Túnin
Sýna 19–36 af 229 niðurstöðurSorted by popularity
Raða eftir
Sía eftir verði
Stærð
Birgðastaða
Fáanlegt í verslun
Grænf.Vetrarrýgresi Barmultra 25 kg.
Á lager
15.624 kr. með vskVetrarrýgresi Barpluto: Vetrarrýgresi, ferlitna, blaðríkt, lágvaxið og skríður nánast ekkert. Þrautreynt hérlendis og mikið notað um árabil.
Sáðmagn: 30-40 kg/ha.
Vetrarrýgresi Barmultra (4 n)70-100 dagar
Grænf.V.repja Ringo 25 kg.
Á lager
20.507 kr. með vskVetrarrepjan, sem einnig er kölluð fóðurkál, fer ekki í kynvöxt á fyrsta sumri eftir sáningu. Hún sprettur mun hægar og þarf u.þ.b. 120 vaxtardaga til að ná þokkalegri stærð.
Þetta afbrigði er einstaklega heppilegt til beitar, vegna þess að það sprettur ekki úr sér. Plantan heldur sér vel fram á haust og því mikið notuð til að bata lömb á haustin eftir að þau hafa komið af fjalli.
Að sama skapi er hún vinsæl sem fóður fyrir mjólkurkýr í hárri nyt.
Uppskerumikið og blaðríkt
Sáðmagn: 10 kg / ha
Vetrarrepja Ringo 90-120 dagar
Grasfr.Vallarfox. Tuukka 25 kg.
Á lager
25.715 kr. með vskVallarfoxgras Tuuka gefur góða uppskeru. í rannsóknum hefur Tuuka einnig gefið gott fóðurgildi. Vetrarþol þokkalegt – finnar telja Tuuka með vetrarþolnari yrkjum sem þeir rækta.
Sáðmagn pr. ha =20-25 kg
Gaf heldur meiri uppskeru en Snorri í tilraunum hér á landi en minni uppskeru en Grindstad. Í finnskum rannsóknum hafði það betra fóðurgildi en Grindstad. Vetrarþol gott. Finnar telja það með vetrarþolnari yrkjum við sínar aðstæður
Grasfr.Vallarfox Tenho 25 kg.
Á lager
25.715 kr. með vskUppskerumikið vallarfoxyrki með þokkalegt vetrarþol. Góður kostur þar sem áhersla er á afköst og stöðugan vöxt.
Ráðlagt sáðmagn er 20–25 kg/ha.
Töng f/Gripple
Á lager
25.990 kr. með vskGripple töng til að strekkja á girðingum
Þolir tog allta að 400 kg.
Grænf.S.rýgr.Barspectra 25kg
Á lager
15.624 kr. með vskSumarrýgresi Barspectra: Sumarrýgresi, ferlitna gamalt yrki sem hefur
reynst mjög vel hér á landi. Hávaxið og skríður snemma, góður endurvöxtur.
Sáðmagn 30-40 kg/ha.
Sumarrýgresi Barspectra 2 (4 n) 50-60 dagar
Strandreyr – Bamse 10 kg
Á lager
21.353 kr. með vskHálmur sem hentar vel og kemur í 10 kg sekk.
Fjölær planta og er aðallega ræktaður vegna hálmsins, til undirburðar þá aðallega. Harðgerð planta sem kemur upp ár eftir ár. Gefur mikla uppskeru og hentar vel til framleiðslu á hálmi sem nýttur er sem undirburður fyrir búfé.
Ráðlagt sáðmagn er 15–20 kg/ha.
Sáðkorn Bygg Smyrill 6R/25 kg
Á lager
4.255 kr. með vskÍslenskt sexraða byggyrki úr kynbótum LBHÍ sem hefur staðið sig vel í íslenskum korntilraunum.
Ráðlagt sáðmagn er 190–215 kg/ha.
Sil-all 4×4 50T 250 gr (eitt bréf)
Á lager
21.068 kr. með vskSilAll 4×4+ er mikilvægur þáttur í úrvalsheyverkun !
Hvað er SilAll 4×4+?
SilAll 4×4+ er duft sem inniheldur frostþurrkaða mjólkursýrugerla og hvata
(ensím) sem brjóta niður tréni. SilAll 4×4 bætir verkun á votverkuðu fóðri
(20-60% þurrefni) hvort sem um er að ræða rúllur eða stæður. Duftið sem
selt er í litlum pokum, er auðleysanlegt í volgu vatni og skömmtun er 2 lítrar
í hvert tonn af fóðri.
250 gramma poki dugar í 50 tonn af heyi
Rúlluplast SILOTITE 75 CM SVART 1500
Á lager
17.596 kr. með vsk750mm*25µm*1500mm
Silotite – mjög sterk, 5 laga, teygjanleg hágæðafilma sem þolir hraðvirkar vafningsvélar og grófa, stilkmikla fóðuruppskeru.
4 lög – Fjöldi rúlla ca. 30 – 32
6 lög – Fjöldi rúlla ca. 20 – 23
Rúlluplast Pro Silotite 750 x 0,020 x 2000m HVÍTT
Á lager
22.060 kr. með vskSilotitePro2000 er afkastamikið rúlluplast sem er hannað fyrir hámarks skilvirkni í rúllugerð. Filman er sérstaklega hentug fyrir samsettar rúlluvélar/pökkunarvélar og er þróuð til að skila sem flestum böggum úr hverri rúllu, með færri stoppum og minni sóun. Þetta gerir hana að öflugum valkosti fyrir bændur og verktaka sem vilja hámarka afköst án þess að gefa eftir í gæðum.
Með 2000 metra lengd býður SilotitePro2000 upp á mesta mögulega baggafjölda innan SilotitePro línunnar. Samkvæmt framleiðanda getur hún skilað allt að 33% fleiri böggum á hverja rúllu miðað við Silotite Original 25 μm, 1500 m filmu. Það þýðir færri filmuskipti, betri nýtingu á vinnutíma og aukna hagkvæmni þegar mikið er um að vera.
SilotitePro2000 er framleidd með nýjustu hráefnum og fullkomnum framleiðsluaðferðum sem styrkja lykileiginleika rúlluplasts fyrir votheysgerð. Þar sem þetta er forspennt filma (pre-orientated film) hefur hún bættan súrefnishindrunareiginleika, sem skiptir miklu máli fyrir góða varðveislu uppskerunnar og öruggari fóðurgeymslu. Hún hentar einnig sérstaklega vel með Baletite baler film í svokölluðu Film & Film kerfi.



