Fóður
Sýna 1–18 af 101 niðurstaðaSorted by price: high to low
Kúakögglar – Hy-D®
Á lager
0 kr. – 129.299 kr.Price range: 0 kr. through 129.299 kr. með vskKúakögglar – Hy-D® eru orkuríkar og fiskimjölsríkar kjarnfóðurblöndur fyrir mjólkandi kýr. Blöndurnar hafa reynst einstaklega vel í fjölda ára og henta vel fyrir hátt framleiðslustig, þar sem markmiðið er að styðja við góða nyt, fóðurnýtingu og heilbrigði gripa.
Kúakögglar innihalda hátt hlutfall maís sem gerjast hægt í vömb og nýtist sem góður orkugjafi. Fóðrið inniheldur einnig Hy-D®, lífvirkt og hraðvirkt D-vítamín sem styður við kalkefnaskipti, ónæmi og almennt heilsufar mjólkurkúa.
Geldstöðukögglar Hy-D®
Á lager
155 kr. – 159.579 kr.Price range: 155 kr. through 159.579 kr. með vskGeldstöðukögglar Hy-D® eru hágæða kjarnfóður fyrir geldkýr, sérhannað til að styðja við heilsu, undirbúning fyrir burð og góðan upphafsfasa á næsta mjaltaskeiði.
Fóðrið er próteinríkt og inniheldur Hy-D®, E-vítamín, bíótín og magnesíum. Það styður við vömbina, hjálpar til við uppbyggingu próteinforða og getur stuðlað að heilbrigðari kúm, sterkari kálfum og betri afurðum eftir burð. Gefið á geldstöðu, 2 kg á dag. Gefið ekki mjólkandi kúm.
Kálfakögglar
Á lager
149 kr. – 155.423 kr.Price range: 149 kr. through 155.423 kr. með vskKálfakögglar eru próteinríkt og steinefna- og vítamínríkt kjarnfóður fyrir kálfa frá tveggja vikna aldri. Fóðrið inniheldur ríkulegt magn af fiskimjöli og vel samsetta próteingjafa sem styðja við vöxt, þroska og góða byrjun í uppeldi kálfa.
Kálfakögglar örva þroska vambarinnar og hjálpa kálfum að ná upp góðu áti samhliða mjólkurgjöf, áður en þeir hætta alveg á mjólk. 6 mm kögglastærð stuðlar að góðu áti og getur flýtt fyrir vexti.
Feitur Róbót – HY-D®
Á lager
134 kr. – 148.171 kr.Price range: 134 kr. through 148.171 kr. með vskFeitur Róbót – Hy-D® er sérlega orkuríkt kjarnfóður fyrir mjólkandi kýr, hannað til að styðja við aukna mjólkurfitu, góða nyt og heilbrigði gripa. Blandan inniheldur mikið magn sykurrófuhrats, trefjar sem nýtast vel til mjólkurfitumyndunar, ásamt ríkulegu magni þurrfitu.
Fóðrið inniheldur einnig íslenska kalkþörunga sem styðja við jafnvægi á sýrustigi vambarinnar, auk Hy-D®, lífvirks og hraðvirks D-vítamíns sem styður við kalkefnaskipti, ónæmi og almennt heilsufar mjólkurkúa.
Róbót – Hy-D®
Á lager
124 kr. – 142.249 kr.Price range: 124 kr. through 142.249 kr. með vskRóbót – Hy-D® er lystug kjarnfóðurblanda fyrir mjólkandi kýr, sérstaklega hentug til gjafar í mjaltaþjónum. Blandan er samsett með hentugu samspili ólíkra sterkjuafurða og hefur frábær kögglagæði sem tryggja góða flæði- og notkunareiginleika í fóðurkerfum.
Fóðrið inniheldur Hy-D®, lífvirkt og hraðvirkt D-vítamín sem styður við kalkefnaskipti, ónæmiskerfi og almennt heilsufar mjólkurkúa. Fáanlegt sem Róbót 16 og Róbót 20.
DK – Hy-D®
Á lager
126 kr. – 140.142 kr.Price range: 126 kr. through 140.142 kr. með vskDK – Hy-D® er vandað kjarnfóður fyrir mjólkurkýr, sérstaklega hentugt sem grunnblanda þegar gefnar eru fleiri en ein tegund kjarnfóðurs. Blandan inniheldur Hy-D®, lífvirkt D-vítamín sem styður við D-vítamínstöðu, kalkefnaskipti, ónæmi og almennt heilsufar gripa.
Fóðrið er fituhúðað, með góð kögglagæði og er nánast ryklaust, sem gerir það lystugt og þægilegt í meðhöndlun.
Vöxtur
Á lager
132 kr. – 135.264 kr.Price range: 132 kr. through 135.264 kr. með vskVöxtur er kjarnfóður fyrir kálfa og ungneyti, sérhannað til að styðja við mikinn en heilbrigðan vaxtarhraða. Fóðrið styður við vöxt vöðva og stoðkerfis og hentar vel þegar markmiðið er að byggja upp sterka, hrausta og vel þroskaða gripi.
Vöxtur er góður kostur eftir kálfaköggla og nýtist sem hluti af markvissri fóðuráætlun fyrir áframeldi, þar sem lögð er áhersla á góðan þroska, jafnan vöxt og hagkvæma fóðrun.
Eldi
Á lager
119 kr. – 127.159 kr.Price range: 119 kr. through 127.159 kr. með vskEldi er kjarnfóður fyrir nautgripi í lokaeldi, bæði naut og kvígur. Fóðrið er sérstaklega samsett til að styðja við vöxt, fallþunga, kjötgæði og fitusprengingu síðustu 1–3 mánuðina fyrir slátrun.
Fóðrið inniheldur viðbætt E-vítamín sem safnast upp í vöðvum og getur hjálpað til við að vernda kjötið eftir slátrun, sem stuðlar að fallegri og verðmætari afurð.
Maískögglar
Á lager
110 kr. – 116.880 kr.Price range: 110 kr. through 116.880 kr. með vskMaískögglar eru orkuríkur fóðurbætir sem hentar vel með öðru fóðri þegar auka þarf orku í fóðrun mjólkurkúa. Fóðrið er glúkógenísk orkuviðbót sem nýtist sérstaklega vel á snemm-mjaltaskeiði, þegar orkuþörf kúnna er mikil.
Maískögglar geta stutt við betra heilsufar, aukið orkujafnvægi og dregið úr líkum á súrdoða. Þeir henta vel sem hluti af markvissri fóðuráætlun þar sem lögð er áhersla á góða nyt, fóðurnýtingu og heilbrigði gripa.
Milljónablanda óerfðabreytt
Á lager
202 kr. – 103.591 kr.Price range: 202 kr. through 103.591 kr. með vskMilljónablandan hentar sauðfé með beit, á fengitíma og eftir burð. Blandan er sett í gegnum kögglunarvél til að tryggja rétta hitameðhöndlun.
Hekla – Hestafóður
Á lager
3.933 kr. – 75.811 kr.Price range: 3.933 kr. through 75.811 kr. með vsk
Kjarnfóður fyrir hross í þjálfun, sérlega fyrir keppnis- og kynbótahross.
• Hátt próteininnihald fyrir vöxt og viðhald vöðva.
• Inniheldur fiskimjöl – Hentug amínósýrusamsetning.
• Hátt hlutfall meltanlegra trefja.
• Hátt fituinnihald – Jákvæð áhrif á efnaskipti hestsins.
• Inniheldur kalkþörunga sem jafna sýrustig í meltingarvegi.
• Fullbúið steinefnum og vítamínum.
• Sérhannað eftir íslenskum heyefnagreiningum.
Sauðfjárblanda
Á lager
4.453 kr. – 68.703 kr.Price range: 4.453 kr. through 68.703 kr. með vskÓerfðabreytt sauðfjárfóður sem hentar afar vel með meðalgóðum heyjum.
Góður valkostur fyrir sauðfé.
Royal Canin hundamatur Maxi puppy
Á lager
7.470 kr. – 21.288 kr.Price range: 7.470 kr. through 21.288 kr. með vsk
Heildstætt hvolpafóður fyrir stórhundategundir (26-44 kg fullvaxnir) til allt að 15 mánaða aldurs.
Stuðlar að eðlilegum þroska beina og liða með jöfnu magni orku og steinefna.
Styrkir ónæmiskerfið.
Royal Canin hundamatur Medium puppy
Á lager
7.533 kr. – 20.853 kr.Price range: 7.533 kr. through 20.853 kr. með vsk
Heildstætt fóður fyrir hvolpa í meðalstærð (frá 11-25 kg fullvaxnir) allt að 12 mánaða aldri
Kalk og fosfór innihald hjálpar til við eðlilegan vöxt beina.
Styrkir ónæmiskerfið.
Mætir orkuþörf hvolpa sem vaxa hratt á stuttum tíma.
Stuðlar að heilbrigðri meltingu.
Royal Canin kattamatur Hair&Skin
Á lager
1.242 kr. – 20.691 kr.Price range: 1.242 kr. through 20.691 kr. með vsk
Kattamatur fyrir feld og húð.
Heildstætt fóður fyrir fullorðna ketti, stuðlar að heilbrigðri húð og glansandi feldi.
Sjáanlegur munur á feldi eftir 21 dag.
Inniheldur blöndu næringarefna sem eru þekkt fyrir góð áhrif á húð og hár, s.s. ómega-3 og ómega-6 fitusýrur.
Royal Canin hundamatur Labrador adult
Á lager
20.358 kr. með vsk
Fóður fyrir fullorðna Labrador hunda.
Þurrfóður sérstaklega ætlað fyrir Labrador hunda eldri en 15 mánaða.
Hjálpar til við að viðhalda kjörþyngd.
Stuðlar að heilbrigðum beinum og liðum.
Styrkir og viðheldur heilbrigðri húð og feldi.
Lögun fóðurkúlnanna hjálpar til við að fá hundinn til að borða hægar.
Royal Canin hundamatur Maxi adult
Á lager
6.723 kr. – 18.766 kr.Price range: 6.723 kr. through 18.766 kr. með vsk
Heildstætt fóður fyrir stóra hunda (26-44 kg) eldri en 15 mánaða.
Stuðlar að góðri meltingu.
Mjög bragðgott.
Styrkir bein og liði.
Inniheldur ómega-3 fitusýrur sem stuðla að heilbrigðri húð og styrkingu ónæmiskerfis.
Inniheldur blöndu vítamína og steinefna sem hafa hlutverki í andoxunaráhrifum á líkamann og styrkir þar með ónæmiskerfið.
Hundamatur Royal Canin Starter
Á lager
9.198 kr. með vsk
Heildstætt fóður ætlað tíkum og hvolpum frá getnaði, á meðgöngu, á meðan hvolparnir eru á spena og sem fyrsta fóður til 2ja mánaða aldurs.
- Er mjög orkuríkt til að mæta þörfum hjá hvolpafullum tíkum og hjá tíkum með hvolpa á spena.
- Tilvalið sem fyrsta fóður hjá hvolpum sem eru að hætta á spena.
- Bragðgott og auðvelt að bleyta upp.
Kemur fyrir litla hunda og meðalstóra.








