Nautgripir
Sýna 1–18 af 128 niðurstöðurSorted by price: high to low
Kúakögglar – Hy-D®
Á lager
0 kr. – 129.299 kr.Price range: 0 kr. through 129.299 kr. með vskKúakögglar – Hy-D® eru orkuríkar og fiskimjölsríkar kjarnfóðurblöndur fyrir mjólkandi kýr. Blöndurnar hafa reynst einstaklega vel í fjölda ára og henta vel fyrir hátt framleiðslustig, þar sem markmiðið er að styðja við góða nyt, fóðurnýtingu og heilbrigði gripa.
Kúakögglar innihalda hátt hlutfall maís sem gerjast hægt í vömb og nýtist sem góður orkugjafi. Fóðrið inniheldur einnig Hy-D®, lífvirkt og hraðvirkt D-vítamín sem styður við kalkefnaskipti, ónæmi og almennt heilsufar mjólkurkúa.
Geldstöðukögglar Hy-D®
Á lager
155 kr. – 159.579 kr.Price range: 155 kr. through 159.579 kr. með vskGeldstöðukögglar Hy-D® eru hágæða kjarnfóður fyrir geldkýr, sérhannað til að styðja við heilsu, undirbúning fyrir burð og góðan upphafsfasa á næsta mjaltaskeiði.
Fóðrið er próteinríkt og inniheldur Hy-D®, E-vítamín, bíótín og magnesíum. Það styður við vömbina, hjálpar til við uppbyggingu próteinforða og getur stuðlað að heilbrigðari kúm, sterkari kálfum og betri afurðum eftir burð. Gefið á geldstöðu, 2 kg á dag. Gefið ekki mjólkandi kúm.
Kálfakögglar
Á lager
149 kr. – 155.423 kr.Price range: 149 kr. through 155.423 kr. með vskKálfakögglar eru próteinríkt og steinefna- og vítamínríkt kjarnfóður fyrir kálfa frá tveggja vikna aldri. Fóðrið inniheldur ríkulegt magn af fiskimjöli og vel samsetta próteingjafa sem styðja við vöxt, þroska og góða byrjun í uppeldi kálfa.
Kálfakögglar örva þroska vambarinnar og hjálpa kálfum að ná upp góðu áti samhliða mjólkurgjöf, áður en þeir hætta alveg á mjólk. 6 mm kögglastærð stuðlar að góðu áti og getur flýtt fyrir vexti.
Súrdoðavörn – Ketoglyk
Á lager
6.200 kr. – 155.000 kr.Price range: 6.200 kr. through 155.000 kr. með vskBragðgott glúkósamyndandi bætiefni sem tryggir jórturdýrum háan blóðsykur og fyrirbyggir þar með súrdoða og þyngdartap.
Feitur Róbót – HY-D®
Á lager
134 kr. – 148.171 kr.Price range: 134 kr. through 148.171 kr. með vskFeitur Róbót – Hy-D® er sérlega orkuríkt kjarnfóður fyrir mjólkandi kýr, hannað til að styðja við aukna mjólkurfitu, góða nyt og heilbrigði gripa. Blandan inniheldur mikið magn sykurrófuhrats, trefjar sem nýtast vel til mjólkurfitumyndunar, ásamt ríkulegu magni þurrfitu.
Fóðrið inniheldur einnig íslenska kalkþörunga sem styðja við jafnvægi á sýrustigi vambarinnar, auk Hy-D®, lífvirks og hraðvirks D-vítamíns sem styður við kalkefnaskipti, ónæmi og almennt heilsufar mjólkurkúa.
Róbót – Hy-D®
Á lager
124 kr. – 142.249 kr.Price range: 124 kr. through 142.249 kr. með vskRóbót – Hy-D® er lystug kjarnfóðurblanda fyrir mjólkandi kýr, sérstaklega hentug til gjafar í mjaltaþjónum. Blandan er samsett með hentugu samspili ólíkra sterkjuafurða og hefur frábær kögglagæði sem tryggja góða flæði- og notkunareiginleika í fóðurkerfum.
Fóðrið inniheldur Hy-D®, lífvirkt og hraðvirkt D-vítamín sem styður við kalkefnaskipti, ónæmiskerfi og almennt heilsufar mjólkurkúa. Fáanlegt sem Róbót 16 og Róbót 20.
DK – Hy-D®
Á lager
126 kr. – 140.142 kr.Price range: 126 kr. through 140.142 kr. með vskDK – Hy-D® er vandað kjarnfóður fyrir mjólkurkýr, sérstaklega hentugt sem grunnblanda þegar gefnar eru fleiri en ein tegund kjarnfóðurs. Blandan inniheldur Hy-D®, lífvirkt D-vítamín sem styður við D-vítamínstöðu, kalkefnaskipti, ónæmi og almennt heilsufar gripa.
Fóðrið er fituhúðað, með góð kögglagæði og er nánast ryklaust, sem gerir það lystugt og þægilegt í meðhöndlun.
Vöxtur
Á lager
132 kr. – 135.264 kr.Price range: 132 kr. through 135.264 kr. með vskVöxtur er kjarnfóður fyrir kálfa og ungneyti, sérhannað til að styðja við mikinn en heilbrigðan vaxtarhraða. Fóðrið styður við vöxt vöðva og stoðkerfis og hentar vel þegar markmiðið er að byggja upp sterka, hrausta og vel þroskaða gripi.
Vöxtur er góður kostur eftir kálfaköggla og nýtist sem hluti af markvissri fóðuráætlun fyrir áframeldi, þar sem lögð er áhersla á góðan þroska, jafnan vöxt og hagkvæma fóðrun.
Eldi
Á lager
119 kr. – 127.159 kr.Price range: 119 kr. through 127.159 kr. með vskEldi er kjarnfóður fyrir nautgripi í lokaeldi, bæði naut og kvígur. Fóðrið er sérstaklega samsett til að styðja við vöxt, fallþunga, kjötgæði og fitusprengingu síðustu 1–3 mánuðina fyrir slátrun.
Fóðrið inniheldur viðbætt E-vítamín sem safnast upp í vöðvum og getur hjálpað til við að vernda kjötið eftir slátrun, sem stuðlar að fallegri og verðmætari afurð.
Maískögglar
Á lager
110 kr. – 116.880 kr.Price range: 110 kr. through 116.880 kr. með vskMaískögglar eru orkuríkur fóðurbætir sem hentar vel með öðru fóðri þegar auka þarf orku í fóðrun mjólkurkúa. Fóðrið er glúkógenísk orkuviðbót sem nýtist sérstaklega vel á snemm-mjaltaskeiði, þegar orkuþörf kúnna er mikil.
Maískögglar geta stutt við betra heilsufar, aukið orkujafnvægi og dregið úr líkum á súrdoða. Þeir henta vel sem hluti af markvissri fóðuráætlun þar sem lögð er áhersla á góða nyt, fóðurnýtingu og heilbrigði gripa.
Burðartjakkur
Á lager
89.990 kr. með vskVINK Birth Aid er öflugur og áreiðanlegur burðartjakkur fyrir kýr, sem veitir allt að 300 kg togkraft — hentar vel þegar á að hjálpa kvígjum eða kúm við fæðingu á öruggan og skilvirkan hátt.
Kúaklippur rafhlöðudrifnar R2
Á lager
88.303 kr. með vskLéttar og hljóðlátar klippur.
Notkunartími: ca. 2 klst.
Hleðslutími: ca. 1 klst.
Þyngd: 990 g.
Auka rafhlaða fylgir!
Moocall – Gefur þér samband við óbornu kúnna.
Á lager
82.500 kr. með vskMoocall er sett á halann á óbornu kúnni. Um 23 klst fyrir burð lætur Moocall vita þegar kýrin er að fara að bera með því að senda eiganda sínum skilaboð í símann.
Mjólkurhitari með hitastilli
Á lager
40.784 kr. með vskMeð þrepalausri hitastilli (hitastilli frá 0-95°C), 230 volt/2300 wött, skvettuheld, kemur í veg fyrir að mjólk brenni við eða festist, stöðugur botn.
Hæð: 815 mm, Dýpt: 690 mm, Þvermál: 160 mm, Þyngd: 4,7 kg
Spenaspray OceanBlu 20L
Á lager
39.521 kr. með vskOceanBlu spenaspreyið er joðlaust spenasprey sem hefur reynst gríðarlega vel til þess að mýkja spena og bæta ástanda þeirra, ásamt því að draga úr hættu á júgurbólgum. Þurr og sprungin húð getur hleypt bakteríum inn í júgrið, en regluleg notkun OceanBlu eftir mjaltir ver spenaop og mýkir spenana með glycerini og sorbitoli, sem vinna saman í að því að vernda húðina.
Eftir aðeins tvær vikur má sjá greinilegan mun á mýkt spenaenda, og eftir átta vikur eru flestir spenar í góðu ástandi.
Frábær vara sem hefur reynst einstaklega vel til að viðhalda hreinlæti og júgurheilbrigði.





