Mjaltir
Sýna allt 5 niðurstöðurSorted by average rating
Júgurklútar bleikir/bláir/gráir frotte 10stk
Á lager
5.790 kr. með vskSterkir og góðir íslenskir klútar.
Saumaðir í plastiðjunni Bjarg.
10 saman í pakka bláir og bleikir að lit.
Spenadýfuefni Dipal Conc 10L
Á lager
17.835 kr. með vskVirkilega góð spenadýfa/þykkni sem blandast 1:4 í vatn.
Inniheldur joð og hreinsar vel.
Júgurþvottalögur 5 L
Á lager
4.950 kr. með vsk5 lítrar
Júgurþvottalögur – sótthreinsandi þvottalögur með klórhexidíni.
Júgurþvottalögur er tvívirkt hreinsiefni, sem bæði hreinsar og sótthreinsar samtímis. Júgurþvottalögur inniheldur hvorki ilm- né litarefni. Regluleg notkun júgurþvottalagar og glýserín joðófór til skiptis varnar útbreiðslu júgurbólgu.
Blöndun:
Þvottur og sótthreinsun á júgrum: blandið 5ml (uþb. 1/2 tappa ) í 1 ltr af vatni.
Spenadýfa: Blandið 1 hluta af júgurþvottalegi með 5 hlutum af vatni.
Sótthreinsun á höndum: Notið júgurþvottalög óblandaðan. Skolið hendur vel á eftir með vatni.
Sótthreinsun þvottaklúta: blandið 5ml (uþb. 1/2 tappa ) í 1 ltr af vatni.
Innihald: vatn, klórhexidíndíglúkónat, glýseról, jónísk og ójónísk yfirborðsvirk efni.
Sýrustig: Óblandað pH 6,5
Ath.
Nauðsynlegt er að nota júgurþvottalög og glýserín joðófór til skiptis til að koma í veg fyrir ónæmi baktería.
Júgursápa Hamra 10LTR
Á lager
11.303 kr. með vskFrábær júgursápa sem þrífur og mýkir á sama tíma. Hægt að nota sem sápu froðu eða sprey.
Spenaspray OceanBlu 20L
Á lager
39.521 kr. með vskOceanBlu spenaspreyið er joðlaust spenasprey sem hefur reynst gríðarlega vel til þess að mýkja spena og bæta ástanda þeirra, ásamt því að draga úr hættu á júgurbólgum. Þurr og sprungin húð getur hleypt bakteríum inn í júgrið, en regluleg notkun OceanBlu eftir mjaltir ver spenaop og mýkir spenana með glycerini og sorbitoli, sem vinna saman í að því að vernda húðina.
Eftir aðeins tvær vikur má sjá greinilegan mun á mýkt spenaenda, og eftir átta vikur eru flestir spenar í góðu ástandi.
Frábær vara sem hefur reynst einstaklega vel til að viðhalda hreinlæti og júgurheilbrigði.








