Sáðvörur
Sýna 1–18 af 27 niðurstöðurSorted by price: high to low
Hafrar til þroska – Luukas 600 kg
Á lager
106.993 kr. með vskSnemmþroska hafrayrki með góða uppskeru og sterkt strá sem stendur vel.
Ráðlagt sáðmagn er 180–200 kg/ha
Sáðvörur í stórsekkjum er ekki hægt að versla í vefverslun. Hafið samband við sölumenn í síma 570 9800 fyrir nánari upplýsingar.
Grænf.S.hafrar Matty 600 kg
Á lager
114.836 kr. með vskGefur góða uppskeru í mismunandi jarðvegi. Langt strá en fremur sterkt. Eitt af mest ræktuðu yrkjum í Finnlandi. Samkvæmt Finnskum tilraunum er vaxtatíminn einum degi fyrr miðað við Belinda, með heldur meiri uppskeru.
Sáðmagn 180-200 kg/ha.
Sumarhafrar Matty 75-110 dagar.
Sáðvörur í stórsekkjum er ekki hægt að versla í vefverslun. Hafið samband við sölumenn í síma 570 9800 fyrir nánari upplýsingar.
Landgræðslublanda 15 kg
Á lager
30.955 kr. með vskLangræðslufræ
Landgræðslublanda – Grasfræ til landgræðslu – 15kg
Ný blanda með túnvingul, vallarsveifrasi og rýgresi.
Algengt sáðmagn er 2-3kg af fræinu á 100m2.
Nota skal 4-5kg af áburði(Blákorn eða Græðir 6) með fræinu. Blanda hvoru tveggja saman og dreifa.
Óráðlegt er að sá í miklum þurrkum ef ekki er hægt að vökva. Forðist að sá ef það er mjög hvasst.
Hentugast er að sá frá maí fram í miðjan ágúst.
Garðablanda – Grasfræ 15 kg
Á lager
30.955 kr. með vskHentar fyrir flesta húsgarða.
Grasfræ fyrir garðflatir
Blandan hentar vel í flesta húsgarða. Blandan þolir vel snöggan slátt. Til að viðhalda fínleikanum er mikilvægt að garðurinn fari ekki loðinn undir vetur. Gott getur verið að sá yfir á vorin til að viðhalda þéttri og þolinni gróðurþekju. Ráðlagt sáðmagn er um 1–2 kg/100 m2 allt eftir þéttleika.
Fræin eru húðuð með nauðsynlegum náttúrulegum plöntuhormónum og smá köfnunarefni. Við það fellur fræið vel niður ásamt því að fjúka ekki í rokinu. Plöntuhormónarnir og köfnunarefnið hjálpa vel við að láta grasið spíra mun fljótar.
Grasfr.Vallarfox. Tuukka 25 kg.
Á lager
25.715 kr. með vskVallarfoxgras Tuuka gefur góða uppskeru. í rannsóknum hefur Tuuka einnig gefið gott fóðurgildi. Vetrarþol þokkalegt – finnar telja Tuuka með vetrarþolnari yrkjum sem þeir rækta.
Sáðmagn pr. ha =20-25 kg
Gaf heldur meiri uppskeru en Snorri í tilraunum hér á landi en minni uppskeru en Grindstad. Í finnskum rannsóknum hafði það betra fóðurgildi en Grindstad. Vetrarþol gott. Finnar telja það með vetrarþolnari yrkjum við sínar aðstæður
Grasfr.Vallarfox Tenho 25 kg.
Á lager
25.715 kr. með vskUppskerumikið vallarfoxyrki með þokkalegt vetrarþol. Góður kostur þar sem áhersla er á afköst og stöðugan vöxt.
Ráðlagt sáðmagn er 20–25 kg/ha.
Strandreyr – Bamse 10 kg
Á lager
21.353 kr. með vskHálmur sem hentar vel og kemur í 10 kg sekk.
Fjölær planta og er aðallega ræktaður vegna hálmsins, til undirburðar þá aðallega. Harðgerð planta sem kemur upp ár eftir ár. Gefur mikla uppskeru og hentar vel til framleiðslu á hálmi sem nýttur er sem undirburður fyrir búfé.
Ráðlagt sáðmagn er 15–20 kg/ha.
Smáragrasblandan 15 kg – Forsmituð
Á lager
21.288 kr. með vskMeð smáraræktun fæst aukin prótein uppskera en einnig aukin binding köfnunarefnis í jarðvegi og getur því minnkað þarfir fyrir N í áburði. Lægri þörf fyrir aðkeypt prótein leiðir til meiri hagkvæmni á búinu. Gott samspil rauðsmára og hvítsmára gefur góða uppskeru, góðan endurvöxt og hvítsmárinn dreifir úr sér með jarðrenglum svo þekjan verður góð.
Sáðmagn 25-30 kg/ha.
Grænf.V.repja Ringo 25 kg.
Á lager
20.507 kr. með vskVetrarrepjan, sem einnig er kölluð fóðurkál, fer ekki í kynvöxt á fyrsta sumri eftir sáningu. Hún sprettur mun hægar og þarf u.þ.b. 120 vaxtardaga til að ná þokkalegri stærð.
Þetta afbrigði er einstaklega heppilegt til beitar, vegna þess að það sprettur ekki úr sér. Plantan heldur sér vel fram á haust og því mikið notuð til að bata lömb á haustin eftir að þau hafa komið af fjalli.
Að sama skapi er hún vinsæl sem fóður fyrir mjólkurkýr í hárri nyt.
Uppskerumikið og blaðríkt
Sáðmagn: 10 kg / ha
Vetrarrepja Ringo 90-120 dagar
Grasfræbl.Heyfengur 15 kg.
Á lager
19.400 kr. með vskGrasfræblanda – Heyfengur 15 kg
Eins og nafnið bendir til er þetta uppskerumikil blanda með 35% innihald af hávingli. Hávingull er uppskerumikið yrki og gefur góðan endurvöxt, ásamt úrvals vallarfoxyrkjum. Góður endurvöxtur sem gefur góðan seinni slátt.
Sáðmagn 25-30 kg/ha.
Grasfræbl.Beit og heyfengur 15 kg.
Á lager
18.228 kr. með vskGrasfræblanda – Beit og heyfengur 15kg
Söluhæsta grasfræblandan okkar undanfarin ár. Gefur góða beit og slátt með góðu fóðurgildi. Vallarfoxgras, sem er uppistaðan í blöndunni, er uppskerumikið en ekki skriðult. Vallarsveifgras er skriðul jurt, sem fyllir upp í opinn svörð og hóf- eða klaufaför eftir ágang og beit.
Sáðmagn: 25-30 kg/ha.
Grasfræbl. Vallarfox 15 kg.
Á lager
17.837 kr. með vskVallarfoxblandan – 15kg
Á sínum tíma báðu ráðunautar sérstaklega um svona blöndu. Vallarfoxgras er uppskerumikið, með gott fóðurgildi og er afar lystug grastegund. Með því að blanda þessum vallarfoxyrkjum saman næst góður fjölbreytileiki.
Sáðmagn: 25-30 kg/ha.
Grasfræbl. Sígild 15 kg.
Á lager
17.056 kr. með vskGrasfræblanda – Sígild 15 kg
Upplagt til ísáningar!
Góð blanda sem hefur komið vel út hjá bændum. Góð svörun í endurræktinni. Breitt úrval vallarfoxyrkja, ásamt fjölæru rýgresi. Ferlitna rýgresi gefur meiri uppskeru og byggir upp gott gróffóður með vallarfoxgrasinu. Harðger og vetrarþolin blanda.
Sáðmagn: 20-25 kg/ha.
Grænf.Vetrarrýgresi Barmultra 25 kg.
Á lager
15.624 kr. með vskVetrarrýgresi Barpluto: Vetrarrýgresi, ferlitna, blaðríkt, lágvaxið og skríður nánast ekkert. Þrautreynt hérlendis og mikið notað um árabil.
Sáðmagn: 30-40 kg/ha.
Vetrarrýgresi Barmultra (4 n)70-100 dagar
Protaplus 15 kg – Rýgresisblanda m. smára
Á lager
13.867 kr. með vskProtoplus (rýgresi + smári): Protaplus er einært rýgresi með hraðsprotnum smára. Spennandi blanda sem hefur gefið góða raun í tilraunum í Evrópu, þar á meðal Finnlandi.
Sáðmagn: 30-40 kg/ha.
Rýgresi og smárablanda Protaplus 70-120 dagar
Grænf.fóðurnæpur Samson 5 kg.
Á lager
5.859 kr. með vskFóðurnæpur
Fóðurnæpa er vetrareinær breytileg káltegund sem myndar stóra forðarót að hluta til ofanjarðar á fyrsta ári.
Á öðru ári vex upp úr forðarótinni há- vaxinn blómstöngull. Næpan er með hvítan forðavef en ytri litur getur verið hvítur, gulur, grænn og/eða fjólublár.
Sáðmagn: 1,5 kg. á ha
Vaxtadagar: 100-130 dagar
Fóðurnæpur Samson 100-130 dagar
Hafrar til þroska – Luukas 25 kg
Á lager
4.488 kr. með vskSnemmþroska hafrayrki með góða uppskeru og sterkt strá sem stendur vel.
Ráðlagt sáðmagn er 180–200 kg/ha
Sáðkorn Bygg KRÍA 2R/25 kg
Á lager
4.283 kr. með vskKría 2 raða: Miðlungi fljótþroska. Kría hentar vel til notkunar víða um land síst þó á austanverðu Norðurlandi. Víðast er Kría valin vegna öryggis, þó er það gert á mismunandi forsendum eftir landshlutum. Norðanlands stendur Kría betur en sex raða yrkin og þar má láta hana standa fram eftir hausti. Sunnanlands er Kría mun fljótari til þroska en þau tví raða yrki sem þar er um að velja.
Sáðmagn: 180-200 kg/ha.








