Vefverslun

Rúlluplast Silotite Sustane 30%EU 75CM GRÆNT 1800m

VNR: 2501093

Á lager

20.820 kr. með vsk

Endurunnið rúlluplast frá SILOTITE

  • Sustane: framleitt úr 25% endurunnu efni
  • 20% meira á hverri rúllu
  • 23µm
  • Umhverfisvænni valkostur
  • Sama góða rúlluplastið
  • Endurvinnanlegt að fullu
  • Einstakur grár litur
  • Vörn gegn UV geislum
  • Þolir íslenska veðráttu

Hafðu samband við söludeild í síma 570-9800 til panta eða fá nánari upplýsingar

RúlluNet hvítt 130cm 3000m

VNR: 2508060

Á lager

33.468 kr. með vsk

Rúllunet 130cm á breidd og 3000m á lengd.

Virkilega sterkt og gott rúllunet sem er framleitt af mikilli þekkingu og
tækni.

Gefur vel eftir er með UV vörn og merkingar gefa til kynna ef rúllan er að
klárast.

Broddmælir

VNR: HZ31757

Á lager

3.658 kr. með vsk

Kálfamúslí Euroflakes 25kg

VNR: 9355

Á lager

5.827 kr. með vsk

Lystugt og gott kálfamúslí. Vöxtur og þroski á vambatotum er lykilatriði í kálfaeldi. Þær þurfa sterkju til að vaxa eðlilega. Leggðu grunn að góðri framleiðsluframtíð kálfsins. Inniheldur 19% prótein.

Feitur Extra 18 Hy-D®

VNR: 4401

Á lager

146 kr. með vsk

Feitur Extra 18 er orkurík blanda með 18% hrápróteininnihaldi. Inniheldur m.a. fiskimjöl. Gefur hentug AAT og PBV gildi í heildarfóðri. Feitur Extra 18 er frekar trénisrík tegund, sem stuðlar að hentugu vambarumhverfi og hjálpar til við mjólkurfitumyndun. Sérhannað kjarnfóður til þess að auka nyt, verðefni og bæta heilbrigði kúnna. Góð kögglagæði. Hentar vel í mjaltaþjóna og kjarnfóðurbása. Inniheldur Hy-D®.

Þetta fóður er eingöngu selt í lausu. 

Til að bæta heilsufar gripanna og auka afurðir höfum við nú bætt HY-D®, lífvirku og hraðvirku D-vítamíni, í allar okkar fóðurblöndur fyrir mjólkandi kýr.

HY-D® nýtist beint og hraðar í líkama gripanna og skilar sér í mælanlegum ávinningi:

✔️ Meiri D-vítamín virkni – hærra D-vítamínmagn í blóði

✔️ Meiri og betri broddmjólk – sterkari og heilbrigðari kálfar

✔️ Hærri nyt – vegna bættra Ca efnaskipta

✔️ lægri frumutala – minni líkur á júgurbólgu

✔️ Öflugra ónæmiskerfi – lægri tíðni sýkinga

✔️ Bætt heilsufar og meiri afurðir

Kálfamjólkurduft – silfur 25kg

VNR: 9436

Á lager

16.864 kr. með vsk

Hágæða kálfamjólkurduft frá Schils.

25 kg.

Hafrar til þroska – Luukas 600 kg

VNR: 2011087

Á lager

101.898 kr. með vsk

Snemmþroska hafrayrki með góða uppskeru og sterkt strá sem stendur vel.

Ráðlagt sáðmagn er 180–200 kg/ha

Sáðvörur í stórsekkjum er ekki hægt að versla í vefverslun. Hafið samband við sölumenn í síma 570 9800 fyrir nánari upplýsingar. 

Smáragrasblandan 15 kg – Forsmituð

VNR: 2000539

Á lager

20.274 kr. með vsk

Með smáraræktun fæst aukin prótein uppskera en einnig aukin binding köfnunarefnis í jarðvegi og getur því minnkað þarfir fyrir N í áburði. Lægri þörf fyrir aðkeypt prótein leiðir til meiri hagkvæmni á búinu. Gott samspil rauðsmára og hvítsmára gefur góða uppskeru, góðan endurvöxt og hvítsmárinn dreifir úr sér með jarðrenglum svo þekjan verður góð.

Sáðmagn 25-30 kg/ha.

Grasfræbl. Sígild 15 kg.

VNR: 2000536

Á lager

16.244 kr. með vsk

Grasfræblanda – Sígild 15 kg 

Upplagt til ísáningar!

Góð blanda sem hefur komið vel út hjá bændum. Góð svörun í endurræktinni. Breitt úrval vallarfoxyrkja, ásamt fjölæru rýgresi. Ferlitna rýgresi gefur meiri uppskeru og byggir upp gott gróffóður með vallarfoxgrasinu. Harðger og vetrarþolin blanda.

Sáðmagn: 20-25 kg/ha.

Græðir 6, 25 kg

VNR: 1133625

Á lager

6.690 kr. með vsk

Græðir 6

Græðir er tilbúinn áburður fyrir grasflatir. Áburðurinn er settur saman þannig að hann liggur nálægt meðalþörf. Ætti að viðhalda þeirri þörf sem jarðvegurinn þarf sé ekki um skort að ræða.

Ef grasflötin á að vera falleg, þétt og ræktarleg þá þarf að ná upp vextinum en þá þarf líka að slá oftar.

  • Ráðlagður skammtur er um 40gr. á m2 – ca 2 lúkur.
  • Bera skal Græði á um leið og farið er að grænka.
  • Ekki skal nota græði á sumarblóm, rifsberjarunna og kartöflur.

Íblöndunarefni – EcoSyl 100 (100tn)

VNR: 9878

Á lager

30.492 kr. með vsk
  • Inniheldur sérstakan stofn einsleitra baktería, MTD/1.
  • Vinnur vel á breiðu sviði verkunar, bæði sýrustigs og þurrefnisinnihalds.
  • Bakteríurnar virkar í gegnum allt gerjunar tímabilið og virkar strax við íblöndun.
  • Hentar vel í rúlluverkað gras og stæður með þurrefni um 30%.

Ein flaska dugar í 100 tonn af gróffóðri.

Smelltu hér til að sjá nánari upplýsingar

Chevivit E-Selen/sR f.lömb-kálfa -kiðlinga

VNR: 5228050

Á lager

2.721 kr. með vsk

Inniheldur Selen E,A og D3 vítamín

Fyrir lömb, kálfa og kiðlinga.

Fóstur jórturdýra fá hvorki nægjanlegt E-vítamín né selen. Nýfæddir kálfar, lömb og kiðlingar þurfa því viðbótarskammt af þessum efnum til að forðast skort og tryggja eðlilegan þroska.

Baletite Undirplast 1280mm x 20mu x 1650m

VNR: 2501092

Á lager

38.787 kr. með vsk

1280*0,020*1650

Kemur í stað fyrir rúllunet

Baletite er nýstárleg, 5 laga forstrekkt filma sem kemur í staðinn fyrir hefðbundið rúllunet í kringlóttum súrheysrúllum. Baletite er sérstaklega hugsað fyrir næstu kynslóð rúllubaggavéla sem geta notað filmu í stað nets, eins og McHale Fusion 3 Plus, Krone Comprima and Orkel hiQ, og er hannað til að styrkja votheysverkunarferlið og verja innihald rúllanna.

Þar sem Baletite er filma er loftþéttingin meiri og lögunin á rúllunum helstu betur þar sem takið utan um rúlluna er þéttara. Auk þess er dregið úr sóun á verðmætri súrheysfilmu þar sem ekkert fóður getur flækst í henni, ólíkt rúlluneti.

Rúllur pr. rúllu af Baletite 100 – 120

Fóðurlýsi kaldhreinsað 5L

VNR: 9019

Á lager

8.190 kr. með vsk

Fóðurlýsi er ríkt af náttúrulegum A- og D-vítamínum. Búfénaður sem fær daglega lýsi ber þess augljós merki m.a er feldurinn glansandi og hárafar fallegra. D-vítamín gerir upptöku kalks mögulega og fituskortur gerir síður vart við sig hjá dýrum sem fá reglulega lýsi. A-vítamín heldur slímhúð heilli og er nauðsynlegt sjóninni. Hvert gramm af lýsi inniheldur 37 kJ.

Cobalt, Selen og vítamín B12

VNR: NT3496

Á lager

19.364 kr. með vsk

h 2,5ltr