Mjaltir
Sýna 1–12 af 17 niðurstöður
Mjaltir
Helosan júgurkrem 300 gr
Á lager
2.215 kr. með vskHelosan Original er húðkrem sem margir þekkja, það er mýkjandi og græðandi húðkrem sem hentar sérstaklega vel fyrir þurra húð. Gott krem á þurr og sprungin júgur.
Júgurhöldur Large
Á lager
16.275 kr. með vskJúgurhlífar vernda gegn tröðkun og öðrum skemmdum á stórum, hangandi júgrum. Við burð getur júgrið stækkað verulega og hægt er að koma í veg fyrir skemmdir með því að nota júgurhlíf.
Mælt er með að nota júgurhlíf 2-3 vikum fyrir áætlaðan burð og 2-3 vikum eftir burð.
DeLaval júgurhlífar eru úr mjúku og endingargóðu efni og má þvo í þvottavél. Þær eru örugglega festar með aðlöguðum ólum og netum. Netið er auðvelt að losa við mjaltir.
DeLaval júgurhlífar eru einföld og ódýr trygging gegn júgurskemmdum.
Júgursmyrsl 3,2 kg Hvítt
Á lager
9.500 kr. með vskJúgursmyrsl hvítt hefur sótthreinsandi og græðandi eiginleika.
Júgursmyrsl hvítt mýkir og veitir vörn gegn sólbruna, kulda og þurrki á júgrum.
Júgursmyrsl 3,2kg Gult
Á lager
9.512 kr. með vskJúgursmyrsl gult er ein af þekktari tegundum af græðandi smyrslum á markaðnum og er án allra aukaefna svo sem ilmefna, litarefna eða rotvarnarefnum.
Júgursmyrsl gult virkar einstaklega vel á þurra, sprungna eða viðkvæma húð.
Spenaspray OceanBlu 20L
Á lager
39.521 kr. með vskOceanBlu spenaspreyið er joðlaust spenasprey sem hefur reynst gríðarlega vel til þess að mýkja spena og bæta ástanda þeirra, ásamt því að draga úr hættu á júgurbólgum. Þurr og sprungin húð getur hleypt bakteríum inn í júgrið, en regluleg notkun OceanBlu eftir mjaltir ver spenaop og mýkir spenana með glycerini og sorbitoli, sem vinna saman í að því að vernda húðina.
Eftir aðeins tvær vikur má sjá greinilegan mun á mýkt spenaenda, og eftir átta vikur eru flestir spenar í góðu ástandi.
Frábær vara sem hefur reynst einstaklega vel til að viðhalda hreinlæti og júgurheilbrigði.
Sýra Cid NonP fyrir mjaltakerfi
Á lager
12.338 kr. – 23.310 kr.Price range: 12.338 kr. through 23.310 kr. með vskSýra CID NON P er fosfatlaust sýruþvottaefni sem fjarlægir steinefni og kemur í veg fyrir steinefnasöfnun. Mælt er með þvotti með Alkali Non P og Super.
Júgurþvottalögur 5 L
Á lager
4.950 kr. með vsk5 lítrar
Júgurþvottalögur – sótthreinsandi þvottalögur með klórhexidíni.
Júgurþvottalögur er tvívirkt hreinsiefni, sem bæði hreinsar og sótthreinsar samtímis. Júgurþvottalögur inniheldur hvorki ilm- né litarefni. Regluleg notkun júgurþvottalagar og glýserín joðófór til skiptis varnar útbreiðslu júgurbólgu.
Blöndun:
Þvottur og sótthreinsun á júgrum: blandið 5ml (uþb. 1/2 tappa ) í 1 ltr af vatni.
Spenadýfa: Blandið 1 hluta af júgurþvottalegi með 5 hlutum af vatni.
Sótthreinsun á höndum: Notið júgurþvottalög óblandaðan. Skolið hendur vel á eftir með vatni.
Sótthreinsun þvottaklúta: blandið 5ml (uþb. 1/2 tappa ) í 1 ltr af vatni.
Innihald: vatn, klórhexidíndíglúkónat, glýseról, jónísk og ójónísk yfirborðsvirk efni.
Sýrustig: Óblandað pH 6,5
Ath.
Nauðsynlegt er að nota júgurþvottalög og glýserín joðófór til skiptis til að koma í veg fyrir ónæmi baktería.
Alfa / IP-456 10 kg
Á lager
11.099 kr. með vskAlfa IP 456 10 kg
Hreinsir fyrir mjaltakerfi. Sótthreinsar og vinnur gegn mjólkursteinsmyndun.
- Inniheldur 5% klór
- Er öflugt hreinsiefni fyrir lokuð kerfi CIP í matvælaiðnaði og er ætlað til reglubundinna þvotta.
- Leysir upp ýmiskonar ólífrænar útfellingar og er auk þess mjög virkt gegn fitu- og próteinleifum
- Hefur sótthreinsiseiginleika og inniheldur lágfreyðandi yfirborðsvirk efni.
- Notkun:
Fyrst skal tæma og skola rör með volgu vatni. Blandið um 0,35-70% af efni með vatni og þvoið við allt að 85gr . Árangurinn verður betri eftir því sem hitastigið er hærra
Júgurklútar bleikir/bláir/gráir frotte 10stk
Á lager
5.790 kr. með vskSterkir og góðir íslenskir klútar.
Saumaðir í plastiðjunni Bjarg.
10 saman í pakka bláir og bleikir að lit.