Hrímnis Reiðbuxur – Æfingaleggings
Hrímnir reið- og æfingabuxurnar eru hannaðar með innblæstri úr íþróttafatnaði og bjóða upp á einstök þægindi og frábært frelsi til hreyfingar.
Efnið er 4-way stretch með eiginleikum sem leiða raka frá húð, eru andrandi, bakteríuhamlandi, lyktarþolin og þorna mjög hratt.
Buxurnar eru háar í mitti með sléttri og breiðri mittisól, og frábær teygjanleiki gerir þær þægilegar fyrir flesta líkamsmótun.
Þær eru með heilsílikonprenti á setsvæði fyrir gott grip í hnakknum, tveimur hliðarvösum sem sitja þétt að (rúma t.d. farsíma) og einn láréttan rennilásvasa aftan á mittisól.
Hrímnir rider’s fitness tights eru hannaðar til að líta vel út, líða vel og henta jafnt sem þægilegur vinnufatnaður í hesthúsi, fyrir jafnvægis- og styrktaræfingar, í reiðtíma eða keppni.
Efni: 27% Spandex, 73% Polyester
19.990 kr. með vsk
Við höfum bætt þér á biðlista fyrir þessa vöru og sendum þér tölvupóst þegar varan er fáanleg.
Leave WaitlistÞessi vara er uppseld eins og er.
Engar áhyggjur! Sláðu inn netfangið þitt og við látum þig vita um leið og varan er aftur á lager.
Hannaðar fyrir einstök þægindi og fullt frelsi til hreyfingar
4-way-stretch efni
Vikur raka frá húð
Bakteríuhamlandi
Andandi
Lyktarþolnar
Þorna hratt
Mjúkar og þægilegar
Heilsílikonprent á setsvæði fyrir gott grip
Tveir aðsniðnir hliðarvasar (rúma farsíma)
Einn láréttur rennilásvasi aftan á mittisól
Endurskinlogo
Henta bæði til reiðar og fyrir rider fitness æfingar
Litir: svart, hvítt, grátt, dökkblátt og brúnt
Hannaðar og prófaðar á Íslandi
Fyrir fyrstu notkun
Við mælum með að þvo buxurnar samkvæmt þvottaleiðbeiningum okkar áður en þær eru notaðar í fyrsta sinn.
Til að hámarka endingu vörunnar, forðastu eftirfarandi:
Að nudda efnið eða sílikongripið upp við hrjúfar fleti, t.d. brúnir, harða sauma, bursta eða greiður
Þvott á háum hita eða notkun á sterkum þvottaefnum





