Hestar

Staldren þurrkefni 25kg

VNR: 9846

Á lager

4.196 kr. með vsk

Bylting í sóttvörnum!

Staldren er notað til að bera undir allan búfénað og gegnir hlutverki sínu á óviðjafnalegan hátt.

Virkar mjög vel gegn útbreiðslu á slefsýki.

Langur taumur

VNR: KS42700002

Á lager

4.290 kr. með vsk

Sykurrófukögglar 25 kg.

VNR: 4682

Á lager

4.328 kr. með vsk

Sykurrófukögglar (Speedy Beet) eru trefjaríkt og auðmeltanlegt fóður sem veitir hrossum jafna og langvarandi orku. Það hentar vel sem hluti af daglegri fóðrun og getur stutt við heilbrigða meltingu.

Hátt trefjainnihald getur haft jákvæð áhrif á þarmaflóru. Varan inniheldur aðeins um 5% sykur og er laus við bæði sterkju og melassa. Því hentar hún sérstaklega vel fyrir hross með hófsperru eða EMS, eldri hesta með tannvandamál, hross sem eiga erfitt með að halda holdum, keppnishross sem þurfa hægvirka orku og einnig fyrir vandláta hesta.

Í Sykurrófukögglum er hátt hlutfall af leysanlegum trefjum, aðallega pektínum, sem gerir trefjarnar auðmeltanlegri en þær sem finnast í gróffóðri. Þetta gerir vöruna að frábærri uppsprettu hægvirkrar orku sem gerir hestinn ekki æstan eða “heitan”.

Mikilvægt
Aldrei má gefa vöruna þurra. Nauðsynlegt er að leggja hana í bleyti fyrir notkun þar sem sykur­rófuflögurnar þenjast verulega út. Tryggið að hestar hafi ekki aðgang að þurru fóðri, þar sem það getur valdið alvarlegum skaða.

Kalksaltsteinn 7,5 kg

VNR: 9340

Á lager

4.335 kr. með vsk

Kalksalt ehf. er eina fyrirtækið á Íslandi sem framleiðir saltbætiefnafötur fyrir búfénað en saltið í bætiefnafötunum kemur frá fiskverkunum í nágrenninu.

Gamlir bændur þekkja vel gæðin sem felast í salti sem hefur komist í návígi við fisk, því saltið dregur í sig prótein, vítamín og snefilefni frá fisknum sem hefur svo góð áhrif á kýr, kindur og hesta.

Kalkþörungarnir sem varan dregur nafn sitt af, koma frá Kalkþörungaverksmiðjunni á Bíldudal. Kalk hefur góð áhrif á vöxt beina, tanna, ullar og felds.

Kúabændur sem nota kalksalt hafa einnig talað um að frumutala hafi lækkað og fita hækkað hjá kúnum eftir að þeir fóru að gefa kalksalt.

Kalksaltið er steypt í melassa sem gerir það afar lystugt. Að auki eru í því selen, A vítamín, E vítamín og D3.

Höfuðleður m.krók

VNR: KSNECK-HOOK

Á lager

4.772 kr. með vsk

Hekla – Hestafóður

VNR: VP-HEKLA-HESTA

Á lager

Price range: 4.917 kr. through 94.763 kr. með vsk
Price range: 3.933 kr. through 75.811 kr. með vsk

Kjarnfóður fyrir hross í þjálfun, sérlega fyrir keppnis- og kynbótahross.

  Hátt próteininnihald fyrir vöxt og viðhald vöðva.
  Inniheldur fiskimjöl – Hentug amínósýrusamsetning.
  Hátt hlutfall meltanlegra trefja.
  Hátt fituinnihald – Jákvæð áhrif á efnaskipti hestsins.
•  Inniheldur kalkþörunga sem jafna sýrustig í meltingarvegi.
  Fullbúið steinefnum og vítamínum.
•  Sérhannað eftir íslenskum heyefnagreiningum.

Veldu kosti This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page

Þokki – Hestakögglar 5% fita 18KG

VNR: 4834

Á lager

Original price was: 5.207 kr..Current price is: 5.207 kr.. með vsk 4.165 kr. með vsk

Þokki hestafóður.

Alhliða fóðurbætir fyrir íslenska hesta.

Þokki er frábær viðbót fyrir hross í miðlungs eða mikilli þjálfun.

Hestakögglarnir eru þanið fóður, framleiddir með sömu aðferð og t.d. morgunkorn. Við það eykst meltanleikinn og kögglarnir verða mjög lystugir.

Hnokki – Hestakögglar 18KG

VNR: 4848

Á lager

Original price was: 5.207 kr..Current price is: 5.207 kr.. með vsk 4.165 kr. með vsk

Hnokki hestafóður.

Hnokki eru þandir, orkuríkir hestakögglar með háu fituinnihaldi en próteinsnauðir. Hnokki er frábær fóðurbætir fyrir orkufrek hross í mikilli þjálfun, eða hross sem þurfa að auka hold.

Fitfóðrun hrossa hefur jákvæð áhrif á efnaskiptasvörun, sem getur leitt til lægri mjólkursýru í vöðvum við þjálfun.

1kg/dag með heyi ætti að fullnægja þörfum hestsins fyrir öllum vítamínum og steinefnum. Kögglarnir eru E-vitamín og bíótínríkir. Hentugt bíotín innihald eykur hóf- og hárvöxt til muna. Þeir eru ryklausir og mjög lystugir.

Gandur Húðsmyrsl 100 ml.

VNR: KS2774

Á lager

5.290 kr. með vsk

Húðsmyrsl er græðandi og mýkjandi smyrsl á sár, múkk og sumarexcem hjá hestum.
Við notkun myndar það himnu yfir sárum og mýkir upp brúnir sem flýtir því að sárin lokist.

Hrímnis pískur 110cm

VNR: HRI053

Á lager

5.489 kr. með vsk

Mjög léttur pískur með Hrímnir-merkið efst á handfanginu. Pískurinn hefur frábært jafnvægi í hendi og er nægilega stífur til að trufla ekki hestinn við reið.

Lengd: 110 cm

Hrímnis pískur með steinum

VNR: HRI052

Á lager

5.489 kr. með vsk

Mjög léttur pískur með fínum demantsmynstruðu skrauti á handfanginu og Hrímnir-merkinu efst. Pískurinn hefur frábært jafnvægi í hendi og er nægilega stífur til að trufla ekki hestinn við reið.

Lengd: 110 cm

Nasamúll

VNR: KS201-SD-BLK

Á lager

5.950 kr. með vsk

Hestamúslí – Mollerens Mash 15 kg

VNR: HK0013

Á lager

5.952 kr. með vsk

Einstaklega bragðgott mash fóður sem hjálpar við að endurnýja orkubirgðir eftir þjálfun. Frábær samsetning fóðursins gerir það einstaklega lystugt og í uppáhaldi hjá jafnvel vandlátustu hestum. Favorit Mash er ríkt af auðmeltanlegum trefjum og próteini sem stuðlar að bættri meltingu og vöðva uppbyggingu hestsins.

Joð 10% úðabrúsi

VNR: NT0625

Á lager

5.952 kr. með vsk

Nettex Iodine er gæða joðlausn sem inniheldur 10% virkt joð.
Snilldar lausn þegar það kemur að því að þerra sár, skrámur og annað slíkt.

Kemur í 500ml spreybrúsa.

Hrímnis hófhlífar – No-turn

VNR: VP-HRÍMNIR-HÓFHLÍFAR

Á lager

5.990 kr. með vsk

Hrímnir No-Turn hófhlífar veita framúrskarandi vörn og eru á sama tíma einstaklega léttar. Þær eru úr endingargóðu ballistic nylon ytra lagi, með léttu neoprene-bólstri til höggdeyfingar og frönskum rennilás (velcro) til festingar. Hófhlífar­nar eru auðveldar í notkun og mjúkur „no-turn“ hnöppur að innan kemur í veg fyrir að þær snúist á hófnum.

Seldar í pörum.


Mælingar – Stærð M

  • Þyngd einnar hófhlífar: 75 g

  • Hæð: 10 cm

  • Ummál: 35 cm

Mælingar – Stærð L

  • Þyngd einnar hófhlífar: 95 g

  • Hæð: 11 cm

  • Ummál: 36 cm


Þvottaleiðbeiningar

  • Þrífið með volgu vatni og burstað létt.

Veldu kosti This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page

Höfuðleður

VNR: KS915-NG

Á lager

5.999 kr. með vsk

Folaldakögglar 25kg

VNR: 4822

Á lager

6.260 kr. með vsk

Folaldakögglar eru hágæða hestafóður/fóðurbætir fyrir folöld og unghross.

Sérframleitt á íslandi með þarfir íslenska hestsins í huga.

Inniheldur hágæða prótein m.a úr fiskimjöli og ríkulegt magn steinefna og vítamína.

Hentar fyrir folöld og unghross í vexti, frá 6 mánaða aldri.

Einnig gott fyrir hross í þjálfun með miklar próteinþarfir t.d. graðhesta og unghross sem þurfa auka vöðvamassa.

Hrímnir vetrarhanskar

VNR: VP-HRÍMNIR-HANSKAR

Á lager

6.490 kr. með vsk

Hrímnis vetrarhanskarnir eru með glæsilegri hönnun en eru mjög hagnýtir. Thinsulate einangrunin gerir þá hlýja en veitir um leið góða tilfinningu fyrir taumnum. Hanskarnir eru stillanlegir við úlnliðinn til að tryggja að þeir passi fullkomnlega og gripefnið tryggir stöðuga taumfestingu.

Veldu kosti This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page