Landbúnaður

Hnakktaska

VNR: KS48-5000

Á lager

19.749 kr. með vsk

Folaldakögglar 25kg

VNR: 4822

Á lager

6.260 kr. með vsk

Folaldakögglar eru hágæða hestafóður/fóðurbætir fyrir folöld og unghross.

Sérframleitt á íslandi með þarfir íslenska hestsins í huga.

Inniheldur hágæða prótein m.a úr fiskimjöli og ríkulegt magn steinefna og vítamína.

Hentar fyrir folöld og unghross í vexti, frá 6 mánaða aldri.

Einnig gott fyrir hross í þjálfun með miklar próteinþarfir t.d. graðhesta og unghross sem þurfa auka vöðvamassa.

Þokki – Hestakögglar 5% fita 18KG

VNR: 4834

Á lager

5.207 kr. með vsk

Þokki hestafóður.

Alhliða fóðurbætir fyrir íslenska hesta.

Þokki er frábær viðbót fyrir hross í miðlungs eða mikilli þjálfun.

Hestakögglarnir eru þanið fóður, framleiddir með sömu aðferð og t.d. morgunkorn. Við það eykst meltanleikinn og kögglarnir verða mjög lystugir.

Nasamúll

VNR: KS201-SD-BLK

Á lager

5.950 kr. með vsk

Langur taumur

VNR: KS42700002

Á lager

4.290 kr. með vsk

Feldmann pískur

VNR: KS03177110

Á lager

9.839 kr. með vsk

Gandur Húðsmyrsl 100 ml.

VNR: KS2774

Á lager

5.290 kr. með vsk

Húðsmyrsl er græðandi og mýkjandi smyrsl á sár, múkk og sumarexcem hjá hestum.
Við notkun myndar það himnu yfir sárum og mýkir upp brúnir sem flýtir því að sárin lokist.

Lambakögglar – 25kg

VNR: 4686

Á lager

4.192 kr. með vsk

Sérhannað fyrir íslensk lömb.

Lambakögglar eru sérstakt kjarnfóður fyrir lömb með mjólkurgjöf.

Lystugir 3 mm kögglar

Sykurrófukögglar 25 kg.

VNR: 4682

Á lager

4.328 kr. með vsk

Sykurrófukögglar (Speedy Beet) eru trefjaríkt og auðmeltanlegt fóður sem veitir hrossum jafna og langvarandi orku. Það hentar vel sem hluti af daglegri fóðrun og getur stutt við heilbrigða meltingu.

Hátt trefjainnihald getur haft jákvæð áhrif á þarmaflóru. Varan inniheldur aðeins um 5% sykur og er laus við bæði sterkju og melassa. Því hentar hún sérstaklega vel fyrir hross með hófsperru eða EMS, eldri hesta með tannvandamál, hross sem eiga erfitt með að halda holdum, keppnishross sem þurfa hægvirka orku og einnig fyrir vandláta hesta.

Í Sykurrófukögglum er hátt hlutfall af leysanlegum trefjum, aðallega pektínum, sem gerir trefjarnar auðmeltanlegri en þær sem finnast í gróffóðri. Þetta gerir vöruna að frábærri uppsprettu hægvirkrar orku sem gerir hestinn ekki æstan eða “heitan”.

Mikilvægt
Aldrei má gefa vöruna þurra. Nauðsynlegt er að leggja hana í bleyti fyrir notkun þar sem sykur­rófuflögurnar þenjast verulega út. Tryggið að hestar hafi ekki aðgang að þurru fóðri, þar sem það getur valdið alvarlegum skaða.

Hestateppi

VNR: KS FLEECE

Á lager

3.990 kr. með vsk

Fallegt stór flísteppi sem henta vel í brekkuna eða útileiguna.

Einstaklega þétt og góð með ísaumaðri mynd af hesti.

Koma í nokkrum litum:

* Svart
* Grár
* Blátt
* Rautt
* Brúnt

Er í stærð 200cm x 200cm.

Sonoff öryggismyndavél

VNR: GK-200MP2

Á lager

17.240 kr. með vsk
  • WiFi
  • 1080p HD myndavél
  • Nætursjón
  • Hátalari
  • Hljóðnemi
  • Hreyfiskynjari
  • Linsan getur snúist í 360 gráður

Spenaspray OceanBlu 20L

VNR: AL741006274

Á lager

39.521 kr. með vsk

OceanBlu spenaspreyið er joðlaust spenasprey sem hefur reynst gríðarlega vel til þess að mýkja spena og bæta ástanda þeirra, ásamt því að draga úr hættu á júgurbólgum. Þurr og sprungin húð getur hleypt bakteríum inn í júgrið, en regluleg notkun OceanBlu eftir mjaltir ver spenaop og mýkir spenana með glycerini og sorbitoli, sem vinna saman í að því að vernda húðina.

Eftir aðeins tvær vikur má sjá greinilegan mun á mýkt spenaenda, og eftir átta vikur eru flestir spenar í góðu ástandi.

Frábær vara sem hefur reynst einstaklega vel til að viðhalda hreinlæti og júgurheilbrigði. 

Hrímnis ístöð

VNR: HRI229

Á lager

8.407 kr. með vsk

Hrímnis ístöð tryggja framúrskarandi grip og stöðugleika við reið við allar aðstæður. Sterkar, léttar og með grófu gripi sem veitir örugga fótfestu í öllum aðstæðum – fullkomnar fyrir íslenskt veðurfar.

Hrímnis Leðursápa 250ml

VNR: HRI224

Á lager

2.850 kr. með vsk

Þessi leðursápa með glýseríni hreinsar leðurbúnaðinn þinn á mildan hátt og nærir hann um leið. Hún hentar vel til daglegrar hreinsunar og heldur leðrinu mjúku.

Tappann á flöskunni má nota til að festa á botninn og hengja hana á hvolf og breyta henni þannig í þægilegan sápu­dælu­brúsa.

Helosan júgurkrem 300 gr

VNR: 62087052

Á lager

2.215 kr. með vsk

Helosan Original er húðkrem sem margir þekkja, það er mýkjandi og græðandi húðkrem sem hentar sérstaklega vel fyrir þurra húð. Gott krem á þurr og sprungin júgur.

Lúxus fuglafóður 3.5 kg

VNR: 5906

Á lager

3.990 kr. með vsk
Lúxus fuglafóður fyrir íslenska vetrarfugla.

Fuglafóðrið okkar er framleitt úr íslensku fiskimjöli og lýsi, sem veitir fuglunum orku og næringu beint úr hafinu.
Þetta er frábært vetrarfóður, fullt af orku og fitu sem hjálpar fuglunum að halda hita og styrk þegar kalt er í veðri.
Kögglarnir eru 4mm á stærð, og því fullkomnir fyrir smærri fugla sem þurfa næringu yfir kalda og dimma mánuði.
Styðjum íslenskt fuglalíf – með næringarríku, íslensku fuglafóðri.

Ábreiða fyrir kálfa

VNR: KB14148

Á lager

8.973 kr. með vsk
  • Slitsterkt pólýester
  • 3000 mm vatnsheldni
  • Góð útöndun sem kemur í veg fyrir of mikla svitamyndun
  • Má þvo við 30°C
  • Styður við ónæmiskerfið fyrstu dagana og kemur í veg fyrir niðurgangsvandamál og aðra sjúkdóma
  • Minnkar kuldaálag hjá nýfæddum kálfum
  • Kálfar eru yfirleitt með kálfateppi í 3 til 4 vikur og lengur ef þörf krefur