Bætiefni

Vambarbætir 20 kg

VNR: 9448

Á lager

6.889 kr. með vsk

Sérhannað fyrir íslenskar mjólkurkýr

Lifandi ger með viðbættum steinefnum og vítamínum, til íblöndunar við gróffóður.

Gerið étur upp súrefni í vömbinni og bætir þar með starfsumhverfi vambarörvera. Gerið kemur einnig jafnvægi á sýrustig vambarinnar, sem stuðlar að betri fóðurnýtingu. Steinefna- og vítamínmagn er sérlagað eftir þörfum íslenskra mjólkurkúa, með íslensku kjarnfóðri.

Kalksalt 15kg.

VNR: 9345

Á lager

6.795 kr. með vsk

Kalksalt ehf. er eina fyrirtækið á Íslandi sem framleiðir bætiefnafötur og steina. Kalksalt er fyrir kindur, kýr og hesta. Saltið kemur frá saltfiskverkunum á Vestfjörðum og er afurð sem yfirleitt er hent, þar sem það inniheldur fiskafganga. Saltið dregur í sig snefilefni úr fisknum sem er einkar hollt fyrir skepnur. Einnig eru kalkþörungar í kalksalti en þeir eru góðir fyrir feld, ull og meltingu jórturdýra. Kalksalt ehf. er staðsett á Flateyri, notar eingöngu salt af Vestfjörðum og heldur þannig kolefnissporinu í lágmarki.

Lamb Kick start 100ml [6]

VNR: NT0650

Á lager

6.448 kr. með vsk

Lamba kick start er fljótvirkt orku- og næringarbætiefni fyrir veikburða eða nýfædd lömb. Best er að nota Lamba kick start fyrstu þrjár vikurnar eftir að lambið fæðist. Það eykur líkurnar á því að lamb dafni og stuðlar þannig að hagkvæmni og árangri.

Smellið hér fyrir nánari upplýsingar

Kalksaltsteinn m/hvítlauk 7,5 kg

VNR: 9341

Á lager

4.490 kr. með vsk

Hvítlaukssteinn er 7.5 kg saltbætiefnasteinn sem passar bæði í hefðbundin saltsteinaform og er hægt að hengja upp. Kúabændur sem nota kalksalt með hvítlauk hafa séð frumutöluna lækka og efnainnihaldið aukast.

Kalksaltsteinn 7,5 kg

VNR: 9340

Á lager

4.335 kr. með vsk

Kalksalt ehf. er eina fyrirtækið á Íslandi sem framleiðir saltbætiefnafötur fyrir búfénað en saltið í bætiefnafötunum kemur frá fiskverkunum í nágrenninu.

Gamlir bændur þekkja vel gæðin sem felast í salti sem hefur komist í návígi við fisk, því saltið dregur í sig prótein, vítamín og snefilefni frá fisknum sem hefur svo góð áhrif á kýr, kindur og hesta.

Kalkþörungarnir sem varan dregur nafn sitt af, koma frá Kalkþörungaverksmiðjunni á Bíldudal. Kalk hefur góð áhrif á vöxt beina, tanna, ullar og felds.

Kúabændur sem nota kalksalt hafa einnig talað um að frumutala hafi lækkað og fita hækkað hjá kúnum eftir að þeir fóru að gefa kalksalt.

Kalksaltið er steypt í melassa sem gerir það afar lystugt. Að auki eru í því selen, A vítamín, E vítamín og D3.

KNZ Biotin 10 KG.

VNR: 9331

Á lager

2.964 kr. með vsk

KNZTM BIOTIN  vinnur gegn klaufasjúkdómum og hjálpar við að bæta líkamsstarfsemi og mjólkurframleiðslu.

Chevivit E-Selen/sR f.lömb-kálfa -kiðlinga

VNR: 5228050

Á lager

2.721 kr. með vsk

Inniheldur Selen E,A og D3 vítamín

Fyrir lömb, kálfa og kiðlinga.

Fóstur jórturdýra fá hvorki nægjanlegt E-vítamín né selen. Nýfæddir kálfar, lömb og kiðlingar þurfa því viðbótarskammt af þessum efnum til að forðast skort og tryggja eðlilegan þroska.

Bovisal Pearls CaP

VNR: 5228042

Á lager

2.481 kr. með vsk

Fæðubótarefni til að meðhöndla og fyrirbyggja doða í kúm.

Skammtastærð: Gefið eina flösku strax eftir burð og gefið aðra flösku 12klst seinna.

Smellið hér fyrir nánari upplýsingar

Bovisal Phosphor

VNR: 5228043

Á lager

2.184 kr. með vsk

Bætir upp fyrir fosfórskort hjá kúm.

  • Flýtir fyrir bata eftir doða!
  • Styttir tímann verulega sem að kýrin liggur
  • Eykur líkurnar á að ein kalsíumgjöf í æð sé fullnægjandi um allt að 90%
  • Fosfórinn er mjög auðupptakanlegur og bragðgóður

Skammtastærð: Hellið einni flösku í munn eftir að dýralæknir hefur gefið kalsíum í æð.
Ef kýrin liggur enn niðri eftir 8-10klst (sjaldgæft) gefið þá aðra flösku eftir seinni kalsíumgjöfina.

Smellið hér fyrir nánari upplýsingar

Bovisal Keto

VNR: 5228044

Á lager

2.184 kr. með vsk

610 ml

Fæðubótarefni fyrir mjólkurkýr og ær til að minnka líkur á súrdoða.

Bovisal Rumen

VNR: 5228041

Á lager

2.046 kr. með vsk

Fæðubótarefni til þess að minnka líkur á súrdoða hjá nautgripum, sauðfé og geitum.

Hjálpar við að endurheimta eðlilega vambarstarfsemi.

Skammtastærðir:
Nautgripir: 1 flaska
Sauðfé/Geitur: 1/2 flaska
Endurtakist á 12klst fresti, ef þörf krefur, þar til eðlilegri vambarstarfsemi er náð.

Smellið hér fyrir nánari upplýsingar

KNZ Sauðfjársteinn (Sheep)10kg

VNR: 9337

Á lager

1.972 kr. með vsk

KNZTM SHEEP – saltsteinn sem er sérsniðinn að þörfum sauðfjár.

Góð viðbót við steinefnabúskap fjársins.

Inniheldur salt, magnesíum, zinc, járn, joð og selen.

Salt er nauðsynlegt öllum skepnum en aukaefnin í þessum stein stuðla að betri meltingu, bætingu á tauga- og vöðvakerfi, styrkir bein og bætir almenna heilsu sauðfjár.

KNZ Alhliðasteinn (UNIVERSAL MULTI) 10 kg

VNR: 9338

Á lager

1.724 kr. með vsk

KNZ Universal Multi er saltsteinn með viðbættu járni, sem bætir virkni líffæra og vefja sem flytja súrefni.

Tilvalin viðbót þegar þörf er á auknu járni.

KNZ Frjósemissteinn selen/joð10 kg

VNR: 9339

Á lager

1.724 kr. með vsk

KNZTM FERTILITY

Bætir frjósemi

Inniheldur selen, joð og E vítamín.

KNZ Kúasteinn (Standard) 10 kg

VNR: 9335

Á lager

1.486 kr. með vsk

KNZTM Standard

Saltsteinn fyrir búfénað úr hreinu salti.

Tilvalin viðbót við fóður, gras eða ef búfénaður fær ekki nægileg næringarefni.

Saltsteinahaldari 10kg

VNR: AL97284708

Á lager

998 kr. með vsk

Saltsteinahaldari fyrir 10 kg stein.

Saltsteinahaldari 2kg

VNR: AL98076194

Á lager

826 kr. með vsk

Saltsteinahaldari fyrir 2 kg stein.

KNZ Hestasteinn 2 kg

VNR: 9329

Á lager

800 kr. með vsk

Hestasteinn er frábær viðbót fyrir hestinn þinn.

Saltsteinninn inniheldur selen og fleiri nauðsynleg snefil- og steinefni.