Steinefnablöndur

Steinefnablöndur

All-min magnesium 25kg

VNR: 9208

Á lager

7.950 kr. með vsk

All Min Magnesíum er ætlað að koma í veg fyrir steinefna– og snefilefnaskort hjá nautgripum. Nánari uppl. smellið hér

Inniheldur m.a 13% Magnesíum – 15% Kalsíum –  6% Fosfór  – 7% Natríum  – biotin – Selen + vítamín A, E og D3.

Blandan er afar lystug  steinefnablanda með háu innihaldi E-vítamíns. Biotinið gefur heilbrigðari klaufir. Ráðlagður dagskammtur fyrir mjólkurkýr er 100-250 gr. Blandan er með CA/P hlutfallið 2,2.

Blandan uppfyllir þörfina sem vantar í gróffóðrið.

Vambarbætir 20 kg

VNR: 9448

Á lager

6.889 kr. með vsk

Sérhannað fyrir íslenskar mjólkurkýr

Lifandi ger með viðbættum steinefnum og vítamínum, til íblöndunar við gróffóður.

Gerið étur upp súrefni í vömbinni og bætir þar með starfsumhverfi vambarörvera. Gerið kemur einnig jafnvægi á sýrustig vambarinnar, sem stuðlar að betri fóðurnýtingu. Steinefna- og vítamínmagn er sérlagað eftir þörfum íslenskra mjólkurkúa, með íslensku kjarnfóðri.