Landbúnaður
Sýna 181–198 af 346 niðurstöðurSorted by price: high to low
Raða eftir
Sía eftir verði
Litir
Stærð
Birgðastaða
Fáanlegt í verslun
Júgurþvottalögur 5 L
Á lager
4.950 kr. með vsk5 lítrar
Júgurþvottalögur – sótthreinsandi þvottalögur með klórhexidíni.
Júgurþvottalögur er tvívirkt hreinsiefni, sem bæði hreinsar og sótthreinsar samtímis. Júgurþvottalögur inniheldur hvorki ilm- né litarefni. Regluleg notkun júgurþvottalagar og glýserín joðófór til skiptis varnar útbreiðslu júgurbólgu.
Blöndun:
Þvottur og sótthreinsun á júgrum: blandið 5ml (uþb. 1/2 tappa ) í 1 ltr af vatni.
Spenadýfa: Blandið 1 hluta af júgurþvottalegi með 5 hlutum af vatni.
Sótthreinsun á höndum: Notið júgurþvottalög óblandaðan. Skolið hendur vel á eftir með vatni.
Sótthreinsun þvottaklúta: blandið 5ml (uþb. 1/2 tappa ) í 1 ltr af vatni.
Innihald: vatn, klórhexidíndíglúkónat, glýseról, jónísk og ójónísk yfirborðsvirk efni.
Sýrustig: Óblandað pH 6,5
Ath.
Nauðsynlegt er að nota júgurþvottalög og glýserín joðófór til skiptis til að koma í veg fyrir ónæmi baktería.
Ungakögglar U2 óerfðabreyttir 25kg
Á lager
4.671 kr. með vskUngakögglar 2
25 kg
Heilfóður fyrir varphænuunga.
Frá 7 vikna aldri og fram undir varp.
Piparmyntukrem sterkt 500ml
Á lager
4.581 kr. með vskPiparmyntukremið inniheldur náttúruleg efni sem eru þekkt fyrir að draga úr bólgum og hefur græðandi áhrif.
Kremið er kælandi og róandi minnkar óþægindi vegna júgurbólgu.
Inniheldur: piparmyntu olíu, lanolín, glýseról, allantónin, kamillu og júkalyptus
Kalksaltsteinn m/hvítlauk 7,5 kg
Á lager
4.490 kr. með vskHvítlaukssteinn er 7.5 kg saltbætiefnasteinn sem passar bæði í hefðbundin saltsteinaform og er hægt að hengja upp. Kúabændur sem nota kalksalt með hvítlauk hafa séð frumutöluna lækka og efnainnihaldið aukast.
H-kögglar
Á lager
159 kr. – 4.467 kr.Price range: 159 kr. through 4.467 kr. með vskH-kögglar eru kjarnfóður fyrir mjólkurkýr sem hentar sérstaklega vel með blautverkuðum rúllum og próteinsnauðu heyi. Fóðrið er góður kostur þegar bæta þarf upp prótein og næringu í gróffóðri og styðja við jafnvægi í daglegri fóðrun.
H-kögglar henta vel fyrir kúabú sem vilja einfalt, lystugt og markvisst kjarnfóður til að styðja við mjólkurframleiðslu, fóðurnýtingu og almennt heilbrigði mjólkurkúa.
Kalksaltsteinn 7,5 kg
Á lager
4.335 kr. með vskKalksalt ehf. er eina fyrirtækið á Íslandi sem framleiðir saltbætiefnafötur fyrir búfénað en saltið í bætiefnafötunum kemur frá fiskverkunum í nágrenninu.
Gamlir bændur þekkja vel gæðin sem felast í salti sem hefur komist í návígi við fisk, því saltið dregur í sig prótein, vítamín og snefilefni frá fisknum sem hefur svo góð áhrif á kýr, kindur og hesta.
Kalkþörungarnir sem varan dregur nafn sitt af, koma frá Kalkþörungaverksmiðjunni á Bíldudal. Kalk hefur góð áhrif á vöxt beina, tanna, ullar og felds.
Kúabændur sem nota kalksalt hafa einnig talað um að frumutala hafi lækkað og fita hækkað hjá kúnum eftir að þeir fóru að gefa kalksalt.
Kalksaltið er steypt í melassa sem gerir það afar lystugt. Að auki eru í því selen, A vítamín, E vítamín og D3.
Sykurrófukögglar 25 kg.
Á lager
4.328 kr. með vskSykurrófukögglar (Speedy Beet) eru trefjaríkt og auðmeltanlegt fóður sem veitir hrossum jafna og langvarandi orku. Það hentar vel sem hluti af daglegri fóðrun og getur stutt við heilbrigða meltingu.
Hátt trefjainnihald getur haft jákvæð áhrif á þarmaflóru. Varan inniheldur aðeins um 5% sykur og er laus við bæði sterkju og melassa. Því hentar hún sérstaklega vel fyrir hross með hófsperru eða EMS, eldri hesta með tannvandamál, hross sem eiga erfitt með að halda holdum, keppnishross sem þurfa hægvirka orku og einnig fyrir vandláta hesta.
Í Sykurrófukögglum er hátt hlutfall af leysanlegum trefjum, aðallega pektínum, sem gerir trefjarnar auðmeltanlegri en þær sem finnast í gróffóðri. Þetta gerir vöruna að frábærri uppsprettu hægvirkrar orku sem gerir hestinn ekki æstan eða “heitan”.
Mikilvægt
Aldrei má gefa vöruna þurra. Nauðsynlegt er að leggja hana í bleyti fyrir notkun þar sem sykurrófuflögurnar þenjast verulega út. Tryggið að hestar hafi ekki aðgang að þurru fóðri, þar sem það getur valdið alvarlegum skaða.
Staldren þurrkefni 25kg
Á lager
4.196 kr. með vskBylting í sóttvörnum!
Staldren er notað til að bera undir allan búfénað og gegnir hlutverki sínu á óviðjafnalegan hátt.
Virkar mjög vel gegn útbreiðslu á slefsýki.
Lambakögglar – 25kg
Á lager
4.192 kr. með vskSérhannað fyrir íslensk lömb.
Lambakögglar eru sérstakt kjarnfóður fyrir lömb með mjólkurgjöf.
Lystugir 3 mm kögglar
Hanskar einnota uppháir
Á lager
3.710 kr. – 4.164 kr.Price range: 3.710 kr. through 4.164 kr. með vskNitril hanskar langir Exellent stærðir S-XL, 100 stk/pk, bláir.
Henta vel fyrir léttar hreingerningar, aðhlynningu, meðhöndlum matvæla og umfram aðra hanska henta þeir til meðhöndlunar á lyfjum og fjölda kemískra efna.
Þeir vernda gegn ýmsum veirum og bakteríum.
Púður- og latexfríir.
Melassi 14kg
Á lager
4.092 kr. með vskMelassi er þykkfljótandi, dökkbrún sírópslausn sem verður til sem náttúrulegt aukaafurð í sykurframleiðslu (úr sykurrófum eða sykurreyr). Hún er þekkt fyrir sæta bragðið og límandi áferðina sem gerir hana sérstaklega gagnlega til að auka lyst, bæta fóðuráferð og binda fóðuragnir saman – t.d. í lausfóðri og TMR-blöndum.
Hestateppi
Á lager
3.990 kr. með vskFallegt stór flísteppi sem henta vel í brekkuna eða útileiguna.
Einstaklega þétt og góð með ísaumaðri mynd af hesti.
Koma í nokkrum litum:
* Svart
* Grár
* Blátt
* Rautt
* Brúnt
Er í stærð 200cm x 200cm.




