi forsendum eftir landshlutum. Norðanlands stendur Kría betur en sex raða yrkin og þar má láta hana standa fram eftir hausti. Sunnanlands er Kría mun fljótari til þroska en þau tví raða yrki sem þar er um að velja.

Sáðmagn: 180-200 kg/ha.

Hafrar til þroska – Luukas 25 kg

VNR: 2011086

Á lager

4.488 kr. með vsk

Snemmþroska hafrayrki með góða uppskeru og sterkt strá sem stendur vel.

Ráðlagt sáðmagn er 180–200 kg/ha

Grasfræbl. Vallarfox 15 kg.

VNR: 2000535

Á lager

17.837 kr. með vsk

Vallarfoxblandan – 15kg

Á sínum tíma báðu ráðunautar sérstaklega um svona blöndu. Vallarfoxgras er uppskerumikið, með gott fóðurgildi og er afar lystug grastegund. Með því að blanda þessum vallarfoxyrkjum saman næst góður fjölbreytileiki.

Sáðmagn: 25-30 kg/ha.

Grasfræbl.Beit og heyfengur 15 kg.

VNR: 2000537

Á lager

18.228 kr. með vsk

Grasfræblanda – Beit og heyfengur 15kg

Söluhæsta grasfræblandan okkar undanfarin ár. Gefur góða beit og slátt með góðu fóðurgildi. Vallarfoxgras, sem er uppistaðan í blöndunni, er uppskerumikið en ekki skriðult. Vallarsveifgras er skriðul jurt, sem fyllir upp í opinn svörð og hóf- eða klaufaför eftir ágang og beit.

Sáðmagn: 25-30 kg/ha.

Grasfræbl.Heyfengur 15 kg.

VNR: 2000538

Á lager

19.400 kr. með vsk

Grasfræblanda – Heyfengur 15 kg 

Eins og nafnið bendir til er þetta uppskerumikil blanda með 35% innihald af hávingli. Hávingull er uppskerumikið yrki og gefur góðan endurvöxt, ásamt úrvals vallarfoxyrkjum. Góður endurvöxtur sem gefur góðan seinni slátt.

Sáðmagn 25-30 kg/ha.

Grænf.fóðurnæpur Samson 5 kg.

VNR: 2016060

Á lager

5.859 kr. með vsk

Fóðurnæpur

Fóðurnæpa er vetrareinær breytileg káltegund sem myndar stóra forðarót að hluta til ofanjarðar á fyrsta ári.

Á öðru ári vex upp úr forðarótinni há- vaxinn blómstöngull. Næpan er með hvítan forðavef en ytri litur getur verið hvítur, gulur, grænn og/eða fjólublár.

Sáðmagn: 1,5 kg. á ha

Vaxtadagar: 100-130 dagar

Fóðurnæpur Samson 100-130 dagar

Grænf.Mergk. Angeliter 1 kg.

VNR: 2016014

Á lager

4.232 kr. með vsk

Fóðurmerkál

Fóðurmergkál er góð fóðurjurt til haustbeitar, aðallega fyrir mjólkurkýr en einnig fyrir sláturlömb

Fóðurmergkál er eitt af mörgum afbrigðum (var. acephala) af blað- og stöngulkáli. Það er vetrareinært, hávaxið með sveran mergfylltan forðastöngul og öfluga stólparót.

Blómin eru gul krossblóm en mergkál setur ekki blóm hér á landi. Blöðin eru ljósgræn, efnismikil, og frekar slétt.

Sáðmagn: 9 kg. á ha

Fóðurmergkál Gruner Angeliter 120-150 dagar

Vaxtadagar: 120-150 dagar

Hafrar til þroska – Luukas 600 kg

VNR: 2011087

Á lager

106.993 kr. með vsk

Snemmþroska hafrayrki með góða uppskeru og sterkt strá sem stendur vel.

Ráðlagt sáðmagn er 180–200 kg/ha

Sáðvörur í stórsekkjum er ekki hægt að versla í vefverslun. Hafið samband við sölumenn í síma 570 9800 fyrir nánari upplýsingar. 

Smáragrasblandan 15 kg – Forsmituð

VNR: 2000539

Á lager

21.288 kr. með vsk

Með smáraræktun fæst aukin prótein uppskera en einnig aukin binding köfnunarefnis í jarðvegi og getur því minnkað þarfir fyrir N í áburði. Lægri þörf fyrir aðkeypt prótein leiðir til meiri hagkvæmni á búinu. Gott samspil rauðsmára og hvítsmára gefur góða uppskeru, góðan endurvöxt og hvítsmárinn dreifir úr sér með jarðrenglum svo þekjan verður góð.

Sáðmagn 25-30 kg/ha.

Grasfræbl. Sígild 15 kg.

VNR: 2000536

Á lager

17.056 kr. með vsk

Grasfræblanda – Sígild 15 kg 

Upplagt til ísáningar!

Góð blanda sem hefur komið vel út hjá bændum. Góð svörun í endurræktinni. Breitt úrval vallarfoxyrkja, ásamt fjölæru rýgresi. Ferlitna rýgresi gefur meiri uppskeru og byggir upp gott gróffóður með vallarfoxgrasinu. Harðger og vetrarþolin blanda.

Sáðmagn: 20-25 kg/ha.

Stæðuplast 2 in 1 – 12 x 50m

VNR: 2001064

Á lager

73.656 kr. með vsk

Polydress® O2 Barrier 2in1 – Stæðuplast 12×50

Polydress® O2 Barrier 2in1 stæðuplastið er hágæða, vinnusparandi lausn til þakningar á stæðum. 

  • Yfir- og undirfilman eru saman í rúllu með hámarks vörn gegn ytri áhrifum og tryggja fullkomnar niðurstöður í gerjunarferlinu
  • Varðveitir næringarefni
  • Einfalt og fljótlegt í notkun
  • Fljótlegt, allt að 50% vinnusparnaður
  • Framleitt með sjálfbærni að leiðarljósi

Kíktu á myndbandið hér fyrir neðan.

Fæst í nokkrum stærðum.

Stæðuplast 2in1

Sáðkorn Bygg KRÍA 2R/600 kg.

VNR: 2022516

Á lager

101.399 kr. með vsk

Miðlungi fljótþroska tveggja raða byggyrki sem er valið vegna öryggis og hefur hentað vel víða um land.

Ráðlagt sáðmagn er 180–200 kg/ha.

Sáðvörur í stórsekkjum er ekki hægt að versla í vefverslun. Hafið samband við sölumenn í síma 570 9800 fyrir nánari upplýsingar. 

Grasfr.fjölærtrýgr.Calibra 25

VNR: 2004013

Á lager

13.509 kr. með vsk

Dökkgrænt og fíngert fjölært rýgresi sem gefur góða uppskeru og hentar bæði til sláttar og beitar.

Ráðlagt sáðmagn er 25–35 kg/ha.