Lifeline® Lömb og ær – Líflína í sauðburði

Síðustu vikurnar fyrir burð eru eitt viðkvæmasta tímabil ársins í sauðfjárbúskap. Þá eykst næringarþörf ánna hratt, fóðurpláss minnkar (vegna fósturs), og hætta á orkuskorti og „daufum“ lömbum eykst — sérstaklega hjá tví- og þrílembum.
LIFELINE® Lömb og ær er sérhannað fóðurbætiefni sem gefið er í frjálsu aðgengi sem er ætlað að styðja bæði ána og ófædda lambið á lokasprettinum fyrir burð.

-
Varan er hönnuð sem alhliða stuðningur þegar mest á reynir:
-
Orka + prótein til að styðja ána þegar þörfin er mest (t.d. við áhættu á orkuskorti).
-
Næringarbætandi innihald (m.a. lactose og ger-afleiður eins og MOS/beta-glúkana) sem er tengt við stuðning við ónæmisstarfsemi og gæði broddmjólkur.
-
Availa® Zinc (lífrænt sink) styður þarmaþroska/gagnnýtingu fóðurs hjá lömbum og rannsóknir benda til lægri nýburadauða.
Helsti ávinningur í sauðburði
1. Betri broddmjólk = betri byrjun
Broddmjólk er fyrsta „líflína“ lambsins. LIFELINE® Lömb og ær bætir gæði broddmjólkur — m.a. með allt að 25% aukningu á IgG (mótefnum).
2. Meiri lífskraftur og “snarpara lamb”
Markmiðið er að lömbin komist strax á legg eftir burð: standi fyrr upp, finni spena fyrr og nái að taka inn broddmjólk tímanlega. Það styrkir einnig getu lambsins til að halda líkamshita og orku, sem getur skipt miklu máli þegar aðstæður eru krefjandi, t.d. í kulda, trekk eða þegar burður er þéttur.
3. Stuðningur við ána þegar orkuþörf eykst
Seinni hluti meðgöngu er orkuþungur. LIFELINE® Lömb og ær er með fjölþætta orkugjafa og er sérstaklega hentugt fyrir ær sem eru í áhættu á orkuskorti í lok meðgöngu.
4. Þægileg lausn í frjálsu aðgengi
Frjálst aðgengi gerir notkunina einfaldari í amstri dagsins. Þú setur vöruna út, tryggir að allir hópar nái í hana og fylgist með að inntaka sé í takti við ráðleggingar.
5. Getur gert burðinn auðveldari fyrir ærnar
Með því að styðja ána á lokasprettinum — sérstaklega með aukinni orku og næringarstuðningi þegar þörfin er mest — getur LIFELINE® Lömb og ær hjálpað ánni að mæta burðinum í betra jafnvægi. Það getur þýtt að ærnar taki burðinum betur, haldi betur orku í ferlinu og nái hraðar aftur í rútínu eftir burð, sem skiptir miklu máli þegar burður er þéttur og mikið álag á fjárhúsinu.
Hvernig er LIFELINE® Lömb og ær notað?
Almenn ráðlegging (algengast):
- Bjóða í frjálsu aðgengi stöðugt í 6 vikur fram að burði og fram yfir burð.
- Tryggja að gott gróffóður (ad-lib forage) sé alltaf til staðar samhliða.
- Dæmigerð inntaka fyrir sauðfé er um 200–400 g á á á dag (getur verið breytilegt eftir aðstæðum, fóðurgrunni og hópum).
Mikilvægt: Fylgdu leiðbeiningum á umbúðum og stilltu aðgengi þannig að allar ærnar í hópnum hafi jafnan aðgang að stampnum.
Fyrir hvaða aðstæður er þetta sérstaklega sniðugt?
- Tví- og þrílembur / ær í meiri áhættu á orkuskorti
- Þegar þú vilt setja aukinn stuðning inn án þess að flækja gjafakerfi
- Í auðveldum/“easy care” kerfum þar sem frjáls aðgengi að bætiefni hentar vel
- Þegar markmiðið er að styrkja gæði broddmjólkur og lífskraft lamba í upphafi
LIFELINE® Lömb og ær er hannað sem praktísk, frjáls aðgengis lausn fyrir lokasprettinn — með fókus á orku, prótein og lykilnæringarefni til að styðja ána og ófædda lambið. Fyrir marga er þetta einföld leið til að auka líkurnar á heilbrigðari sauðburði, til að létta undir þegar álagið er mest.
LIFELINE® Lömb og ær fæst í öllum verslunum Fóðurblöndunnar.
Einnig hægt að panta í vefverslun og fá sent beint heim.
