Nautgripir
Sýna 55–72 af 128 niðurstöðurSorted by price: low to high
Júgurþvottalögur 5 L
Á lager
4.950 kr. með vsk5 lítrar
Júgurþvottalögur – sótthreinsandi þvottalögur með klórhexidíni.
Júgurþvottalögur er tvívirkt hreinsiefni, sem bæði hreinsar og sótthreinsar samtímis. Júgurþvottalögur inniheldur hvorki ilm- né litarefni. Regluleg notkun júgurþvottalagar og glýserín joðófór til skiptis varnar útbreiðslu júgurbólgu.
Blöndun:
Þvottur og sótthreinsun á júgrum: blandið 5ml (uþb. 1/2 tappa ) í 1 ltr af vatni.
Spenadýfa: Blandið 1 hluta af júgurþvottalegi með 5 hlutum af vatni.
Sótthreinsun á höndum: Notið júgurþvottalög óblandaðan. Skolið hendur vel á eftir með vatni.
Sótthreinsun þvottaklúta: blandið 5ml (uþb. 1/2 tappa ) í 1 ltr af vatni.
Innihald: vatn, klórhexidíndíglúkónat, glýseról, jónísk og ójónísk yfirborðsvirk efni.
Sýrustig: Óblandað pH 6,5
Ath.
Nauðsynlegt er að nota júgurþvottalög og glýserín joðófór til skiptis til að koma í veg fyrir ónæmi baktería.
DeLaval kálfaábreiða
Á lager
5.682 kr. – 5.977 kr.Price range: 5.682 kr. through 5.977 kr. með vskDeLaval kálfaábreiða – þriggja laga hönnun fyrir hámarks vernd og þægindi
• Ytra lag úr polyester sem er vatnshelt og ver gegn raka.
• Miðlag úr 4 mm urethan sem veitir góða einangrun.
• Innra lag úr polyester flís sem er mjúkt, andar vel og tryggir mikla þægindi.
Notkun
• Mælt er með notkun þegar hitastig fer undir 15°C.
• Sérstaklega hentug á fyrsta mánuði lífs kálfsins.
• Gætið þess að kálfurinn sé alltaf þurr áður en ábreiðan er sett á.
• Best er að taka ábreiðuna af að morgni dags.
Júgurklútar bleikir/bláir/gráir frotte 10stk
Á lager
5.790 kr. með vskSterkir og góðir íslenskir klútar.
Saumaðir í plastiðjunni Bjarg.
10 saman í pakka bláir og bleikir að lit.
Kálfamúslí Euroflakes 25kg
Á lager
5.827 kr. með vskLystugt og gott kálfamúslí. Vöxtur og þroski á vambatotum er lykilatriði í kálfaeldi. Þær þurfa sterkju til að vaxa eðlilega. Leggðu grunn að góðri framleiðsluframtíð kálfsins. Inniheldur 19% prótein.
Súrdoðavörn – Ketoglyk
Á lager
6.200 kr. – 155.000 kr.Price range: 6.200 kr. through 155.000 kr. með vskBragðgott glúkósamyndandi bætiefni sem tryggir jórturdýrum háan blóðsykur og fyrirbyggir þar með súrdoða og þyngdartap.
Kalksalt 15kg.
Á lager
6.795 kr. með vskKalksalt ehf. er eina fyrirtækið á Íslandi sem framleiðir bætiefnafötur og steina. Kalksalt er fyrir kindur, kýr og hesta. Saltið kemur frá saltfiskverkunum á Vestfjörðum og er afurð sem yfirleitt er hent, þar sem það inniheldur fiskafganga. Saltið dregur í sig snefilefni úr fisknum sem er einkar hollt fyrir skepnur. Einnig eru kalkþörungar í kalksalti en þeir eru góðir fyrir feld, ull og meltingu jórturdýra. Kalksalt ehf. er staðsett á Flateyri, notar eingöngu salt af Vestfjörðum og heldur þannig kolefnissporinu í lágmarki.
Vambarbætir 20 kg
Á lager
6.889 kr. með vskSérhannað fyrir íslenskar mjólkurkýr
Lifandi ger með viðbættum steinefnum og vítamínum, til íblöndunar við gróffóður.
Gerið étur upp súrefni í vömbinni og bætir þar með starfsumhverfi vambarörvera. Gerið kemur einnig jafnvægi á sýrustig vambarinnar, sem stuðlar að betri fóðurnýtingu. Steinefna- og vítamínmagn er sérlagað eftir þörfum íslenskra mjólkurkúa, með íslensku kjarnfóðri.
Mjólkursíur styttri 200 stk
Á lager
7.638 kr. með vskDeLaval mjólkursíur
Stærð 320×60
Mjólkursíur langar 120 stk
Á lager
7.713 kr. með vskStuttar mjólkursíur
61×6,5 cm
120 stykki.
Íslensk framleiðsla
Kalksalt m/Hvítlauk 15kg.
Á lager
7.795 kr. með vskKalksalt með hvítlauk er afar vinsælt hjá kúabændum og kúm þar sem hvítlaukurinn hefur bólgueyðandi áhrif og frumutala kúa lækkar við notkun þess og fitan hækkar. Hestar og eigendur þeirra hafa einnig verið hrifnir af hvítlauknum því hann er sérstaklega góður fyrir feld hrossanna og meltingu.
Kalksalt ehf. er eina fyrirtækið á Íslandi sem framleiðir bætiefnafötur og steina. Kalksalt er fyrir kindur, kýr og hesta. Saltið kemur frá saltfiskverkunum á Vestfjörðum og er afurð sem yfirleitt er hent, þar sem það inniheldur fiskafganga. Saltið dregur í sig snefilefni úr fisknum sem er einkar hollt fyrir skepnur. Einnig eru kalkþörungar í kalksalti en þeir eru góðir fyrir feld, ull og meltingu jórturdýra. Kalksalt ehf. er staðsett á Flateyri, notar eingöngu salt af Vestfjörðum og heldur þannig kolefnissporinu í lágmarki.
All-min magnesium 25kg
Á lager
7.950 kr. með vskAll Min Magnesíum er ætlað að koma í veg fyrir steinefna– og snefilefnaskort hjá nautgripum. Nánari uppl. smellið hér
Inniheldur m.a 13% Magnesíum – 15% Kalsíum – 6% Fosfór – 7% Natríum – biotin – Selen + vítamín A, E og D3.
Blandan er afar lystug steinefnablanda með háu innihaldi E-vítamíns. Biotinið gefur heilbrigðari klaufir. Ráðlagður dagskammtur fyrir mjólkurkýr er 100-250 gr. Blandan er með CA/P hlutfallið 2,2.
Blandan uppfyllir þörfina sem vantar í gróffóðrið.
Fóðurlýsi kaldhreinsað 5L
Á lager
8.190 kr. með vskFóðurlýsi er ríkt af náttúrulegum A- og D-vítamínum. Búfénaður sem fær daglega lýsi ber þess augljós merki m.a er feldurinn glansandi og hárafar fallegra. D-vítamín gerir upptöku kalks mögulega og fituskortur gerir síður vart við sig hjá dýrum sem fá reglulega lýsi. A-vítamín heldur slímhúð heilli og er nauðsynlegt sjóninni. Hvert gramm af lýsi inniheldur 37 kJ.





