Heim » Vefverslun » Blákorn 12,5 kg

Blákorn 12,5 kg

Vörunúmer: 1132812
Blákorn er frábær alhliða áburður ætlaður á grasflatir og skrúðgarða. Áburðurinn leysist vel upp í jarðvegi en gott er að gefa áburð á grasflatir að vori og enda gjöf síðla sumars.
Hentar vel á blómabeðin, matjurtirnar, grasið og tré. Klórsnauður NPK-áburður með kalki, magnesíum, brennisteini og bór.
  • Blákorn inniheldur öll helstu næringar og snefilefni sem gróðurinn þarfnast.
  • Ráðlagður skammtur er um 20 gr á m2. Það má segja að það sé ca lófafylli sem dreift er jafnt. Gott er að bera á 3-4 sinnum á vaxtartíma sem er frá maí og fram í miðjan júlí.
  • Við mælum með að stika niður garðinn svo maður gleymi sér ekki hvar hefur verið borið á. Auðveldar líka að reikna út hversu mikið magn þarf af áburði í heild.

12,5 kg poki dugir á ca 625 m2

4.190 kr. með vsk

Á lager

  • Reykjavík - 871
  • Selfoss - 82
  • Hvolsvöllur - 69

Á lager

Vörulýsing

Efnainnihald
– kornastærð 2-5mm
Köfnunarefni (N)12%
Fosfór (P – vatnsleysanlegur)5,2%
Fosfór (P – heildar)3,5%
Kalí (K)14,2%
Magnesíum (Mg)1,2%
Brennisteinn (S)8%
Bór (B)0,02%

Upplýsingar

Þyngd

Þyngd12,5 kg