Mjaltir

Júgurþvottalögur 5 L

VNR: 5211165

Á lager

4.950 kr. með vsk

5 lítrar

Júgurþvottalögur – sótthreinsandi þvottalögur með klórhexidíni.

Júgurþvottalögur er tvívirkt hreinsiefni, sem bæði hreinsar og sótthreinsar samtímis. Júgurþvottalögur inniheldur hvorki ilm- né litarefni. Regluleg notkun júgurþvottalagar og glýserín joðófór til skiptis varnar útbreiðslu júgurbólgu.

Blöndun:

Þvottur og sótthreinsun á júgrum: blandið 5ml (uþb. 1/2 tappa ) í 1 ltr af vatni.

Spenadýfa: Blandið 1 hluta af júgurþvottalegi með 5 hlutum af vatni.

Sótthreinsun á höndum: Notið júgurþvottalög óblandaðan. Skolið hendur vel á eftir með vatni.

Sótthreinsun þvottaklúta: blandið 5ml (uþb. 1/2 tappa ) í 1 ltr af vatni.

Innihald: vatn, klórhexidíndíglúkónat, glýseról, jónísk og ójónísk yfirborðsvirk efni.

Sýrustig: Óblandað pH 6,5

Ath.

Nauðsynlegt er að nota júgurþvottalög og glýserín joðófór til skiptis til að koma í veg fyrir ónæmi baktería.

Júgurklútar bleikir/bláir/gráir frotte 10stk

VNR: 5211207

Á lager

5.790 kr. með vsk

Sterkir og góðir íslenskir klútar.

Saumaðir í plastiðjunni Bjarg.

10 saman í pakka bláir og bleikir að lit.

Júgursápa Hamra 10LTR

VNR: AL741006707

Á lager

11.303 kr. með vsk

Frábær júgursápa sem þrífur og mýkir á sama tíma. Hægt að nota sem sápu froðu eða sprey.

Spenadýfuefni Dipal Conc 10L

VNR: AL741006489

Á lager

17.835 kr. með vsk

Virkilega góð spenadýfa/þykkni sem blandast 1:4 í vatn.

Inniheldur joð og hreinsar vel.

Spenaspray OceanBlu 20L

VNR: AL741006274

Á lager

39.521 kr. með vsk

OceanBlu spenaspreyið er joðlaust spenasprey sem hefur reynst gríðarlega vel til þess að mýkja spena og bæta ástanda þeirra, ásamt því að draga úr hættu á júgurbólgum. Þurr og sprungin húð getur hleypt bakteríum inn í júgrið, en regluleg notkun OceanBlu eftir mjaltir ver spenaop og mýkir spenana með glycerini og sorbitoli, sem vinna saman í að því að vernda húðina.

Eftir aðeins tvær vikur má sjá greinilegan mun á mýkt spenaenda, og eftir átta vikur eru flestir spenar í góðu ástandi.

Frábær vara sem hefur reynst einstaklega vel til að viðhalda hreinlæti og júgurheilbrigði.