Fóður

Lúxus fuglafóður 25 KG

VNR: 8258

Á lager

10.968 kr. með vsk
Lúxus fuglafóður fyrir íslenska vetrarfugla.
Fuglafóðrið okkar er framleitt úr íslensku fiskimjöli og lýsi, sem veitir fuglunum orku og næringu beint úr hafinu.
Þetta er frábært vetrarfóður, fullt af orku og fitu sem hjálpar fuglunum að halda hita og styrk þegar kalt er í veðri.
Kögglarnir eru 4mm á stærð, og því fullkomnir fyrir smærri fugla sem þurfa næringu yfir kalda og dimma mánuði.
Styðjum íslenskt fuglalíf – með næringarríku, íslensku fuglafóðri.

Lúxus fuglafóður 3.5 kg

VNR: 5906

Á lager

3.990 kr. með vsk
Lúxus fuglafóður fyrir íslenska vetrarfugla.

Fuglafóðrið okkar er framleitt úr íslensku fiskimjöli og lýsi, sem veitir fuglunum orku og næringu beint úr hafinu.
Þetta er frábært vetrarfóður, fullt af orku og fitu sem hjálpar fuglunum að halda hita og styrk þegar kalt er í veðri.
Kögglarnir eru 4mm á stærð, og því fullkomnir fyrir smærri fugla sem þurfa næringu yfir kalda og dimma mánuði.
Styðjum íslenskt fuglalíf – með næringarríku, íslensku fuglafóðri.

Andarungakögglar

VNR: VP-ANDARUNGAKÖGGLAR

Á lager

Price range: 191 kr. through 5.136 kr. með vsk

Andarungakögglar eru eldisfóður fyrir andarunga frá 15 daga aldri

Veldu kosti This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page

DK – Hy-D®

VNR: VP-DK-HY-D

Á lager

Price range: 126 kr. through 140.142 kr. með vsk

DK – Hy-D® er vandað kjarnfóður fyrir mjólkurkýr, sérstaklega hentugt sem grunnblanda þegar gefnar eru fleiri en ein tegund kjarnfóðurs. Blandan inniheldur Hy-D®, lífvirkt D-vítamín sem styður við D-vítamínstöðu, kalkefnaskipti, ónæmi og almennt heilsufar gripa.

Fóðrið er fituhúðað, með góð kögglagæði og er nánast ryklaust, sem gerir það lystugt og þægilegt í meðhöndlun.

Veldu kosti This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page

Eldi

VNR: VP-ELDI

Á lager

Price range: 119 kr. through 127.159 kr. með vsk

Eldi er kjarnfóður fyrir nautgripi í lokaeldi, bæði naut og kvígur. Fóðrið er sérstaklega samsett til að styðja við vöxt, fallþunga, kjötgæði og fitusprengingu síðustu 1–3 mánuðina fyrir slátrun.

Fóðrið inniheldur viðbætt E-vítamín sem safnast upp í vöðvum og getur hjálpað til við að vernda kjötið eftir slátrun, sem stuðlar að fallegri og verðmætari afurð.

Veldu kosti This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page

Feitur KK – Hy-D®

VNR: VP-FEITUR-KK-HY-D

Á lager

Price range: 147 kr. through 155 kr. með vsk

Stutt lýsing

Feitur KK – Hy-D® er orkuríkt kjarnfóður fyrir mjólkandi kýr, byggt á gömlu góðu Kúakögglunum með viðbættri vambarvarðri fitu. Fóðrið er sérstaklega hentugt fyrir hámjólka kýr, einkum snemma á mjaltaskeiði þegar orkuþörfin er mikil.

Feitur KK – Hy-D® er hannað til að styðja við mjólkurframleiðslu, auka mjólkurfitu og bæta heilsufar gripa. Fóðrið inniheldur Hy-D®, lífvirkt og hraðvirkt D-vítamín sem styður við kalkefnaskipti, ónæmiskerfi og almenna hreysti mjólkurkúa.

Eingöngu selt í lausu.

Veldu kosti This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page

Feitur Róbót – HY-D®

VNR: VP-FEITUR-ROBOT-HYD

Á lager

Price range: 134 kr. through 148.171 kr. með vsk

Feitur Róbót – Hy-D® er sérlega orkuríkt kjarnfóður fyrir mjólkandi kýr, hannað til að styðja við aukna mjólkurfitu, góða nyt og heilbrigði gripa. Blandan inniheldur mikið magn sykurrófuhrats, trefjar sem nýtast vel til mjólkurfitumyndunar, ásamt ríkulegu magni þurrfitu.

Fóðrið inniheldur einnig íslenska kalkþörunga sem styðja við jafnvægi á sýrustigi vambarinnar, auk Hy-D®, lífvirks og hraðvirks D-vítamíns sem styður við kalkefnaskipti, ónæmi og almennt heilsufar mjólkurkúa.

Veldu kosti This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page

FHN Mother and babycat 195gr

VNR: R307720

Á lager

895 kr. með vsk

Heildstætt blautfóður fyrir kettlingafullar og mjólkandi læður ásamt kettlingum frá 1–4 mánaða aldri. Royal Canin Mother & Babycat Ultra Soft Mousse er með mjúka áferð sem auðveldar kettlingum umskiptin yfir í fasta fæðu. Vítamín C og E, DHA og góðgerlaörvandi efni styðja jafnframt við náttúrulegar varnir líkamans, heilbrigðan þroska og góða meltingu.

Geldstöðukögglar Hy-D®

VNR: VP-GELDSTÖÐUKÖGGLAR

Á lager

Price range: 155 kr. through 159.579 kr. með vsk

Geldstöðukögglar Hy-D® eru hágæða kjarnfóður fyrir geldkýr, sérhannað til að styðja við heilsu, undirbúning fyrir burð og góðan upphafsfasa á næsta mjaltaskeiði.

Fóðrið er próteinríkt og inniheldur Hy-D®, E-vítamín, bíótín og magnesíum. Það styður við vömbina, hjálpar til við uppbyggingu próteinforða og getur stuðlað að heilbrigðari kúm, sterkari kálfum og betri afurðum eftir burð. Gefið á geldstöðu, 2 kg á dag. Gefið ekki mjólkandi kúm.

Veldu kosti This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page

H-kögglar

VNR: VP-H-KÖGGLAR

Á lager

Price range: 159 kr. through 4.467 kr. með vsk

H-kögglar eru kjarnfóður fyrir mjólkurkýr sem hentar sérstaklega vel með blautverkuðum rúllum og próteinsnauðu heyi. Fóðrið er góður kostur þegar bæta þarf upp prótein og næringu í gróffóðri og styðja við jafnvægi í daglegri fóðrun.

H-kögglar henta vel fyrir kúabú sem vilja einfalt, lystugt og markvisst kjarnfóður til að styðja við mjólkurframleiðslu, fóðurnýtingu og almennt heilbrigði mjólkurkúa.

Veldu kosti This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page

Hekla – Hestafóður

VNR: VP-HEKLA-HESTA

Á lager

Price range: 4.917 kr. through 94.763 kr. með vsk

Kjarnfóður fyrir hross í þjálfun, sérlega fyrir keppnis- og kynbótahross.

  Hátt próteininnihald fyrir vöxt og viðhald vöðva.
  Inniheldur fiskimjöl – Hentug amínósýrusamsetning.
  Hátt hlutfall meltanlegra trefja.
  Hátt fituinnihald – Jákvæð áhrif á efnaskipti hestsins.
•  Inniheldur kalkþörunga sem jafna sýrustig í meltingarvegi.
  Fullbúið steinefnum og vítamínum.
•  Sérhannað eftir íslenskum heyefnagreiningum.

Veldu kosti This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page

Pro Omega Adult 15 kg. GRÆNN

VNR: AR18975

Á lager

8.324 kr. með vsk

Adult Chicken & Fish frá Pro Omega er hágæða hundafóður fyrir kröfuharða, fullorðna hunda.

Inniheldur kjúklingakjöt og hentar flestum hundum með miðlungs fóðurþarfir. Inniheldur hátt hlutfall dýrapróteina (65%) og dýrafitu (80%). Sambærilegt og Adult Lamb og Rice nema þetta fóður inniheldur einnig kjúkling og fisk ásamt öðru kjötmeti.

Kappi hundafóður 18kg

VNR: 7520

Á lager

4.030 kr. með vsk

18 kg.

Kappi er heilfóður fyrir hunda.

Sámur hundafóður 18 kg.

VNR: AR18433

Á lager

7.611 kr. með vsk

Sámur 18 kg poki – Gæðafóður á góðu verði, sérpakkað fyrir Fóðurblönduna. (Premium B+ fóður) Uppfyllir öll skilyrði fullorðins hunds. Gott verð. 21% Prótein og 8% fita.

Pro Omega Puppy 8 kg BLÁR

VNR: AR18979

Á lager

5.575 kr. með vsk

Hágæða hvolpafóður fyrir hvolpa frá 4-6 vikna aldri til 1 árs. Stuðlar að heilbrigðum vexti, sterku stoð- og ónæmiskerfi. Inniheldur hátt hlutfall dýrapróteina (65%) og dýrafitu (80%).

Fóðrið er sérsniðið að þörfum hvolpa, með auðmeltum, sérvöldum hráefnum. Fóðrið er hátt í próteini og fitusamsetningu ásamt því að vera ríkt af kalki og vítamínum, allt eiginleikar sem byggja undir heilbrigðan vöxt og beinabyggingu.

Kálfakögglar

VNR: VP-KÁLFAKÖGGLAR

Á lager

Price range: 149 kr. through 155.423 kr. með vsk

Kálfakögglar eru próteinríkt og steinefna- og vítamínríkt kjarnfóður fyrir kálfa frá tveggja vikna aldri. Fóðrið inniheldur ríkulegt magn af fiskimjöli og vel samsetta próteingjafa sem styðja við vöxt, þroska og góða byrjun í uppeldi kálfa.

Kálfakögglar örva þroska vambarinnar og hjálpa kálfum að ná upp góðu áti samhliða mjólkurgjöf, áður en þeir hætta alveg á mjólk. 6 mm kögglastærð stuðlar að góðu áti og getur flýtt fyrir vexti.

Veldu kosti This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page