Hestafóður
Sýna allt 4 niðurstöðurSorted by popularity
Hestafóður
Gjafagrind fyrir hross
Á lager
106.190 kr. með vskGjafagrind fyrir hross, 220 cm í þvermál
Folaldakögglar 25kg
Á lager
6.260 kr. með vskFolaldakögglar eru hágæða hestafóður/fóðurbætir fyrir folöld og unghross.
Sérframleitt á íslandi með þarfir íslenska hestsins í huga.
Inniheldur hágæða prótein m.a úr fiskimjöli og ríkulegt magn steinefna og vítamína.
Hentar fyrir folöld og unghross í vexti, frá 6 mánaða aldri.
Einnig gott fyrir hross í þjálfun með miklar próteinþarfir t.d. graðhesta og unghross sem þurfa auka vöðvamassa.
Hnokki – Hestakögglar 18KG
Á lager
5.207 kr. með vskHnokki hestafóður.
Hnokki eru þandir, orkuríkir hestakögglar með háu fituinnihaldi en próteinsnauðir. Hnokki er frábær fóðurbætir fyrir orkufrek hross í mikilli þjálfun, eða hross sem þurfa að auka hold.
Fitfóðrun hrossa hefur jákvæð áhrif á efnaskiptasvörun, sem getur leitt til lægri mjólkursýru í vöðvum við þjálfun.
1kg/dag með heyi ætti að fullnægja þörfum hestsins fyrir öllum vítamínum og steinefnum. Kögglarnir eru E-vitamín og bíótínríkir. Hentugt bíotín innihald eykur hóf- og hárvöxt til muna. Þeir eru ryklausir og mjög lystugir.
Þokki – Hestakögglar 5% fita 18KG
Á lager
5.207 kr. með vskÞokki hestafóður.
Alhliða fóðurbætir fyrir íslenska hesta.
Þokki er frábær viðbót fyrir hross í miðlungs eða mikilli þjálfun.
Hestakögglarnir eru þanið fóður, framleiddir með sömu aðferð og t.d. morgunkorn. Við það eykst meltanleikinn og kögglarnir verða mjög lystugir.