Fóður
Sýna 1–20 af 110 niðurstöðurSorted by price: low to high
Kúakögglar – Hy-D®
Á lager
0 kr. – 131.898 kr.Price range: 0 kr. through 131.898 kr. með vskKúakögglar – Hy-D® eru orkuríkar og fiskimjölsríkar kjarnfóðurblöndur fyrir mjólkandi kýr. Blöndurnar hafa reynst einstaklega vel í fjölda ára og henta vel fyrir hátt framleiðslustig, þar sem markmiðið er að styðja við góða nyt, fóðurnýtingu og heilbrigði gripa.
Kúakögglar innihalda hátt hlutfall maís sem gerjast hægt í vömb og nýtist sem góður orkugjafi. Fóðrið inniheldur einnig Hy-D®, lífvirkt og hraðvirkt D-vítamín sem styður við kalkefnaskipti, ónæmi og almennt heilsufar mjólkurkúa.
Eldi
Á lager
125 kr. – 129.715 kr.Price range: 125 kr. through 129.715 kr. með vskEldi er kjarnfóður fyrir nautgripi í lokaeldi, bæði naut og kvígur. Fóðrið er sérstaklega samsett til að styðja við vöxt, fallþunga, kjötgæði og fitusprengingu síðustu 1–3 mánuðina fyrir slátrun.
Fóðrið inniheldur viðbætt E-vítamín sem safnast upp í vöðvum og getur hjálpað til við að vernda kjötið eftir slátrun, sem stuðlar að fallegri og verðmætari afurð.
Róbót – Hy-D®
Á lager
127 kr. – 143.671 kr.Price range: 127 kr. through 143.671 kr. með vskRóbót – Hy-D® er lystug kjarnfóðurblanda fyrir mjólkandi kýr, sérstaklega hentug til gjafar í mjaltaþjónum. Blandan er samsett með hentugu samspili ólíkra sterkjuafurða og hefur frábær kögglagæði sem tryggja góða flæði- og notkunareiginleika í fóðurkerfum.
Fóðrið inniheldur Hy-D®, lífvirkt og hraðvirkt D-vítamín sem styður við kalkefnaskipti, ónæmiskerfi og almennt heilsufar mjólkurkúa. Fáanlegt sem Róbót 16 og Róbót 20.
DK – Hy-D®
Á lager
131 kr. – 142.946 kr.Price range: 131 kr. through 142.946 kr. með vskDK – Hy-D® er vandað kjarnfóður fyrir mjólkurkýr, sérstaklega hentugt sem grunnblanda þegar gefnar eru fleiri en ein tegund kjarnfóðurs. Blandan inniheldur Hy-D®, lífvirkt D-vítamín sem styður við D-vítamínstöðu, kalkefnaskipti, ónæmi og almennt heilsufar gripa.
Fóðrið er fituhúðað, með góð kögglagæði og er nánast ryklaust, sem gerir það lystugt og þægilegt í meðhöndlun.
Vöxtur
Á lager
136 kr. – 135.940 kr.Price range: 136 kr. through 135.940 kr. með vskVöxtur er kjarnfóður fyrir kálfa og ungneyti, sérhannað til að styðja við mikinn en heilbrigðan vaxtarhraða. Fóðrið styður við vöxt vöðva og stoðkerfis og hentar vel þegar markmiðið er að byggja upp sterka, hrausta og vel þroskaða gripi.
Vöxtur er góður kostur eftir kálfaköggla og nýtist sem hluti af markvissri fóðuráætlun fyrir áframeldi, þar sem lögð er áhersla á góðan þroska, jafnan vöxt og hagkvæma fóðrun.
Feitur Róbót – HY-D®
Á lager
141 kr. – 154.158 kr.Price range: 141 kr. through 154.158 kr. með vskFeitur Róbót – Hy-D® er sérlega orkuríkt kjarnfóður fyrir mjólkandi kýr, hannað til að styðja við aukna mjólkurfitu, góða nyt og heilbrigði gripa. Blandan inniheldur mikið magn sykurrófuhrats, trefjar sem nýtast vel til mjólkurfitumyndunar, ásamt ríkulegu magni þurrfitu.
Fóðrið inniheldur einnig íslenska kalkþörunga sem styðja við jafnvægi á sýrustigi vambarinnar, auk Hy-D®, lífvirks og hraðvirks D-vítamíns sem styður við kalkefnaskipti, ónæmi og almennt heilsufar mjólkurkúa.
Feitur KK – Hy-D®
Á lager
151 kr. – 160 kr.Price range: 151 kr. through 160 kr. með vskStutt lýsing
Feitur KK – Hy-D® er orkuríkt kjarnfóður fyrir mjólkandi kýr, byggt á gömlu góðu Kúakögglunum með viðbættri vambarvarðri fitu. Fóðrið er sérstaklega hentugt fyrir hámjólka kýr, einkum snemma á mjaltaskeiði þegar orkuþörfin er mikil.
Feitur KK – Hy-D® er hannað til að styðja við mjólkurframleiðslu, auka mjólkurfitu og bæta heilsufar gripa. Fóðrið inniheldur Hy-D®, lífvirkt og hraðvirkt D-vítamín sem styður við kalkefnaskipti, ónæmiskerfi og almenna hreysti mjólkurkúa.
Eingöngu selt í lausu.
Feitur Extra 18 Hy-D®
Á lager
154 kr. með vskVöxtur er kjarnfóður fyrir kálfa og ungneyti, sérhannað til að styðja við mikinn en heilbrigðan vaxtarhraða. Fóðrið styður við vöxt vöðva og stoðkerfis og hentar vel þegar markmiðið er að byggja upp sterka, hrausta og vel þroskaða gripi.
Vöxtur er góður kostur eftir kálfaköggla og nýtist sem hluti af markvissri fóðuráætlun fyrir áframeldi, þar sem lögð er áhersla á góðan þroska, jafnan vöxt og hagkvæma fóðrun.
Kálfakögglar
Á lager
155 kr. – 159.672 kr.Price range: 155 kr. through 159.672 kr. með vskKálfakögglar eru próteinríkt og steinefna- og vítamínríkt kjarnfóður fyrir kálfa frá tveggja vikna aldri. Fóðrið inniheldur ríkulegt magn af fiskimjöli og vel samsetta próteingjafa sem styðja við vöxt, þroska og góða byrjun í uppeldi kálfa.
Kálfakögglar örva þroska vambarinnar og hjálpa kálfum að ná upp góðu áti samhliða mjólkurgjöf, áður en þeir hætta alveg á mjólk. 6 mm kögglastærð stuðlar að góðu áti og getur flýtt fyrir vexti.
H-kögglar
Á lager
161 kr. – 4.647 kr.Price range: 161 kr. through 4.647 kr. með vskH-kögglar eru kjarnfóður fyrir mjólkurkýr sem hentar sérstaklega vel með blautverkuðum rúllum og próteinsnauðu heyi. Fóðrið er góður kostur þegar bæta þarf upp prótein og næringu í gróffóðri og styðja við jafnvægi í daglegri fóðrun.
H-kögglar henta vel fyrir kúabú sem vilja einfalt, lystugt og markvisst kjarnfóður til að styðja við mjólkurframleiðslu, fóðurnýtingu og almennt heilbrigði mjólkurkúa.
Geldstöðukögglar Hy-D®
Á lager
161 kr. – 164.398 kr.Price range: 161 kr. through 164.398 kr. með vskGeldstöðukögglar Hy-D® eru hágæða kjarnfóður fyrir geldkýr, sérhannað til að styðja við heilsu, undirbúning fyrir burð og góðan upphafsfasa á næsta mjaltaskeiði.
Fóðrið er próteinríkt og inniheldur Hy-D®, E-vítamín, bíótín og magnesíum. Það styður við vömbina, hjálpar til við uppbyggingu próteinforða og getur stuðlað að heilbrigðari kúm, sterkari kálfum og betri afurðum eftir burð. Gefið á geldstöðu, 2 kg á dag. Gefið ekki mjólkandi kúm.
Ungakurl U1 – Óerfðabreytt
Á lager
190 kr. – 4.991 kr.Price range: 190 kr. through 4.991 kr. með vskUngakurl 1
Heilfóður fyrir varphænuunga – inniheldur hníslalyf
fyrstu 7-8 vikurnar
Andarungakögglar
Á lager
192 kr. – 5.162 kr.Price range: 192 kr. through 5.162 kr. með vskAndarungakögglar eru eldisfóður fyrir andarunga frá 15 daga aldri
Milljónablanda óerfðabreytt
Á lager
206 kr. – 105.150 kr.Price range: 206 kr. through 105.150 kr. með vskMilljónablanda er kraftmikill, óerfðabreyttur fóðurbætir fyrir sauðfé með 37% hrápróteini. Blandan inniheldur meðal annars fiskimjöl og sojamjöl og hentar vel með útbeit, á fengitíma og eftir burð þegar próteinþörf ánna er mikil.
KNZ Hestasteinn 2 kg
Á lager
800 kr. með vskStutt lýsing
KNZ hestasteinn er 2 kg saltsteinn fyrir hesta með magnesíum og mikilvægum snefilefnum. Steinninn veitir meðal annars sink, joð, selen, kopar og járn og hentar einnig í lífrænum búskap.
Löng lýsing
KNZ hestasteinn er steinefna- og saltsteinn sem er sérstaklega ætlaður hestum. Hann inniheldur yfir 96% salt ásamt magnesíum og völdum snefilefnum sem styðja við daglega steinefnaþörf hestsins.
Steinninn inniheldur meðal annars sink, joð, selen, kopar og járn. Hann er laus við erfðabreytt hráefni, ofnæmisvalda, þar á meðal glúten, sýkla og leifar skordýraeiturs. Varan hentar til notkunar í lífrænum búskap samkvæmt reglugerð ESB 2018/848.
Saltsteinninn er framleiddur úr salti frá Hollandi og pakkaður þar. Geymist á hreinum og þurrum stað. Geymsluþol er þrjú ár.
Royal Canin Mother and babycat 195gr
Á lager
895 kr. með vskHeildstætt blautfóður fyrir kettlingafullar og mjólkandi læður ásamt kettlingum frá 1–4 mánaða aldri. Royal Canin Mother & Babycat Ultra Soft Mousse er með mjúka áferð sem auðveldar kettlingum umskiptin yfir í fasta fæðu. Vítamín C og E, DHA og góðgerlaörvandi efni styðja jafnframt við náttúrulegar varnir líkamans, heilbrigðan þroska og góða meltingu.
Royal Canin kattamatur Fit32
Á lager
1.105 kr. – 18.310 kr.Price range: 1.105 kr. through 18.310 kr. með vskHeildstætt þurrfóður fyrir fullorðna ketti á aldrinum 1–7 ára með hóflega hreyfingu. Royal Canin Fit 32 styður við kjörþyngd, heilbrigði þvagfæra og almenna hreysti. Sérstakar trefjar og psyllium hjálpa einnig til við að draga úr myndun hárbolta.
Royal Canin kattamatur Sensible
Á lager
1.180 kr. – 9.220 kr.Price range: 1.180 kr. through 9.220 kr. með vskFyrir kisur með viðkvæma meltingu.
Heildstætt fóður fyrir ketti eldri en 1 árs með viðkvæma meltingu.
Einsaklega auðmeltanleg prótein til að koma í veg fyrir linar hægðir.
inniheldur auðmeltanleg prótein (L.I.P. prótein) ásamt vel völdum innihaldsefnum sem bæta meltingu.
Ákveðnar trefjar og meltingargerlar stuðla að myndun gagnlegra baktería og koma jafnvægi á þarmaflóruna.
Royal Canin kattamatur Sterilised
Á lager
1.360 kr. – 9.610 kr.Price range: 1.360 kr. through 9.610 kr. með vskHeildstætt þurrfóður fyrir gelda ketti á aldrinum 1–7 ára. Royal Canin Sterilised 37 inniheldur hóflegt magn fitu og hátt hlutfall próteina sem hjálpar kettinum að viðhalda kjörþyngd og vöðvamassa.
Vandlega samsett steinefnajafnvægi styður jafnframt við heilbrigði þvagfæra.
Royal Canin kattamatur Kitten
Á lager
1.370 kr. – 9.970 kr.Price range: 1.370 kr. through 9.970 kr. með vskHeildstætt þurrfóður fyrir kettlinga á aldrinum 4–12 mánaða. Royal Canin Kitten inniheldur vandlega valin næringarefni sem styðja við heilbrigðan vöxt, náttúrulegar varnir líkamans og góða meltingu. DHA stuðlar jafnframt að eðlilegum þroska heilans og heilbrigðri sjón.