Sumarhúsið og garðurinn

Blómablandan 1 kg

VNR: 2000519

Á lager

38.440 kr. með vsk

Blandаn er lágvaxin og fjölær með litríkum blómum, og er sérstaklega þróuð með sjálfbærni í huga – fyrir ræktun útsvæða, hringtorga, umferðareyja og sambærilegra svæða.

Markmiðið er að auka líffræðilegan fjölbreytileika og draga úr umhirðukostnaði hjá bæjarfélögum. Sambærilegar blöndur hafa reynst vel í norðurhluta Finnlands, sem gefur góð fyrirheit um að yrkinin þoli íslenskt veðurfar og jarðveg.

Sáning Vor, sumar og haust. Sáningardýpt 1 cm – tryggið gott sáðbeð og rúllið eftir sáningu. Til að fá jafna frædreifingu er mælt með því að forblanda fræin með hreinum sandi.

Magn

  • Með grasi: 4–5 g/m² grasfræ + 0,4–0,5 g/m² blómablanda
  • Eingöngu blómablanda: 15 kg/ha / 1,5 g/fm²

Pakkning: 1 kg

Kalksaltpétur 7 kg

VNR: 1175413

Á lager

2.089 kr. með vsk

Kalksaltpétur er áhrifaríkur vatnsleysanlegur áburður sem sameinar köfnunarefni og kalk – fullkominn fyrir plöntur sem þurfa aukinn styrk og hraðan vöxt. Hann örvar grósku, styrkir frumuveggi og kemur í veg fyrir kalsíumskort, sem getur valdið sjúkdómum á borð við topprot í tómötum og paprikum.

Hentar sérstaklega vel fyrir:

Grænmetisrækt (tómata, papriku, salat o.fl.)

Ávaxtatré og berjarunna

Ræktun í gróðurhúsum og pottaplöntur

Innihald: Ca(NO₃)₂ – inniheldur c. 15% köfnunarefni og 19% kalsíum

Graskorn Fljótandi – 2.5 L

VNR: 1133804-2.5L

Á lager

4.590 kr. með vsk

Graskorn fljótandi er fljótvirkur áburður fyrir grasflatir sem hjálpar til við að viðhalda góðri næringu grasplantna og stuðla að grænni, þéttri og heilbrigðri flöt. Áburðurinn er NPK-blanda þar sem hlutföll aðalnæringarefnanna eru miðuð við meðalþörf grasflatarinnar. Hann nýtist fljótt þar sem næringin berst til grassins bæði í gegnum blöð og rótarkerfi.

Varan er einföld í notkun og hentar vel fyrir þá sem vilja bera á grasflötina á þægilegan og jafnan hátt. Brúsinn er hristur fyrir notkun, tengdur við garðslöngu og áburðinum dreift jafnt yfir svæðið.

Blákorn Fljótandi 2.5 L

VNR: 1132804-2.5L

Á lager

3.990 kr. með vsk

Blákorn fljótandi er alhliða, fljótandi NPK-áburður fyrir garðinn. Hann er klórsnauður og inniheldur brennistein og bór, sem styðja við heilbrigðan vöxt plantna og góða næringarupptöku. Áburðurinn hentar vel fyrir grasflatir, blómabeð, matjurtagarða, skrautrunna og tré.

Áburðurinn gefur plöntum nauðsynlega næringu í gegnum bæði blöð og rótarkerfi og verkar hratt. Hann er þægilegur í notkun þar sem brúsinn tengist beint við garðslöngu og auðvelt er að dreifa honum jafnt yfir svæðið.

Vatnsbyssa

VNR: AL92961404

Á lager

6.476 kr. með vsk

Úðakútur 5ltr

VNR: CG404-172

Á lager

2.357 kr. með vsk
  • Úðabrúsi RYOM.
  • Með bandi til að setja úðarann á öxlina.
  • Járn sprauturör með plast stút.
  • Inniheldur 5 lítra

Úðakútur 16ltr

VNR: CG404-177

Á lager

6.932 kr. með vsk

Slöngukefli m.slöngu og byssu

VNR: D01024

Á lager

10.230 kr. með vsk

Slanga: 15 metrar

Garðafosfat 7 kg

VNR: 1152104

Á lager

3.590 kr. með vsk
Garðafosfat
Garðafosfat er fosfórríkur áburður með köfnunarefni og er einkum notaður með blönduðum áburði þar sem fosfórskortur er.
  • Fosfór er eitt af helstu næringarefnum jurta. Garðafosfat stuðlar að auknum undirvexti garðávaxta og styrkir rótarkerfi trjáa og grasa.
  • Fosfór eykur þurrefnismagn og þar með matagæði kartaflna sem og annara matjurta.
  • Ef um mikinn fosfórskort er að ræða verða jurtirnar blágrænar og oft kemur á þær fjólublár litur.

Græðir 6, 25 kg

VNR: 1133625

Á lager

6.690 kr. með vsk

Græðir 6

Græðir er tilbúinn áburður fyrir grasflatir. Áburðurinn er settur saman þannig að hann liggur nálægt meðalþörf. Ætti að viðhalda þeirri þörf sem jarðvegurinn þarf sé ekki um skort að ræða.

Ef grasflötin á að vera falleg, þétt og ræktarleg þá þarf að ná upp vextinum en þá þarf líka að slá oftar.

  • Ráðlagður skammtur er um 40gr. á m2 – ca 2 lúkur.
  • Bera skal Græði á um leið og farið er að grænka.
  • Ekki skal nota græði á sumarblóm, rifsberjarunna og kartöflur.

Klóra Fiskars 493

VNR: 3601042

Á lager

3.970 kr. með vsk