Hestastampur 12,5 kg.
Lystugur steinefna- og vítamínstampur sem er sérstaklega hannaður fyrir íslenska hestinn. Stampurinn inniheldur meðal annars kalsíum, magnesíum, fosfór, selen, bíótín og E- og B-vítamín. Ætlaður fyrir allt að fimm hesta og hentar vel með frjálsum aðgangi samhliða gróffóðri. Þyngd: 12,5 kg.
6.684 kr. með vsk
Á lager
Lagerstaða
- Reykjavík: Til á lager
- Selfoss: Til á lager
- Hvolsvöllur: Fá eintök
Á lager
Hestastampurinn frá Fóðurblöndunni er lystugur steinefna- og vítamínstampur sem er sérstaklega hannaður með þarfir íslenska hestsins í huga. Hann veitir fjölbreytt næringarefni sem bæta daglega fóðrun og hentar vel til notkunar samhliða góðu gróffóðri.
Stampurinn inniheldur kalsíum, magnesíum, fosfór og natríum ásamt mikilvægum snefilefnum. Hann er ríkur af bíótíni og E-vítamíni og inniheldur bæði lífrænt selen og B-vítamín. Melassi stuðlar að góðu bragði og auðveldar hestunum að sækja í stampinn eftir þörfum.
Helstu eiginleikar:
- Sérhannaður fyrir íslenska hestinn
- Fjölbreytt stein-, snefil- og vítamínblanda
- Kalsíum: 9%
- Natríum: 5%
- Magnesíum: 5%
- Fosfór: 3,5%
- Ríkur af bíótíni og E-vítamíni
- Inniheldur A-, D3- og B-vítamín
- Inniheldur selen, sink, kopar, járn, mangan, joð og kóbalt
- Lystugur stampur með melassa
- Ætlaður fyrir allt að fimm hesta
- Þyngd: 12,5 kg
Leiðbeinandi notkun:
- Áætluð dagsneysla er 50-100 g á hest.
- Hafið stampinn aðgengilegan með gróffóðri.
- Neysla fer meðal annars eftir fjölda hesta, öðru fóðri, aldri og staðsetningu stampsins.
- Forðist að staðsetja stampinn nálægt vatnsbóli.
- Sé stampurinn gefinn inni er ráðlagt að takmarka aðgang við nokkrar klukkustundir á dag.
Tryggið hestunum ávallt frjálsan aðgang að nægu gróffóðri og hreinu drykkjarvatni.
