Fóður
Sýna 1–20 af 110 niðurstöðurSorted by popularity
Kálfakögglar
Á lager
155 kr. – 159.672 kr.Price range: 155 kr. through 159.672 kr. með vskKálfakögglar eru próteinríkt og steinefna- og vítamínríkt kjarnfóður fyrir kálfa frá tveggja vikna aldri. Fóðrið inniheldur ríkulegt magn af fiskimjöli og vel samsetta próteingjafa sem styðja við vöxt, þroska og góða byrjun í uppeldi kálfa.
Kálfakögglar örva þroska vambarinnar og hjálpa kálfum að ná upp góðu áti samhliða mjólkurgjöf, áður en þeir hætta alveg á mjólk. 6 mm kögglastærð stuðlar að góðu áti og getur flýtt fyrir vexti.
KNZ Alhliðasteinn (UNIVERSAL MULTI) 10 kg
Á lager
1.724 kr. með vskKNZ Universal Multi er saltsteinn með viðbættu járni, sem bætir virkni líffæra og vefja sem flytja súrefni.
Tilvalin viðbót þegar þörf er á auknu járni.
Pro Omega Lamb&rice 15 kg GULUR
Á lager
9.419 kr. með vskPro Omega Adult Lamb & Rice er heilfóður fyrir fullorðna hunda, með lambapróteini og 20% hrísgrjónum. Fóðrið er samsett til að styðja við daglega næringarþörf hundsins og hentar vel sem reglulegt fóður fyrir fullorðna hunda. Lamb og hrísgrjón gera fóðrið að góðum valkosti fyrir hunda sem þurfa lystugt og vel samsett fóður með völdum prótein- og kolvetnagjöfum.
Fóðrið inniheldur 22% hráprótein og 10% fitu, auk vítamína, steinefna og snefilefna sem styðja við almenna hreysti, orku og vellíðan hundsins. Í samsetningunni eru meðal annars olíur og fitur, ger og steinefni, ásamt A-, D3-, E-, B- og C-vítamínum.
Sólblómafræ afhýdd 12 kg
Á lager
7.192 kr. með vskSólblómafræ, afhýdd, 12 kg poki.
Sólblómafræ án hýðis henta fyrir bæði litla og stóra fugla í garðinum. Með því að velja afhýdd fræ forðastu að fá hýði dreifð um garðinn.
Afhýdd sólblómafræ eru vinsæll og afar góður orkugjafi – hátt olíuinnihald tryggir mikið fituinnihald.
Maískögglar
Á lager
3.477 kr. – 121.602 kr.Price range: 3.477 kr. through 121.602 kr. með vskMaískögglar eru orkuríkur fóðurbætir sem hentar vel með öðru fóðri þegar auka þarf orku í fóðrun mjólkurkúa. Fóðrið er glúkógenísk orkuviðbót sem nýtist sérstaklega vel á snemm-mjaltaskeiði, þegar orkuþörf kúnna er mikil.
Maískögglar geta stutt við betra heilsufar, aukið orkujafnvægi og dregið úr líkum á súrdoða. Þeir henta vel sem hluti af markvissri fóðuráætlun þar sem lögð er áhersla á góða nyt, fóðurnýtingu og heilbrigði gripa.
Pro Omega Adult 15 kg. GRÆNN
Á lager
8.324 kr. með vskAdult Chicken & Fish frá Pro Omega er hágæða hundafóður fyrir kröfuharða, fullorðna hunda.
Inniheldur kjúklingakjöt og hentar flestum hundum með miðlungs fóðurþarfir. Inniheldur hátt hlutfall dýrapróteina (65%) og dýrafitu (80%). Sambærilegt og Adult Lamb og Rice nema þetta fóður inniheldur einnig kjúkling og fisk ásamt öðru kjötmeti.
Kurlaður maís 15 kg
Á lager
2.790 kr. með vskMaís er orkuríkt fóðurhráefni með hátt sterkjuinnihald. Hann hentar vel sem hluti af fóðurblöndum og er einkum notaður til að auka orkuinnihald fóðurs.
Pro Omega Puppy 8 kg BLÁR
Á lager
5.575 kr. með vskHágæða hvolpafóður fyrir hvolpa frá 4-6 vikna aldri til 1 árs. Stuðlar að heilbrigðum vexti, sterku stoð- og ónæmiskerfi. Inniheldur hátt hlutfall dýrapróteina (65%) og dýrafitu (80%).
Fóðrið er sérsniðið að þörfum hvolpa, með auðmeltum, sérvöldum hráefnum. Fóðrið er hátt í próteini og fitusamsetningu ásamt því að vera ríkt af kalki og vítamínum, allt eiginleikar sem byggja undir heilbrigðan vöxt og beinabyggingu.
Hekla – Hestafóður
Á lager
4.991 kr. – 96.189 kr.Price range: 4.991 kr. through 96.189 kr. með vskKjarnfóður fyrir hross í þjálfun, sérlega fyrir keppnis- og kynbótahross.
• Hátt próteininnihald fyrir vöxt og viðhald vöðva.
• Inniheldur fiskimjöl – Hentug amínósýrusamsetning.
• Hátt hlutfall meltanlegra trefja.
• Hátt fituinnihald – Jákvæð áhrif á efnaskipti hestsins.
• Inniheldur kalkþörunga sem jafna sýrustig í meltingarvegi.
• Fullbúið steinefnum og vítamínum.
• Sérhannað eftir íslenskum heyefnagreiningum.
Þokki – Hestakögglar 5% fita 18KG
Á lager
5.285 kr. með vskÞokki hestafóður.
Alhliða fóðurbætir fyrir íslenska hesta.
Þokki er frábær viðbót fyrir hross í miðlungs eða mikilli þjálfun.
Hestakögglarnir eru þanið fóður, framleiddir með sömu aðferð og t.d. morgunkorn. Við það eykst meltanleikinn og kögglarnir verða mjög lystugir.
Kúakögglar – Hy-D®
Á lager
0 kr. – 131.898 kr.Price range: 0 kr. through 131.898 kr. með vskKúakögglar – Hy-D® eru orkuríkar og fiskimjölsríkar kjarnfóðurblöndur fyrir mjólkandi kýr. Blöndurnar hafa reynst einstaklega vel í fjölda ára og henta vel fyrir hátt framleiðslustig, þar sem markmiðið er að styðja við góða nyt, fóðurnýtingu og heilbrigði gripa.
Kúakögglar innihalda hátt hlutfall maís sem gerjast hægt í vömb og nýtist sem góður orkugjafi. Fóðrið inniheldur einnig Hy-D®, lífvirkt og hraðvirkt D-vítamín sem styður við kalkefnaskipti, ónæmi og almennt heilsufar mjólkurkúa.
Sámur hundafóður 18 kg.
Á lager
7.611 kr. með vskSámur 18 kg poki – Gæðafóður á góðu verði, sérpakkað fyrir Fóðurblönduna. (Premium B+ fóður) Uppfyllir öll skilyrði fullorðins hunds. Gott verð. 21% Prótein og 8% fita.
Kalksalt m/Hvítlauk 15kg.
Á lager
7.795 kr. með vskKalksalt með hvítlauk er afar vinsælt hjá kúabændum og kúm þar sem hvítlaukurinn hefur bólgueyðandi áhrif og frumutala kúa lækkar við notkun þess og fitan hækkar. Hestar og eigendur þeirra hafa einnig verið hrifnir af hvítlauknum því hann er sérstaklega góður fyrir feld hrossanna og meltingu.
Kalksalt ehf. er eina fyrirtækið á Íslandi sem framleiðir bætiefnafötur og steina. Kalksalt er fyrir kindur, kýr og hesta. Saltið kemur frá saltfiskverkunum á Vestfjörðum og er afurð sem yfirleitt er hent, þar sem það inniheldur fiskafganga. Saltið dregur í sig snefilefni úr fisknum sem er einkar hollt fyrir skepnur. Einnig eru kalkþörungar í kalksalti en þeir eru góðir fyrir feld, ull og meltingu jórturdýra. Kalksalt ehf. er staðsett á Flateyri, notar eingöngu salt af Vestfjörðum og heldur þannig kolefnissporinu í lágmarki.
Ungakögglar U2 óerfðabreyttir 25kg
Á lager
4.695 kr. með vskUngakögglar 2
25 kg
Heilfóður fyrir varphænuunga.
Frá 7 vikna aldri og fram undir varp.
Vöxtur
Á lager
136 kr. – 135.940 kr.Price range: 136 kr. through 135.940 kr. með vskVöxtur er kjarnfóður fyrir kálfa og ungneyti, sérhannað til að styðja við mikinn en heilbrigðan vaxtarhraða. Fóðrið styður við vöxt vöðva og stoðkerfis og hentar vel þegar markmiðið er að byggja upp sterka, hrausta og vel þroskaða gripi.
Vöxtur er góður kostur eftir kálfaköggla og nýtist sem hluti af markvissri fóðuráætlun fyrir áframeldi, þar sem lögð er áhersla á góðan þroska, jafnan vöxt og hagkvæma fóðrun.
Mini Adult wet 12x85gr
Á lager
4.340 kr. með vsk85g *12
Blautmatur fyrir smáhunda eldri en 10 mánaða og vega milli 1-10 kg.
- Getur verið góður kostur að nota með þurrfóðri, eða eitt sér, ef hundar eru lystalausir einhverra hluta vegna.
- Inniheldur ómega-3 fitusýrur sem stuðla að heilbrigðri húð og styrkingu ónæmiskerfis.
- Inniheldur blöndu vítamína og steinefna sem hafa hlutverki í andoxunaráhrifum á líkamann og styrkir þar með ónæmiskerfið.
- Stuðlar að góðri matarlyst, þökk sé vel einstakri lykt!
- Bragðgott og höfðar jafnvel til matvöndustu hunda.
- Dregur úr tannsteinsmyndun.
- Auðmeltanlegt.
- Inniheldur L-karnitín stuðlar að aukinni brennslu og getur þannig viðhaldið eðlilegri þyngd.
Kalksaltsteinn 7,5 kg
Á lager
4.335 kr. með vskKalksalt ehf. er eina fyrirtækið á Íslandi sem framleiðir saltbætiefnafötur fyrir búfénað en saltið í bætiefnafötunum kemur frá fiskverkunum í nágrenninu.
Gamlir bændur þekkja vel gæðin sem felast í salti sem hefur komist í návígi við fisk, því saltið dregur í sig prótein, vítamín og snefilefni frá fisknum sem hefur svo góð áhrif á kýr, kindur og hesta.
Kalkþörungarnir sem varan dregur nafn sitt af, koma frá Kalkþörungaverksmiðjunni á Bíldudal. Kalk hefur góð áhrif á vöxt beina, tanna, ullar og felds.
Kúabændur sem nota kalksalt hafa einnig talað um að frumutala hafi lækkað og fita hækkað hjá kúnum eftir að þeir fóru að gefa kalksalt.
Kalksaltið er steypt í melassa sem gerir það afar lystugt. Að auki eru í því selen, A vítamín, E vítamín og D3.